NIMBY

Frá því að við Steinunn tókum saman, höfum við farið margoft austur á Norðfjörð og drukkið ófáan kaffibollann (eða bjórkrúsina) hjá vinum og ættingjum. Eitt algengasta umræðuefnið - fyrir utan almennt kurteisisspjall - hefur verið stóriðjumálið: álverið á Reyðarfirði og Kárahnjúkavirkjun. Við höfum svo sem ekkert verið að karpa um þessi mál, enda það ekkert markmiðið. Í sumum tilvikum hefur meira að segja verið þegjandi samþykki um að láta efnið kyrrt liggja.

Eitt algengasta umkvörtunarefni þeirra sem stutt hafa framkvæmdirnar er að fólk á höfuðborgarsvæðinu líti sér ekki nær. “Hvers vegna hafa allir fyrir sunnan svona miklar skoðanir á framkvæmdunum hérna? Af hverju mótmælir enginn álversstækkun í Hvalfirði eða í Straumsvík? Hvers vegna amast enginn við jarðgufuvirkjunum á Hellisheiði eða öllum háspennulínunum sem rústa umhverfinu?” - Þessi þögn umhverfisverndarsinna um framkvæmdir á SV-horninu hefur farið ósegjanlega í taugarnar á fólkinu fyrir austan og verið talin til marks um meiriháttar hræsni.

Allar þessar ræður rifjast upp fyrir mér þegar andstæðingar álversins í Straumsvík eru nú sakaðir um NIMBY-isma, það er: að amast einungis við framkvæmdum sem eigi sér stað í bakgarðinum heima hjá þeim.

Það er greinilega vandratað hjá álversandstæðingum. Ef þeir andæfa álverum í fjarlægum landshlutum eru þeir hræsnarar. Ef þeir mótmæla þeim heimafyrir eru þeir sérgæskupúkar.

Sjálfur er ég alveg til í grafa Moggabloggið í bakgarðinum mínum… djúpt í jörðu.

15 Responses to “NIMBY”

  1. Mamma Says:

    Ekki gera það. Það mun örugglega ekkert vaxa þá þeim bletti þar sem moggabloggið er undir!

  2. Geir Says:

    Þetta er mjög valid hjá þessu fólki, á sama tíma og fólk mótmælti kárahnjúkum og hinni þarna sem ég er búinn að gleyma hvað hét. Þá var endalaust stækkað við Norðurál og aldrei heyrðist múkk.

  3. Stefán Says:

    Í hugum flestra hætti Hvalfjörðurinn að vera til daginn sem gatið var opnað.

  4. Sverrir Says:

    Framkvæmdum við Norðurál var mótmælt á sínum tíma en auðvitað heyrir fólk aldrei múkk ef það er ekki að hlusta.

    Svo má líka vera að það séu rök fyrir því hvers vegna tilteknum virkjunum er mótmælt frekar en öðrum. Það er t.d. hugsanlegt að umhverfissinnar hafi verið á móti Kárahnjúkavirkjun vegna þess að hún fékk einkunnina E í rammaáætlun um virkjanir (var sem sagt versti eða næstversti kostur í virkjanamálum frá umhverfissjónarmiði) fremur en að þeir hati Austfirðinga sérstaklega.

  5. móheiður Says:

    mig langar að spyrja hvað þú hefur á móti moggablogginu…ekki það að ég sé slíkur. En ég les stundum þitt blogg og finnst þessar katóísku setningar fyndnar. Myndirðu vilja Þjóðviljablogg?

  6. Mamma Says:

    Það er alveg út í hött að fara að rökræða um það þegar einhverju er mótmælt af hverju þessu og hinu hafi ekki líka verið mótmælt. Þeir sem mótmæla virkjunum (eða stríði) eru venjulega fólk í fullri vinnu og geta því sjaldnast komið því við að mótmæla öllu sem aflaga fer. Auk þess er ekki alltaf auðvelt að koma mótmælum á framfæri í fjölmiðlum. Ég minnist þess a.m.k að hafa mætt á nokkra mótmælafundi gegn álverinu í Hvalfirði. Veit ekki hvort Geir var þar.

  7. Ágúst Says:

    Í fyrsta lagi eru umhverfisáhrifin af virkjunum fyrir Straumsvíkurstækkun og Reyðarál ólík. Það hljóta allir að geta sammælst um.

    Í öðru lagi getur þú verið á móti álverinu fyrir austan en ekki verið á móti stækkun í Straumsvík. Sbr. komment Sverris. Þú getur verið á móti *sumum* álversframkvæmdum en fylgjandi öðrum.

    Í þriðja lagi, að sama skapi, getur þú verið á móti stækkun í Straumsvík á þeirri forsendu einni að “álver eiga ekki heima í byggð”. Að neita því að á þessu hafi verið keyrt af Pétri og félögum í Sól í straumi er hreinlega að stinga höfðinu í sandinn. NIMBYismi er hluti af umræðunni í Hafnarfirði. Fjölmargir eru á móti stækkuninni af þeirri einu raunverulegu ástæðu að þeir vilja þetta ekki í “bakgarðinum sínum” á Holtinu eða Völlunum.

