Lélegt pólitískt minni
Óskaplega hafa menn lélegt pólitískt minni ef þeir geta talið sér trú um að stjórnarmyndun Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins 1991 hafi verið óvænt og ekki verið í umræðunni fyrir kosningarnar.
1991 gaf Alþýðuflokkurinn sér að ríkisstjórnin myndi falla. Það kom skýrt fram í kosningabaráttunni. Þegar Jón Baldvin var spurður beinlínis út í það hvort hann sæi fyrir sér stjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks eftir kosningar svaraði hann á þá leið að Alþýðuflokksmenn ættu “mjög góðar minningar um Viðreisnarstjórnina”.
Kunningi minn studdi Alþýðuflokkinn í þessum kosningum en varð óskaplega sár þegar Viðeyjarstjórnin var mynduð - við félagarnir hlógum bara að honum, því þessu hafði verið margspáð.
Þeir sem kusu Alþýðuflokkinn 1991 gerðu það í fullri meðvitund um að samstarf með Sjálfstæðisflokknum væri líklegasti kosturinn. Það er fáránlegt að reyna að skrifa söguna upp á nýtt og á þá leið að komið hafi verið aftan að kjósendum í það skiptið.

March 27th, 2007 at 14:11
maður er náttúrlega skíthræddur núna. Sérstaklega ef Sjálfstæðisflokknum dugar Samfylkingin með sér í stjórn, vilja líklega hafa stærri meirihluta en minni.
March 27th, 2007 at 14:25
Ég tók virkan þátt í umræddri kosningabaráttu með Alþýðuflokknum og rekur ekki minni til annars en að flest okkar hafi sofnað vært um nætur við tilhugsunina um nýja Viðreisnarstjórn. Þótt mig reyndar gruni að villta vinstrið í flokknum hafi svo sem ekki sofið jafn rótt. Þegar leið á kjörtímabilið varð hins vegar ljóst að það hlutskipti að tosa Sjálfstæðisflokkinn til hægri í átt að auknu frjálsræði í samfélaginu og minnkuðum ríkisafskiptum af öllum hlutum átti eftir að reynast okkur þungur dráttur með tilheyrandi pilsnerfylgi, klofningi, flokkadráttum og fleiri spennandi hlutum… Sjálfseyðingarhvöt íslenskra jafnaðarmanna hefur löngum verið hömlulítil.
March 27th, 2007 at 14:35
Það liggja síðan tvær augljósar höfuðástæður fyrir því að um aldamótin voru flestir hörðustu hægrikratarnir farnir að kjósa og styðja Sjálfstæðisflokkinn leynt og ljóst. Annars vegar If you can’t beat them, join them-tilhneigingin. Hins vegar sú staðreynd að vinstrikratarnir og allaballagengið höfðu löngu yfirtekið Samfylkinguna. Því róti fylgdu óbærilegar ástarjátningar nýrrar forystu Samfó í garð sósíalista á borð við Lionel Jospin og Keynes, ásamt því sem losti flokksins í garð vinstrisinnuðu jafnaðarmannaflokkanna á Norðurlöndum varð á endanum ógeðfelldur. Og þá kom engin önnur málamiðlun til greina fyrir mörg okkar heldur en að halla okkur að eina hægrikrataflokknum sem eftir var, Sjálfstæðisflokknum.
March 27th, 2007 at 17:16
Væri ekki ráð að vitna í einhvern svo maður viti við hvern þú ert að þræta, Shift-3?
Og SHH segir:
“flestir hörðustu hægrikratarnir farnir að kjósa og styðja Sjálfstæðisflokkinn leynt og ljóst”
Hvað hefurðu fyrir þér í þessu? Flestir? Ef að menn hafa eitthvað útá það að setja að Samfylkingin stilli sér upp með öðrum krataflokkum á Norðurlöndunum, eru ekki einfaldlega talsverðar líkur á að viðkomandi einstaklingar séu ekki hægri kratar, heldur einfaldlega hreinræktaðir hægri menn?
March 27th, 2007 at 21:34
Hvað hef ég fyrir mér í þessu? I was there, man!
