Enn um Moggabloggið
Allra dyggustu lesendur þessarar síðu kunna að hafa fengið um það grun að mér sé eilítið illa við Moggabloggið. Í stuttu máli sagt finnst mér Moggabloggið standa fyrir allt það versta í bloggheimum og hafa gert stórskaða á því bloggsamfélagi sem hér hefur verið að byggjast upp síðustu átta árin eða svo. Ég átta mig ekki alveg á því hvort meinsemdin felist í því að aðstandendur Moggabloggsins skilji ekki út á hvað blogg gengur eða hvort þeir séu hreinlega illkvittnir. Líklega er skýringin blanda af hvoru tveggja.
Ég skal þó viðurkenna að í fyrstu taldi ég að sumir vankantarnir á Moggablogginu væru bernskubrek sem takast myndi að sníða af með tímanum. Þannig trúði ég ekki öðru en að fljótlega yrði horfið frá þeirri tilraun að meina öðrum en skráðum Moggabloggsnotendum að skrá athugasemdir með tenglum á sínar eigin síður. Raunin hefur orðið sú að nú er gengið lengra í þá átt að hrekja óinnskráða í burtu með því að birta ip-tölur þeirra með athugasemdum.
Ég trúði því ekki heldur að Mogginn myndi láta það líðast að tenglar yfir á athugasemdir frá nafnlausum bloggurum birtust við greinar á mbl.is. Í mínum huga er það klárt mál að með slíkum birtingum er Mogginn um leið að taka ritstjórnarlega ábyrgð á efni þessara nafnlausu síðna - á sama hátt og þegar fjölmiðill birtir skrif undir dulnefnum.
En af öllum þeim ótalmörgu hlutum sem bögga mig varðandi Moggabloggið, er að geta hvergi fundið neina notkunarskilmála. Nú trúi ég ekki öðru en að þeir sem stofna Moggablogg þurfi að undirgangast einhver skilyrði - t.d. varðandi það efni sem þeir birta á vefsvæðinu? Mega Moggabloggarar t.d. hrúga klámefni inn á síðurnar sínar athugasemdalaust? Á sama hátt hlýtur það að vera tiltekið í notkunarskilmálum hvernig Mogginn má nota þær persónuupplýsingar sem hann aflar sér um Moggabloggarar og netnotkun þeirra - eða hvað?
Ekki kæri ég mig um að skrá mig á Moggabloggið til að geta nálgast þessa skilmála. Getur ekki einhver frætt mig um hvernig þessum málum er háttað og helst sent mér skilmálana eða tengil á þá.
Megi Moggabloggið verða úrskurðað ólöglegt af Mannréttindadómstólnum!

April 21st, 2007 at 00:18
Tók þig á orðinu og skráði mig á moggabloggið. Hef nú virkan aðgang en hef ekki séð neitt um skilmála eða reglur. Þannig að þetta er bara endalaust frelsi til að ausa skít og skömm.
April 21st, 2007 at 01:08
ég er með síðu þar (hvar ég skrifa ekkert nema að vísa í mína virku síðu og svo tengja á SHIFT-3 og Sverri) og segi sama, engir skilmálar eða neitt.
Hafið þið tekið eftir því að síðum hafi verið lokað þar, eða færslum eytt af einhverju yfirvaldi (eins og gerðist síðast í dag með WordPress.com síðu íslenska), eða þá séð tengil til að vísa á óæskilegt innihald síðu (kvarta)? Ekki ég.
April 21st, 2007 at 08:17
Tek undir þetta, skráði mig á Moggabloggið í sama skyni og Hildigunnur og man ekki til þess að hafa gengist undir neina skilmála.
Ég hef líka verið að velta fyrir mér þessu sama og Hildigunnur (halló, ég heiti Eyja og ég er bergmál Hildigunnar), þ.e. hvort Mogginn hefði einhverja bloggverði á sínum snærum sem sæju til þess að mesta aurnum yrði eytt. Ég hef orðið vör við það að hinn almenni mbl.is-lesandi (lesist: eiginmaður minn) sem les fréttirnar á netinu og smellir einstaka sinnum á einstaka bloggfærslu sem tengt er í úr fréttinni tekur því sem gefnum hlut að bloggin séu ritskoðuð af Mogganum, ekki síst þessi nafnlausu, enda taki jú Morgunblaðið ritstjórnarlega ábyrgð á innihaldi þeirra.
