Stjórnarmyndunarumboð
Það er alltaf skringilegt þegar fólk byrjar að þylja upp afsakanir fyrir tapinu áður en sjálf keppnin hefur farið fram. Mér sýndist Heimdallarformaðurinn þó grípa til þess í Silfri Egils í dag.
Aðspurð um stöðu mála í skoðanakönnunum (sem er hugsanlega geldasta pólitíska umræða sem til er) fór hún strax að fabúlera á þeim nótum að líklega myndu vinstrimenn komast til valda eftir að Ólafur Ragnar myndi með bellibrögðum færa þeim stjórnarmyndunarumboðið eftir kosningar. Við þetta bætti hún einhverju á þá leið að það yrði algjör skandall ef formaður stærsta stjórnmálaflokksins fengi ekki umboðið að kosningum loknum.
Ég upplifði Déjá-vú tilfinningu og upp í hugann komu hin árvissu Reykjavíkurbréf þar sem Styrmir ergir sig yfir því að Kristján Eldjárn hafi falið kommúnista stjórnarmyndunarumboð í gamla daga. En Sjálfstæðismenn eru greinilega strax farnir að tala sig upp í að möguleg brottför þeirra úr Stjórnarráðinu verði Ólafi Ragnari að kenna.
En gaman væri að fá að vita eftir hvaða reglum Sjálfstæðismenn telja eðlilegt að stjórnarmyndunarumboð sé veitt? Ef marka má Heimdallarformanninn, á stærðarröð flokka ein að ráða. Þá skiptir ekki máli hvort ríkisstjórn stendur eða fellur, hvort sitjandi forsætisráðherra kemur úr stærsta flokknum eða ekki - stærsti flokkurinn á að fá umboðið fyrst, þá sá næststærsti og svo koll af kolli.
Þessi vinnuregla er afar einföld og myndi gera hlutverk forseta við stjórnarmyndun afar veigalítið, nema þá kannski til að ákveða hversu langan tíma hver flokksforingi hefði til ráðstöfunar - og svo hugsanlega til að bregðast við þegar allir flokkar væru búnir að reyna einu sinni.
Gallarnir við að fylgja þessari reglu stíft eftir eru hins vegar margir og býsna augljósir.
Gaman væri að vita hvort Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðna stefnu í þessu máli - eða hvort formaður Heimdallar var að lýsa prívatskoðun. Mun höfundur Reykjavíkurbréfa t.d. sætta sig við það ef kommúnista verður falið stjórnarmyndunarumboð í krafti stærðar flokks hans - eða gildir reglan bara fyrir lýðræðisflokkana? Hvað segja bændur nú?
# # # # # # # # # # # # #
Borgarmálapólitíkusinn Marsibil er foxill út í barmmerkin sem ég er að dunda mér við að pressa fyrir framan sjónvarpið þessi kvöldin. Hún spyr sig hvernig standi á því að Vinstri græn eyði svona mikilli orku í að berja á Framsóknarflokknum?
Stundum eru augljósustu skýringarnar réttastar - þótt það fari reyndar framhjá Marsibil í þessari greiningu hennar - Vinstri grænum er einfaldlega illa við Framsóknarflokkinn og allt það sem hann stendur fyrir. Það er nú ekki flóknara en svo.
Og auðvitað er þessi afstaða ekki frumleg. Hún er klassísk.
Af hverju ekki netheimar með… ZERO Moggablogg?
(Viðbót 28.3.: Eyþór Arnalds hefur greinilega þungar áhyggjur af þessari barmmerkjagerð og hver gæti staðið á bak við hana.)

March 26th, 2007 at 17:35
Æi þetta er svo sorglegt með þessi merki. Þó ég búist við að þetta sé eitthvað prívatdæmi en ekki gert á vegum Vinstri-Grænna.
Eða ég vona það.
Þú ættir kannski að dunda þér við að kynna þér Framsóknarflokkinn án fordóma og spjalla við Framsóknarfólk og sjá svo til hvort þér sé stætt á að vera ,,einfaldlega illa við Framsóknarflokkinn…”
Svo er það náttúrulega annað mál ef þú einfaldlega getur ekki liðið öðru fólki að viðra skoðanir sem samræmast ekki fullkomlega þínum eigin.
Þá ertu jafn sorglegur og barmmerkin þín.
En ég vona ekki.
March 26th, 2007 at 17:49
Ég vona að það hrykkti ekki mikið í heimsmynd þinni Barði minn þótt ég upplýsi þig um það að einn megintilgangur stjórnmálaflokka er að komast til valda - og eftir efnum og aðstæðum að halda öðrum flokkum frá völdum.