“Hreinræktaðir” hægrimenn í einhvers konar alþjóðlegum skilningi eru ósköp fáir hér á landi. Íslenskir hægrimenn eiga allflestir fátt sameiginlegt með erlendum hægrimönnum. Íslenskir hægrimenn standa mun nær krötum vítt og breitt um heimskringluna í skoðunum. Það er fátt við Sjálfstæðisflokkinn sem minnir á systurflokka hans erlendis. Enda ríkir til dæmis víðtæk samstaða milli allra flokka að hér sé rekið blandað hagkerfi með öflugu velferðarkerfi og sterku samfélagsneti. Útfærslan er mismunandi milli flokka og mismikill áhugi er til dæmis á einkavæðingu velferðarverkefna, en um heildarútkomuna sjálfa ríkir merkilega góð sátt. Svo er munurinn milli stefnu íslensku stjórnmálaflokkanna auðvitað óskaplega lítill í allri raun og veru. Það er einna helst að sósalíski arfurinn í VG-stefnunni skeri sig frá miðjumoðinu hjá öllum hinum.
March 27th, 2007 at 23:09
“Hvað hef ég fyrir mér í þessu? I was there, man!”
Já, ég efa það ekki að þú og einhverjir vinir hafi gengið úr flokknum. En það að segja að “flestir” hægri kratar hafi hætt að styðja Alþýðuflokkinn / Samfylkinguna þykir mér afskaplega hæpið.
Ég hef svo aldrei geta skilið hvernig menn sem skilgreina sig sem hægri sinnaða jafnaðarmenn geta gengið í flokk með Hannesi HG, Sigurði Kára, Birni Bjarna og fleirum. Flokkur sem inniheldur fólk sem samsvarar sér með Thatcher og Repúblikönum og fögnuðu þegar að GWB vann kosningarnar árið 2000.
Samfylkingin er vissulega gallaður flokkur, en flest er þó skárra en Íhaldið.
March 28th, 2007 at 01:23
Í alvöru talað: Hvernig getur krati verið fúll yfir því að Samfylkingin skilgreini sig sem krataflokk og líti þess vegna á norræna krataflokka sem systurflokka sína?
Gakktu bara í Sjálfstæðisflokkinn, SHH. Þar áttu heima.
March 28th, 2007 at 02:18
Ég sagði nú ekki annað en að “flestir hörðustu hægrikratarnir” og “mörg okkar” hefðu gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn kringum aldamótin. Og að ástæðan væri sú að þar fyndum við fleiri skoðanabræður og -systur en í Samfylkingunni. Það var og er eðlileg þróun. Sækjast sér um líkir og allt það.
Það skal engan undra þótt hægrikratar telji sig eiga fátt sameiginlegt með frönskum og skandinavískum sósíalistum og halli sér vonsviknir upp að öðrum flokkum en Samfylkingunni. En nú gerist það síðan að umhverfissinnaðir allaballar með einkavæðingarfóbíu fara sömu leið úr Samfylkingunni, beygja bara til vinstri við kjörklefann og haka við VG. Nema hvað.
Það sýnist augljóst af fylgistutlunum sem enn hanga utan á Samfylkingunni að þar reitist leifturhratt af bæði frá vinstri og hægri. Ætli það verði ekki á endanum banabiti Samfylkingarinnar að bjóða hvorki upp á stefnu sem höfðar almennilega til vinstri eða hægri.
March 28th, 2007 at 08:49
Nafni! Nú verður ekki undan því vikist lengur - þú verður að byrja að blogga. Öll þessi sníkjublogg eru sönnun þess.
March 28th, 2007 at 10:06
Sammála síðasta ræðumanni. Ætlaði að fara að óska SSH til hamingju með að það ætti að fara að steypa götu hér í borginni, hans áhugamál. Eina leiðin til þess var í gegnum blogg Stefáns.
Hins vegar skil ég ekki þessa reiði margra hérna við ummælum SSH. Eru það virkilega nýjar fréttir fyrir fólki að margri eðalkratar hafi gengið í Sjálfstæðisflokkinn?
March 28th, 2007 at 10:57
Getur SHH ekki endurvakið kreml.is… það var svo helvíti skemmtilegt seinast.
March 28th, 2007 at 13:03
Ég er ekkert sérstaklega reiður. Ég benti bara á að það væri hæpið að segja að “flestir” hægri kratar hefðu gengið til liðs við Íhaldið (ég er allavegana ekkert sérstaklega einmanna innan Samfylkingarinnar) og svo að ég gæti ekki skilið hvernig jafnaðarmenn gætu samsavarað sér innan Sjálfstæðisflokksins, en kvörtuðu svo yfir samstarfi við aðra jafnaðarmannaflokka á Norðurlöndunum.
En reiður er ég ekki. Til þess er veðrið alltof gott.