Auglýsingasamkomulagið

Stjórnmálaflokkarnir eru búnir að koma sér saman um auglýsingaþak. Reyndar er þakið ansi hátt, eins og bent hefur verið á 28 milljónirnar eiga bara að dekka birtingarkostnað í landsfjölmiðlum. Ekkert er hins vegar sagt við því hversu miklu er sólundað í framleiðslukostnað, auglýsingar í landsmálablöðum, flettiskilti, strætóauglýsingar, blöð og bæklinga inn á hvert heimili eða símhringingar.

Er samkomulagið þá tilgangslaust? Nei, svo sannarlega ekki.

Ábatinn af samkomulaginu er sá að flokkarnir hafa komið sér saman um mælingu á auglýsingakostnaði. Það þýðir að Gallup mun senda frá sér reglulegar tilkynningar í og eftir kosningabaráttuna um áætlaðan auglýsingakostnað - sem ætla má að verði tiltölulega lítt umdeildar. Fyrir síðustu kosningar hafa menn verið að reyna að slumpa á þessar tölur, en flokkarnir alltaf þrætt fyrir þær ágiskanir og sumir flokkar gefið upp tölur sem allir vissu að væru óraunhæfar. Að þessu leyti er samkomulagið til mikilla bóta.

Legg til að flokkarnir setji næst bann við auglýsingum á Moggablogginu!

11 Responses to “Auglýsingasamkomulagið”

  1. stebbikalli Says:

    Ég vil nota tækifærið og óska þér til hamingju með Kevin Blackwell.
    Við skulum sjá hvort hann geti ekki lappað aðeins upp á brákað Luton-liðið.

  2. SHH Says:

    Fyrir 28 milljónir fást sirka 120-140 heilsíður í stóru dagblöðunum þremur (með hressilegum magnafslætti). Sem er álíka og lítill banki eða sparisjóður eyðir í birtingar í þessum blöðum á heilu ári. Nema hvað flokkarnir dúndra þessu út á 1-2 mánuðum. Ég er vonandi ekki einn um það að svitna við tilhugsunina um hvað maður er að kosta beint og óbeint með skattpeningum, vaxtagreiðslum og færslugjöldum…

  3. Sverrir Says:

    Þetta er gríðarhá upphæð og til marks um að hagsmunir Framsóknarflokksins hafa ráðið of miklu. Meira að segja sjálfstæðismenn vildu hafa þakið lægra.

  4. kolbeinn Says:

    Ekki skil ég í þér Stefan að vera að agnúast yfir því að landsmálablöðin séu ekki með í þessu. Betur hefði verið að auglýsingar hefðu verið bannaðar allsstaðar nema í þeim. Og þá kannski sérstaklega í Skessuhorni.

  5. SHH Says:

    Að flokkarnir setjist niður og ákveði að það sé hæfilegt að hver þeirra eyði dágóðum haug af tugmilljónum á 1-2 mánaða tímabili er náttúrlega súrrealískur peningaaustur. Hvaða heildarupphæðir er annars verið að tala um í þessu samhengi, 50-100 milljónir per flokk, sinnum fimm? Aí, karamba!

  6. Guðmundur Björnsson Says:

    Sæll Stefán
    Vitandi af barmmerkjavélinni góðu, ert þú maðurinn á bak við Zero Framsókn?

  7. Einar Örn Says:

    Án þess að hljóma einsog einhver fanatískur lesandi, þá er Stefán búinn að viðurkenna það að vera maðurinn á bak við barmerkin alræmdu.

    http://kaninka.net/stefan/2007/03/26/stjornarmyndunarumbo%c3%b0

  8. Elvis Aarnar Knútsson Says:

    Híhí - tek undir þetta hjá Kobba; takmörkum auglýsingar framboða við Skessuhorn! Hands down besta hugmynd sem ég hef heyrt.

  9. SHH Says:

    EOE:

    Hvað segirðu um að ég taki bara við blogginu þínu alfarið og hirðir mína krúnu hérna sem sníkjubloggari numero uno? Þar með losnar þú undan þreytandi skyldustörfum við eigið blogg og ég öðlast loksins heimili eftir áralangt ráf á sníkjuslóð? Held að þetta yrði nokkuð erfiðislaus díll fyrir báða… :-)

  10. SHH Says:

    “…og ÞÚ hirðir…” átti þetta víst nú að vera. Sorrí.

  11. Daði Says:

    Munu ekki bara hinar og þessar “hreyfingar” fara að auglýsa gæði og lesti stjórnmálaflokka.

    Og vera algjörlega fyrir utan þetta samkomulag?

Leave a Reply