Tími til að tengja?

Jæja, þá er komið að nýrri tengigátu.

Spurt er hvaða dægurlag tengir saman:

i) Marilyn Morrison

ii) Írska vögguvísu

iii) Damon Gough

iv) Shakespears Sister

og

v) Sturlaðan aðdáanda Michaels Jacksons

Og svariði nú - með eða án rökstuðnings…

# # # # # # # # # # # # #

Samkvæmt Wikipediu voru síðustu bandarísku hermennirnir hraktir frá Víetnam á þessum degi 1973. Megi þess verða skammt að bíða að Moggabloggið verði hrakið af netinu!

2 Responses to “Tími til að tengja?”

  1. Örn Úlfar Sævarsson Says:

    Come on Eileen?

  2. Jón Says:

    Síðustu bandarísku hermennirnir fóru af þaki sendiráðsins í Saigon 30. apríl 1975.

Leave a Reply