Einkahlutafélagið
Á morgun kl. 14 verður aðalfundur Friðarhúss SHA ehf. haldinn í Friðarhúsi. Einu hlutabréfin sem ég á eru í þessu félagi. Vonin um arðgreiðslur er lítil, en félagsskapurinn þeim mun betri.
Það eru u.þ.b. 210 hluthafar í félaginu og við höfum viljað trúa því að þetta sé þar með fjölmennasta einkahlutafélag á Íslandi. Veit einhver um fjölmennara félag þessarar tegundar?
Ekki er búist við tíðindamiklum fundi. Stjórnin hefur staðið sig frábærlega síðasta árið. Tekjur félagsins eru meiri en vonast hafði verið til og hlutabréfasalan gengur vel. Vonir standa til að á næsta starfsári verði farið langt með að greiða upp allar skuldir við bankastofnanir. - Er það ekki þannig sem ríkisstjórnin og Seðlabankinn vilja að maður geri í þenslunni, greiði niður skuldir? Legg til að Geir Haarde og Davíð Oddsson veiti SHA viðurkenningarskjal fyrir stuðning sinn við efnahagsstefnuna.
# # # # # # # # # # # # #
Í kvöld mun Luton væntanlega falla endanlega niður um deild og það í beinni útsendingu á útivelli gegn Derby. Ég hef eiginlega ekki hjarta í mér til að mæta og horfa á það gerast.
# # # # # # # # # # # # #
Fjölskyldan fór í Bónus og verslaði inn fyrir næstu daga og afmælisveislu barnsins um helgina. Þegar heim var komið rifjaðist upp hvers vegna maður á alltaf að lesa dagsetningarnar á vörum í Bónus. Saltaða hrossakjötið var komið 10 daga framyfir síðasta söludag.
Megi Moggabloggið éta úldið hrossakjet.

April 20th, 2007 at 14:20
Þetta segir manni líka að það á ekki að borða hrossakjet.
April 20th, 2007 at 14:47
og allra síst í barnaafmælum…
April 20th, 2007 at 14:51
Iss, við heiðingjarnir erum með gildan samning um að við megum éta hross og bera út börn. Við munum ekki afsala okkur þessum réttindunum bótalaust.
April 20th, 2007 at 15:43
Stóð ekki bara “best fyrir” á pakkningunni? Það þýðir að hrossaketið er bara best fyrir umræddan dag, ekki ónýtt eftir hann.
Getur saltað hrossakjöt nokkuð skemmst?
April 20th, 2007 at 17:37
Þú getur mætt. Þetta er súrt og sætt eins og lífið. Við Hrútar erum þekktir fyrir að klúðra einmitt svona leikjum.
(Vissirðu annars að við erum búnir að breyta Steve McHoward í Skota og stefnan er að koma honum í landslið þeirra?)