Svikahrapparnir sjöhundruð
Það var boðið upp á margar furðulegar fréttir à dag, sem vera ber. Sú skringilegasta var þó ekki gabbfrétt, heldur sá uppsláttur að stuðningsmenn álversins segist hafa “rökstuddan grun” um að 700 andstæðingar hafi flutt lögheimili sitt à Hafnarfjörðinn og þannig ráðið úrslitum. Þessu var svo slegið upp à öllum helstu fjölmiðlum – það eru slök vinnubrögð.
Látum vera ef álverssinninn hefði staðhæft að andstæðingar hans hafi beitt bellibrögðum, skrökvað eða haft à hótunum – þar hefði að miklu leyti verið um huglægt mat að ræða og þvà sjálfsagt að sú skoðun hefði fengið að koma fram. En hér er um að ræða staðhæfingu sem á að vera hægðarleikur að rökstyðja eða afsanna með einföldu sÃmtali til þjóðskrár – eða jafnvel með þvà að rýna à gögn sem má meira eða minna finna á netinu.
Með einu sÃmtali hefði mátt komast að þvà hversu margir færðu lögheimilið til og frá Hafnarfirði fyrstu mánuði þessa árs, samanborðið við fyrri ár. Ef munurinn á þeim tölum er fjarri þvà að nema 700 manns, liggur beint við að afgreiða talsmanninn sem rugludall og henda “fréttinni” à ruslið.
En það er auðvitað ekki eins þægilegt – eða skemmtilegt – fyrir fréttamanninn. Það er miklu betra að reka hljóðnemann framan à viðmælanda sem slær fram órökstuddri tilgátu og kynna hana til sögunnar sem ásökun viðkomandi aðila og bÃða þess að einhver annar reyni að hrekja hana – frekar en að kanna sjálfur trúverðugleika frásagnarinnar.
Hlutverk fréttamannsins hlýtur að vera annað og meira en að skrásetja samsæriskenningar viðmælenda sinna og snara þeim à loftið án athugunnar. Það er úrvinnslan og rannsóknarvinnan sem gerir frásögnina að frétt. Kannski fréttastofurnar séu farnar að trúa öllu hæpinu à kringum bloggið og taki sér það núna til fyrirmyndar? Það þyrfti þá ekki að koma á óvart þótt heimildarmaður álverssinnans hafi sÃnar pottþéttu heimildir frá þriðja manni, sem hleraði fyllerÃsraus á Ölstofunni?
# # # # # # # # # # # # #
Annars myndi ég taka ofan fyrir hverri þeirri hreyfingu sem næði að sannfæra 700 manns um að flytja lögheimilið sitt à annað sveitarfélag. Það er tómt bögg og vesen sem fylgir þvà að hafa lögheimilið og raunverulegt heimili hvort á sÃnum staðnum. Bankar, opinberar stofnanir, félagasamtök o.fl. uppfæra à sÃfellu skrár sÃnar à samræmi við þjóðskrá.
Nú getur vel verið að góðhjartaðir ReykvÃkingar elski Kapelluhraunið, en elska þeir það nógu heitt til að sækja allan póstinn sinn à Fjörukránna?
# # # # # # # # # # # # #
Það var grátlegt að sjá MK-inga henda frá sér unnum úrslitaleik à GB á föstudagskvöld. Kópavogsbúar voru betra liðið à úrslitunum og eru à mÃnum huga klárlega lið ársins. MK, Versló og MR eru à mÃnum huga sigurstranglegustu lið næsta árs – jafnvel à þessari röð. Akureyri og HamrahlÃð eru þar skammt á eftir. Það er fágætt að svona margir skólar hafi sterkum liðum á að skipa à einu – sem er hið besta mál.
# # # # # # # # # # # # #
RÃkisútvarpið er orðið ohf eða eitthvað álÃka. Það þýðir að fækkað er um nokkra millistjórnendur og peningarnir sem sparast leggjast oná laun nokkurra yfirmanna.
Jafnframt hefur “nýja” fyrirtækið þá yfirlýstu stefnu að auka enn hlutfall “Ãslenskrar dagskrárgerðar”. Það þýðir á mannamáli að við megum búast við enn fleiri beinum útsendingum frá Ãslandsmótinu à hniti og blaki – enda fást þá margar ódýrar mÃnútur af “Ãslensku efni”. Stuð!
à fjölskylduboði à dag var staðhæft à mÃn eyru að RÚV skilgreindi útsendingar frá Formúlunni sem “innlenda dagskrárgerð” þar sem þar væri þulur à stúdÃói að lýsa. Gaman væri að vita hvort þetta sé rétt.
# # # # # # # # # # # # #
Ef marka má einkabankann, er ég ekki búinn að fá launin mÃn fyrir þessi mánaðarmót. Það er ergilegt à ljósi þess að hinar og þessar greiðslur eru gjaldfærðar alveg à mánaðarbyrjun – og það má treysta þvà að bankinn rukkar sem mest hann má fyrir allar framúrkeyrslur.
Megi Moggabloggið lenda à sjóðþurrð!

April 2nd, 2007 at 00:22
Þetta væri vissulega ný nálgun à innlendri dagskrárgerð. Ég hugsa að stjórnendur á Sýn séu nokkuð nálægir með þessa skilgreiningu þar sem allt þus misvitra Ãþróttafréttamanna yfir beinum útsendingum á hinum og þessum leikjum yrði þá átómatÃskt innlend dagskrárgerð.
April 2nd, 2007 at 01:51
Ég hef heyrt þetta oft varðandi Formúluna. Bæði vegna þess að oft er viðmælandi à myndveri fyrir keppni og eftir og umræður á Ãslensku à sjónvarpi eru innlend dagskrárgerð.
April 2nd, 2007 at 09:41
Það er mjög skrýtið að þessari ásökun Hags Hafnarfjarðar skuli hafa verið sjónvarpað án frekari athugunar. Eftir þvà sem mér skildist á bæjarstjóranum á Rás 1 hafa 300 manns nýskráð sig til heimilis à Hafnarfirði frá 1. desember sl. og 180 frá þvà að kjördagur var ákveðinn. à þessum tölum, sem ég fæ ekki séð að séu úr takti við almenna fólksfjölgun à bænum sÃðastu ár, eru væntanlega allmörg börn, svo ég veit ekki hvar HH ætla að finna þessa 700 kjósendur.