April 21st, 2007 at 09:49
færslum eða bloggum er eytt ef efni standa til þess. ristjórnarleg ábyrgð mbl felst ekki í því að skoða hverja færslu, heldur geta þeir orðið ábyrgir ef þeir taka ekki á því að notendur séu að haga sér á ólögmætan hátt.
þannig að ef þið sjáið eitthvað ljótt, barra láta vita.
farið svo að láta framsóknarflokkinn og mbl-bloggið í friði. talandi um að níðast á þeim sem minnst mega sín.
April 21st, 2007 at 16:45
Þegar maður skráir sig inn fyrir bloggi á mbl.is þá þarf maður að gefa upp kennitölu. Ég er á móti þessari stöðugu kennitölunotkun þegar engin ástæða er fyrir því þannig að ég sendi inn póst til að spyrja út af hverju þeir vilja kennitölu og ég fékk eftirfarandi svar:
“Þar sem Árvakur hf getur ekki tekið ábyrgð á því sem bloggnotendur skrifa, þá skyldum við notendur til þess að gefa upp kennitölu sína. Það sér enginn kennitölu notandans nema við forritarar mbl.is.”
Ég sendi þá aftur póst og benti á það að hver sem er gæti flett upp á kennitölu einhvers út í bæ og notað hana til að búa til blogg og látið svo blammeringarnar flæða á blogginu á “ábyrgð” einhvers annars. Wordpress og Blogspot díla við þetta vandamál með því einmitt að hafa skilmála sem fólk samþykkir - það er engin kennitala þar til að bjarga málunum.
Ég fékk póst til baka sem gekk mest út á það að maður notar kennitölur á video leigum og líkamsræktarstöðvum og þ.a.l. skiptir þetta engu máli - sem sagt spurningunni var ekki svarað.
Svo skildist mér á einhverjum mogga bloggurum (eftir þetta) að allt í einu hefði komið upp einhver texti þegar þeir eru að vista færslurnar sínar sem segir að allt efni sem er sett inn á bloggið er á ábyrgð bloggarans ekki Árvaks. Ég veit ekki hvort það kom inn í framhaldi af mínum póstsamskiptum eða hvort fólk tók bara eftir þessum texta allt í einu.
Kennitölunotkun á video-leigum fer einnig hrikalega í taugarnar á mér. Það eru til video leigur út um allan heim þar sem engar kennitölur eru og það virðist ekki vera vandamál þar en það er allt annað mál og önnur saga.
April 21st, 2007 at 23:30
Nú langar mig voðalega til að finna fullt af klámmyndum og setja á moggabloggið, bara til að sjá hvernig það færi allt saman, en ég vil auðvitað ekki gerast sek um dreifingu kláms. Spurning að finna eitthvað sem særir blygðunarkennd fólks en er þó ekki bannað.
April 22nd, 2007 at 12:13
já blessuð.
þau sem nenna, notið anonymouse.org til að stofna blogg á kt. einhvers fyrirtækis út í bæ og svo mailinator.com fyrir bráðabirgðapóstfang til staðfestingar.
fylgist svo með forriturunum segja:
“tjah, okkur sýnist nú Orkuveita Reykjavíkur standa fyrir birtingu þessara dýraklámsmyndbanda, rétt eins og Byko stóð fyrir ærumeiðingunum í síðustu viku. við berum enga ábyrgð sjáið til. hafið þið aldrei farið á vídjóleigu?”
auðvitað bera þeir ábyrgð á því að fjarlægja ólöglegt efni óháð því hvaða kennitala er skráð fyrir því.
að vilja ekki gefa upp persónuuppl. er ekki spurning um að ábyrgjast ekki það sem maður skrifar heldur er prinsipp mál að vera ekki að dreifa persónuupplýsingum sínum, eins og kt., emaili og ip-fangi, út um hvippinn og hvappinn.
nú geta t.d. “forritararnir” auðveldlega safnað saman öllum tilsvörum einstaklings sem gefið hefur upp alvöru tpóstfang í athugasemdum á blog.is. sett þetta í word og sent til Styrmis. frábært.
te ég þá erlendu gróðahyggjumennina í Blogger fram yfir hvenær sem er.
