Ein með öllu
à gær las ég à fyrsta skipti Bók Ãsgeirs Hannesar EirÃkssonar, Ein með öllu, sem rekur tilurð Borgaraflokksins. Þetta er skrÃtin bók. SkrÃtnust er þó forsÃðan, þar sem sjá má Albert Guðmundsson borinn uppi af hópi Ku Klux Klan-manna.
Bókin kom út um jólin 1990 og er að miklu leyti uppgjör við samflokksmenn á borð við Guðmund Ãgústsson og JúlÃus Sólnes – sem fær það óþvegið. Umfjöllunin um tilurð Nýs vettvangs er sömuleiðs forvitnileg, þótt augljóslega sé of skammt um liðið frá atburðunum til að sögumaður geti skilið milli aðal- og aukaatriða.
Langáhugaverðasti hlutinn var þó upphafskaflarnir, þar sem fyrstu klukkustundirnar à sögu Borgaraflokksins eru raktar. Það er mögnuð lesning.
Fyrir þá sem eitthvað þekkja til stjórnmálastarfs, er nánast óskiljanlegt hvernig hægt var að stilla upp framboðslistum, safna meðmælendum og sinna öllum þeim verkefnum sem framboð af þessu tagi krefjast – á örfáum sólarhringum.
Hulduher Alberts Guðmundssonar var mögnuð kosningavél. Mér er til efs að nokkur stjórnmálamaður samtÃmans gæti leikið svona ævintýri eftir.
à sama hátt segir saga Borgaraflokksins okkur að það er bara hálfur sigur unninn með þvà að koma nokkrum mönnum á þing. Ef undirstöðurnar skortir getur sigurinn glutrast niður ógnarskjótt.
# # # # # # # # # # # # #
à gær sendi ég bréf til höfuðstöðva Real Madrid. Það gerir maður nú ekki á hverjum degi.
# # # # # # # # # # # # #
Southampton á morgun, á heimavelli. Ekki er mikið tilefni til bjartsýni núna – jafntefli er það skásta sem hægt er að vonast eftir. Annars á ég sÃður von á þvà að Luton komist úr botnsætinu það sem eftir lifi tÃmabilinu.
# # # # # # # # # # # # #
Mikið óskaplega er þessi mynd um Alexander mikla leiðinleg. Hún vekur þó ýmsar hugmyndir um óskemmtilega dauðdaga sem óska mætti Moggablogginu.
Megi höggormur bÃta Moggabloggið!

April 7th, 2007 at 02:39
Ég er alveg viss um að þú yrðir einn allravinsælasti bloggarinn ef þú kæmir til okkar á Moggabloggið
April 7th, 2007 at 13:00
Anna, þú veist greinilega ekki um hvern þú ert að tala hér. Ekkert corpblogg fyrir gömlu kallana á netinu takk. Herra Stefán er að sjálfsögðu vinsælasti og besti bloggarinn, sannanir þar að lútandi má finna á Þjóðarbókhlöðu, þjóðfræðideild.
April 7th, 2007 at 18:29
Sæll Stefán
Ég er forvitinn með þetta bréf til Real Madrid. Varstu að óska þeim sömu endalokum og Moggablogginu??
April 8th, 2007 at 13:58
Satt segir þú Bragi. Stefán er orðinn gamall sem á grönum má sjá, enda náði hann fullum 32 árum à dag. Þvà er spurningin hvort hann eigi ekki fremur heima á Þjóðminjasafninu en à Þjóðarbókhlöðu.