Bakkelsi

Henry Birgir, aðalíþróttafréttamaður Fréttablaðsins, er skrítin skrúfa. Fáir menn í hans stétt eru jafnóvinsælir hjá stuðningsmönnum margra félaga, enda hefur hann varpað fram allnokkrum drullubombunum - nú síðast skrifaði hann makalausa grein um handboltadeild Hauka, sem spáð var miklum hrakförum, falli og gjaldþroti.

Henry Birgir bloggar á Vísisvefnum og birtir þar m.a. ítarlegri greinargerðir um leiki en þær sem birtast í prentútgáfu blaðsins. Það er athyglisverð lesning. Í ljós kemur að helsti mælikvarði Henrys Birgis á gæði íþróttakappleikja er sá hvort hann fær gott kaffi, snúða og vínarbrauð í blaðamannastúkunni. Hann gefur leikjum t.a.m. einkunn fyrir það hversu duglegir heimamenn séu við að ryðja í hann kökum.

Þetta er skemmtileg og fersk nálgun í blaðamennsku. Hvernig væri ef umsjónarmenn menningarsíðunnar tækju upp sömu taktík og felldu inn í myndlistar- og leiklistardóma sína einkunnagjöf um snitturnar og hvítvínið í frumsýningarpartýinu.

Sömuleiðis gætu almennir fblaðamenn bætt slíkum upplýsingum inn í fréttir sínar. “Á blaðamannafundinum kynnti ráðherra niðurstöður starfshópsins. Skýrslan reyndist mikil að vöxtum, en það sama verður ekki sagt um kaffibrauðið sem boðið var uppá í Ráðherrabústaðnum. Það voru þurrar tebollur og staðið kaffi. Þurfti blaðamaður meira að segja stoppa við í sjoppu og kaupa sér pylsu að fundi loknum - hversu ömurlegt er það!!!”

Ekki?

# # # # # # # # # # # # #

Í Fréttablaðinu í morgun eru birtar nokkrar setningar sem hafðar eru eftir mér um tillögur Björns Bjarnasonar um varaliðssveitir lögreglunnar. Eitthvað sagði ég nú við blaðamanninn um að til þessa hefðu sveitir af þessu tagi einkum falist í því að Heimdellingar væru vopnaðir kylfum og þeir látnir berja á pólitískum andstæðingum.

Sú tilvitnun rataði ekki inn í blaðið.

Í dag er 30.mars. Þá mæta allir góðir menn á þessa samkomu. Þarna verða krásir á borðum, en Moggabloggið étur það sem úti frýs.

4 Responses to “Bakkelsi”

  1. SHH Says:

    “[Stefán Pálsson] segir að við erfiðar aðstæður sé augljóslega betra að vera með öfluga og vel æfða lögreglusveit en ekki hóp viðvaninga. Með þessu sé lítið gert úr störfum lögreglumanna.”

    Forvitnilegt og nokkuð óvænt að sjá að þér þykja hugmyndir BB um 240 manna varalið ekki nógu metnaðarfullar. Þetta skilur auðvitað hver lesandi sem svo að þú teljir nauðsynlegt að vera með þrautþjálfaða lögreglusveit og að ekkert svona varaliðshúmbúkk dugi til.

    Fyrirsögnin á fréttinni hefði auðvitað átt að vera “Stefán Pálsson telur hugmyndir um varalið metnaðarlausar” eða jafnvel “Friðarsinni Íslands vill enga viðvaninga í varalið ríkislögreglunnar”.

    Ég hugsa að þú hafir reddað helginni hjá BB með þessum kommentum.

    Tíhí.

  2. kolbeinn Says:

    Þú hefur augljóslega aldrei verið blaðamaður. Hvað á maður að gera annað undir hrútleiðinlegum ræðum, eða yfir leikjum sem gætu svæft Íþróttaálfinn en að graðka í sig bakkelsi. Sé það ekki fyrir hendi bitnar það náttúrulega á gestgjöfunum. Á sama hátt velur maður sér banka eftir því hvort boðið er upp á kaffi í afgreiðslunni, jafnvel piparkökur eða annað góðgæti. Best er þó ef boðið er líka upp á mæru til að hreinsa staðna kaffibragðið úr munninum. Slíkir bankar njóta minna viðskipta og þar er um háa dráttarvexti á skuldum og yfirdráttum að ræða!

  3. steinn Says:

    Æj er nokkuð að því þó að blaðamaður fái aðeins að rasa út á blogginu sínu? Fínt, og nokkuð fyndið, að lesa þessar pælingar - svo má alveg halda því til haga að hann gefur leiknum sér einkunn og bakkelsinu sér, þannig að röfl um að gæði heimabakstursins ráði einkunnagjöf um leikinn sjálfan heldur ekki vatni.

    Annars skil ég ekki þetta uppþot í samb. við varaliðið…..það er eins og menn VILJI misskilja BB - bjóst ekki við því en neyðist til að vorkenna kallinum, get ekki séð annað en að þarna sé bara varalið á ferðinni, ef eitthvað stórt skyldi koma upp á, en ekki einhverskonar hermanna reserves gráir fyrir járnum enda ekki hægt að ímynda sér hvað þeir ættu að gera annað en að sitja uppi á stöð og éta kleinur.

  4. Guðmundur Björnsson Says:

    Sæll Stefán

    Held að Henry Birgir hafi eytt of miklum tíma í að lesa vefsíðuna Soccernet.com. Þar er öðru hverju grein sem heitir Insider og sá gaur fer á leiki og kommentar á þá og í lok greinar á eftir vali hans á manni leiksins kemur Food Watch þar sem hann kommentar á veitingarnar til blaðamannanna. Ef mig minnir rétt hefur hann verið ánægðastur með matinn hjá Chelski. Þetta “kryddar” auðvitað umfjöllunina.

Leave a Reply