April 23rd, 2007 at 01:22
Að nenna að velta sér upp úr þessu. Hvernig sem einhver tjáir sig hlýtur að dæmast á orðum hans/hennar. Hvar han/hún gerir það er aukaatriði. Moggabloggið hefur sýnt mörgu góðu fólki fram á leið til að segja það sem það vill þegar það vill það. Hver ákveður sitt! Lesið það sem stendur og metið! ekki meta það sem stendur og lesa!
Góðar stundir
April 23rd, 2007 at 09:01
Einhvern tímann í byrjun Moggabloggs sá ég nafnlaust blogg í “nasista”-anda og merkti við til að fylgjast með hvað yrði úr. Það var aldrei neinu bætt við en síðunni/færslunni heldur ekki eytt. Veit ekki hvað var þarna á ferðinni eða hvers vegna.
April 23rd, 2007 at 13:13
Stefán og fleiri hafa eflaust einkum áhyggjur af því að nafnlausa liðið leyfi sér miklu meira skítkast heldur en ef það þyrfti að koma fram undir nafni.
Þetta er því ekki bara spurning um að hafa nafn og mynd, heldur að hefta skemmuleggingu á mbl.is.
Rétt er þó að benda þeim, sem vilja skrifa undir dulnefni á blog.is eða annars staðar, á að búa til alvöru nafn og finna síðan einhverja mynd í google myndaleit til að hafa með.
Margir taka (einhverra hluta vegna) frekar mark á athugasemdum og skrifum ef þau koma frá manneskju með gott og gegnt íslenskt nafn og hægt er að sjá hvernig hún lítur út.
Sigurjón sem skrifar hér að ofan gæti til dæmis verið 68 ára gömul amma úr Hlíðunum. Ef svo er þá er að mörgu leyti sniðugra fyrir hana að skrifa undir alvöru nafni, t.d. Sigurjón, heldur en t.a.m. undir nafninu “borgari” eða “ein úr hlíðunum”.
Internetið - Where men are men, women are men and little girls are FBI agents.
April 23rd, 2007 at 14:25
Verst finnst mér að moggabloggið er í raun og veru eins og klám.
Sem sé leiðinlegt drasl sem er út um allt…
April 24th, 2007 at 15:15
hvað með Vísisbloggið, er það skömminni skárra en Moggabloggið?
April 24th, 2007 at 17:05
Er það ekki enn meiri útnári en Moggabloggið?
April 24th, 2007 at 20:24
ég skráði mig fyrir löngu á Moggabloggið… gleymdi lykilorðinu og hafði óvart eytt staðfestingarskeytinu.
Það er ekki nokkur einasta leið fyrir mig að komast inn aftur, hvorki til að breyta síðunni né loka henni.
Fjandinn hirði þetta blogg.
April 26th, 2007 at 13:14
Þær breytingar hafa nú verið gerðar á Moggablogginu að hægt er “Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt” með smelli. Það er aðeins fyrir skráða notendur.
Annars staðar kemur þetta fram:
“Kveikjan að þessum breytingum, er að ýmsir hafa bloggað ósæmilega um fréttir, gert grín að fólki sem er jafnvel alvarlega slasað eða í lífshættu vegna slyss, farið niðrandi orðum um fólk út frá litarhætti eða trúarbrögðum og svo má nefna. Væntanlega eru flestir sammála því að slíkar fréttatengingar eru óviðkunnanlegar.”
Ekki er að finna annað um efni á Moggabloggi. Sjálfum finnst mér skítkastið nóg hjá nafnkunnum einstaklingum og gefa þeir nafnleysingjunum ekkert eftir.
May 3rd, 2007 at 00:07
Mér finnst Moggabloggið skásta bloggið þó ekki sé það beysið. Þar gera menn minnst af því að rakka niður náungann og þar er skætingurinn og hrokinn minnstur. Þetta bloggsamfélag sem þú segir að hafi verið að byggjast upp í 8 ár var ekki bara markerað af einhverju elítumonti heldur var líka eins og það væri allt útbíaðí alkóhólisku mentaliteti og 101 barstemningu. Annars skil ég ekki þenann barnalega fjandskap sem þið “hinir” hafið út í Moggabloggið. Það blasir þá líka við að þið fyrirlítið líka einstaklingana sem þar blogga, (sem eru víst bara að klæmast) það er ekki hægt að skilja þetta að, en hafið þið nokkuð efni á slíkum merkikertahætti?