Come on Eileen

Auðvitað vafðist þetta ekki fyrir skörpum lesendum. Örn Úlfar bar kennsl á Come on Eileen eins og skot. Tengingarnar eru annars þessar:

i) Lagið fjallar að miklu leyti um goðsögnina Johnny Ray, sem er nafngreindur í upphafslínunum. Marilyn Morrison var gift honum.

ii) “Toora Loora Looral” er sungið í viðlaginu, en það er írsk barnagæla.

iii) Damon Gough er vitaskuld Badly Drawn Boy, en hann hefur gert sína útgáfu af laginu.

iv) Systir söngkonunnar úr Shakespears Sister lék Eileen í myndbandinu.

v) Lagið fór á topp bandaríska vinsældarlistans og ruddi þar úr vegi Billy Jean með Michael Jackson, sem samið var um óðan aðdáanda.

Hvað með að hlusta bara á lagið núna… 

Megi Moggabloggið hljóta viðlíka döpur örlög og vesalings Johnny Ray!

One Response to “Come on Eileen”

  1. Erling Says:

    Þetta finnur maður bara beint á google… ekki mikil kúnst.

Leave a Reply