Ætli það megi ekki gera ráð fyrir að Framsóknarmönnum þyki álíka brýnt að halda Vinstri grænum frá völdum og VG-fólki þykir að koma Framsóknarflokknum úr valdastólum. Það er ekki merki um fordóma, skort á umburðarlyndi eða til marks um sorglegt hugarfar.
Hvort merkin eru velheppnuð mun líklega sjást best af því hvort fólk mun taka sér þau og ganga með. Fyrir síðustu kosningar voru “Aldrei kaus ég Framsókn”-merkin rifin út í þúsundavís og öll búin löngu fyrir kjördag. Það verður fróðlegt að sjá hvernig viðtökur þessi merki fá.
March 26th, 2007 at 18:03
Jæja, ég þakka svarið sem snýst að engu leiti um það að þér sé ,,einfaldlega illa við Framsóknarflokkinn”
Það er allt annar hlutur að þú viljir að Vinstri-Grænir komist í ríkisstjórn.
Það er einmitt ekki allir þessir hlutir sem þú telur upp (fordómar, skortur á umburðarlyndi og sorglegt hugarfar) Það er bara eðlilegt hugarfar stuðningsmanna stjórnmálaflokka.
Hitt að bölsóttast útí fólk sem hefur aðrar skoðanir en þú sjálfur er annar handleggur og ég var að benda þér á það.
Vona að það hrykkti ekki í fílabeinsturninum þínum við þessar uppljóstranir mínar Stefán minn.
March 26th, 2007 at 18:27
Ég er ekki viss um að ég skilji þetta andsvar. Eigum við ekki bara að skrifa það á mánudagsþreytu.
Ég get skilið það þegar t.d. Framsóknarmenn reiðast slagorðum á borð við “Drekkjum Valgerði” - eða e-ð álíka og telja það ómálefnalegt níð. Hér er hins vegar um að ræða pólitískt slagorð sem segir það eitt að tiltekinn flokkur eigi að standa utan ríkisstjórnar. “Fellum ríkisstjórnina” - er eins eðlilegt pólitískt slagorð og hægt er að hugsa sér í kringum kosningar, ekki satt?
En hvers vegna vilja menn fella ríkisstjórnir eða bola tilteknum pólitískum flokkum frá völdum? Ástæðurnar fyrir því hljóta að vera pólitískar og eiga sér málefnalegar forsendur. Þess vegna er það engin tilviljun að slagorðið á barmmerkinu beinist gegn Framsóknarflokknum en ekki t.d. Samfylkingunni.
Er ekki öllum ljóst að það er verulegur málefnalegur ágreinungur milli VG og Framsóknar? Báðir flokkar hafa sakað hinn um að standa fyrir háskalegri stefnu. Ég hélt að það hefði ekki farið fram hjá nokkrum manni.
Annars var það Framsóknarmaðurinn Tryggvi Þórhallsson sem átti eitt sterkasta pólitíska slagorð íslenskrar stjórnmálasögu: “Allt er betra en íhaldið!” Það er slagorð sem ætti vel heima á barmmerki - og var lengi vel í heiðri haft af ungum Framsóknarmönnum áður en flokkurinn ákvað að gera sig nánast að deild í Sjálfstæðisflokknum.
March 26th, 2007 at 22:36
Við erum sammála um þetta allt saman.
Það EINA sem ég var að benda þér á er að þetta með að vera illa við framsóknarflokkinn - gætiru auðveldlega lagað með því að kynna þér flokkinn og spjalla við framsóknarfólk.
Vænsta fólk sem borðar ekki börn og vill ekkert öðruvísi hluti en aðrir Íslendingar.
March 26th, 2007 at 23:07
Að búa á Íslandi undir stjórn Framsóknarflokksins síðustu 12 árin er samkvæmt mínum bókum alveg næg viðkynning til að byggja á rökstudda afstöðu.
March 26th, 2007 at 23:33
Nú? Ég hef heyrt að margir framsóknarmenn hafi smekk fyrir safaríkum barnasteikum! Og séu einmitt mjög öðruvísi í hvers kyns löngunum… *nudge* *nudge*
March 26th, 2007 at 23:37
Let the bastards deny it.
March 27th, 2007 at 00:33
Sæll félagi!
Gaman væri að vita - ekki síst með hliðsjón af merkinu góða sem örugglega mun slá í gegn - hvort þér hugnast betur:
a) þriggja flokka vinstristjórn með framsókn
b) tveggja flokka stjórn með íhaldinu
Það þarf talsvert mikið að breytast til að þetta verði ekki þeir tveir kostir sem þið (rétt eins og Samfylkingin) munið standa frammi fyrir, enda berum orðum nánast búið að útiloka Frjálslynda flokkinn.
Með kveðju.