Comments on: Lélegt pólitískt minni

By: Einar Örn
Ég er ekkert sérstaklega reiður.  Ég benti bara á að það væri hæpið að segja að “flestir” hægri kratar hefðu gengið til liðs við Íhaldið (ég er allavegana ekkert sérstaklega einmanna innan Samfylkingarinnar) og svo að ég gæti ekki skilið hvernig jafnaðarmenn gætu samsavarað sér innan Sjálfstæðisflokksins, en kvörtuðu svo yfir samstarfi við aðra jafnaðarmannaflokka á Norðurlöndunum.

En reiður er ég ekki.  Til þess er veðrið alltof gott.

By: pallih
Getur SHH ekki endurvakið kreml.is… það var svo helvíti skemmtilegt seinast.

By: kolbeinn
Sammála síðasta ræðumanni. Ætlaði að fara að óska SSH til hamingju með að það ætti að fara að steypa götu hér í borginni, hans áhugamál. Eina leiðin til þess var í gegnum blogg Stefáns.

Hins vegar skil ég ekki þessa reiði margra hérna við ummælum SSH. Eru það virkilega nýjar fréttir fyrir fólki að margri eðalkratar hafi gengið í Sjálfstæðisflokkinn?

By: SHIFT-3
Nafni! Nú verður ekki undan því vikist lengur - þú verður að byrja að blogga. Öll þessi sníkjublogg eru sönnun þess.

By: SHH
Ég sagði nú ekki annað en að “flestir hörðustu hægrikratarnir” og “mörg okkar” hefðu gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn kringum aldamótin. Og að ástæðan væri sú að þar fyndum við fleiri skoðanabræður og -systur en í Samfylkingunni. Það var og er eðlileg þróun. Sækjast sér um líkir og allt það.

Það skal engan undra þótt hægrikratar telji sig eiga fátt sameiginlegt með frönskum og skandinavískum sósíalistum og halli sér vonsviknir upp að öðrum flokkum en Samfylkingunni. En nú gerist það síðan að umhverfissinnaðir allaballar með einkavæðingarfóbíu fara sömu leið úr Samfylkingunni, beygja bara til vinstri við kjörklefann og haka við VG. Nema hvað.

Það sýnist augljóst af fylgistutlunum sem enn hanga utan á Samfylkingunni að þar reitist leifturhratt af bæði frá vinstri og hægri. Ætli það verði ekki á endanum banabiti Samfylkingarinnar að bjóða hvorki upp á stefnu sem höfðar almennilega til vinstri eða hægri.

By: Þórður
Í alvöru talað: Hvernig getur krati verið fúll yfir því að Samfylkingin skilgreini sig sem krataflokk og líti þess vegna á norræna krataflokka sem systurflokka sína?

Gakktu bara í Sjálfstæðisflokkinn, SHH. Þar áttu heima.

By: Einar Örn
“Hvað hef ég fyrir mér í þessu? I was there, man!”

Já, ég efa það ekki að þú og einhverjir vinir hafi gengið úr flokknum.  En það að segja að “flestir” hægri kratar hafi hætt að styðja Alþýðuflokkinn / Samfylkinguna þykir mér afskaplega hæpið.

Ég hef svo aldrei geta skilið hvernig menn sem skilgreina sig sem hægri sinnaða jafnaðarmenn geta gengið í flokk með Hannesi HG, Sigurði Kára, Birni Bjarna og fleirum.  Flokkur sem inniheldur fólk sem samsvarar sér með Thatcher og Repúblikönum og fögnuðu þegar að GWB vann kosningarnar árið 2000.

Samfylkingin er vissulega gallaður flokkur, en flest er þó skárra en Íhaldið.

By: SHH
Hvað hef ég fyrir mér í þessu? I was there, man!       “Hreinræktaðir” hægrimenn í einhvers konar alþjóðlegum skilningi eru ósköp fáir hér á landi. Íslenskir hægrimenn eiga allflestir fátt sameiginlegt með erlendum hægrimönnum. Íslenskir hægrimenn standa mun nær krötum vítt og breitt um heimskringluna í skoðunum. Það er fátt við Sjálfstæðisflokkinn sem minnir á systurflokka hans erlendis. Enda ríkir til dæmis víðtæk samstaða milli allra flokka að hér sé rekið blandað hagkerfi með öflugu velferðarkerfi og sterku samfélagsneti. Útfærslan er mismunandi milli flokka og mismikill áhugi er til dæmis á einkavæðingu velferðarverkefna, en um heildarútkomuna sjálfa ríkir merkilega góð sátt. Svo er munurinn milli stefnu íslensku stjórnmálaflokkanna auðvitað óskaplega lítill í allri raun og veru. Það er einna helst að sósalíski arfurinn í VG-stefnunni skeri sig frá miðjumoðinu hjá öllum hinum.

By: Einar Örn
Væri ekki ráð að vitna í einhvern svo maður viti við hvern þú ert að þræta, Shift-3?

Og SHH segir:

“flestir hörðustu hægrikratarnir farnir að kjósa og styðja Sjálfstæðisflokkinn leynt og ljóst”

Hvað hefurðu fyrir þér í þessu?   Flestir?  Ef að menn hafa eitthvað útá það að setja að Samfylkingin stilli sér upp með öðrum krataflokkum á Norðurlöndunum, eru ekki einfaldlega talsverðar líkur á að viðkomandi einstaklingar séu ekki hægri kratar, heldur einfaldlega hreinræktaðir hægri menn?

By: SHH
Það liggja síðan tvær augljósar höfuðástæður fyrir því að um aldamótin voru flestir hörðustu hægrikratarnir farnir að kjósa og styðja Sjálfstæðisflokkinn leynt og ljóst. Annars vegar If you can’t beat them, join them-tilhneigingin. Hins vegar sú staðreynd að vinstrikratarnir og allaballagengið höfðu löngu yfirtekið Samfylkinguna. Því róti fylgdu óbærilegar ástarjátningar nýrrar forystu Samfó í garð sósíalista á borð við Lionel Jospin og Keynes, ásamt því sem losti flokksins í garð vinstrisinnuðu jafnaðarmannaflokkanna á Norðurlöndum varð á endanum ógeðfelldur. Og þá kom engin önnur málamiðlun til greina fyrir mörg okkar heldur en að halla okkur að eina hægrikrataflokknum sem eftir var, Sjálfstæðisflokknum.