    Í fjórða lagi, það að nimbyismi sé hluti af umræðunni þýðir ekki að ALLIR sem séu á móti stækkuninni séu blindaðir af henni. Hún er hinsvegar hluti af henni og ef þú drykkir fleiri kaffibolla í Hafnarfirði yrðir þú hennar áþreifanlega var.

  8. Stefán Says:

    Já Ágúst, ég er ekki fastagestur á Súfistanum í Hafnarfirði og upplifi þess vegna ekki þessa lókal-hafnfirsku umræðu - ég held líka að hún snerti mjög fáa landsmenn. Þeir eru hins vegar miklu fleiri sem hafa skoðun á málinu, sbr. skoðanakannanir sem gerðar hafa verið og sýna að furðumargir taka afstöðu til málsins. Mér er mjög til efs að sá rúmi helmingur þjóðarinnar sem tekur afstöðu gegn stækkuninni geri það á einhverjum NIMBY-ískum Gaflaraforsendum. Ekki satt?

  9. Halli Says:

    ég hélt að menn væru annað hvort með öllum virkjunum og álverum eða á móti öllu raski. annað hvort notuðu menn bíl eða færu fótgangandi allra sinna leiða.

    sumt fólk virðist ekki meðvitað um að heimurinn sé svartur og hvítur.

    allt í heiminum er bara annað hvort algerlega eða alls ekki neitt. sjáðu bara blog.is

  10. Eva Says:

    Ég hef nú aðallega verið gagnrýnd fyrir áhuga minn á umhverfismálum (hvort sem er nær mér eða fjær) á þeirri forsendu að ég fari aldrei í útilegur.

  11. SHH Says:

    Ég tek í fyrsta lagi undir með Halla í því að það vantar sárlega fleiri og háværari svarthvít sjónarmið. Ekki af því að það sé endilega upplýstari (sennilega þvert á móti), heldur er hún bara svo miklu skemmtilegri. Heimurinn er að verða svo andskoti hundleiðinlegur með öllu þessu pésémengaða aðgátskalhöfðínærverusálarmiðjumoðsmausi.

    Í annan stað held ég nú bara hreinlega að langflestir Íslendingar séu hlynntir því að virkja náttúruöflin tvist og bast, en andsnúnir virkjunum sem hafa meiriháttar náttúruspjöll í för með sér og andstyggilega sjónmengun eins og röra- og línudraslið á Hellisheiði, verksmiðjugettóið í miðjum Hafnarfirði og risavaxin uppistöðulón.

    Númer þrjú er það samt ekki nema eðlilegt að heimamenn á hverjum stað andæfi gegn hverju því sem þeir telja utanaðkomandi og vitaskuld óumbeðin afskipti. Þetta er eitt af náttúrulögmálunum í samfélagi mannanna, rétt eins og flestir áberandi aðilar í virkjanaumræðunni eru á harðaþönum við að vinna sínum flokkum framgang — nema auðvitað Samfóliðið hvers eigin óhamingju verður allt að vopni.

    Að endingu er það ævaforn lenska í hvers kyns orðræðu pólitískri að ákveðnir hlutir eru blásnir út úr öllu raunhæfu samhengi til þess að ná sem alvarlegustu og þyngstu höggi á andstæðinginn. Í slíkum níðstríðum skiptir áfangastaðurinn — fall andstæðingsins — öllu og ferðalagið eða aðförin sjálf litlu sem engu. Með svona trixum hafa vinstrimenn ætíð lamið á hægrimönnum og vingast beint eða óbeint við blóðugustu harðstjóra og svívirðilegustu hugmyndakerfi og það nákvæmlega sama má segja um hægrimenn sem víla fátt fyrir sér í þeim efnum.

    Allt kemur þetta almenningi úr jafnvægi, bjagar hlutina og skekkir alla sýn, því pólitíkusarnir nota fjölmiðla og önnur kynningartæki til þess að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Hávaðinn og fyrirferðinn í þeim atgangi gerir það síðan að verkum að lítið sem ekkert heyrist í raunverulega óháðum sérfræðingum, raunverulegri rannsóknablaðamennsku á viðkomandi hlutum og alvöru umfjöllun sem skeytir engu um tryllinginn í pólitísku keilumeisturunum.

    Og sjálfsagt mun þetta aldrei breytast.

  12. SHH Says:

    Svo verð ég að mótmæla þessum vandræðalega stuttu bloggum þínum, nafni. Þau láta svona langorða sníkjubloggara eins og mig líta svo helvíti heimskulega út. Sji…

  13. Steinþór Says:

    Skemmtilegt hvernig Egill Helga virðist alltaf vera að stela hugmyndum af blogginu þínu Stebbi. Fyrst um verkalýðsleiðtogastyttuna í Breiðholtinu og núna NIMBY…

    Ekki nema að þú og Egill séu svona samhuga…

  14. Elías Says:

    Þegar ég var unglingur var ég í svo mikilli uppreisn að ég var í uppreisn gegn öllum uppreisnarhugmyndum. Þá hélt ég langar og innblásnar ræður um nauðsyn þess að reisa álver á Bernhöftstorfunni.

  15. Sverrir Says:

    Er ekki til hliðstætt fyrirbæri við NIMBY sem kalla mætti OMBY (Only in My Backyard) og finnst sérstaklega hjá hreppapólitíkusum?

    Mér datt þetta í hug þegar ég sá Kristján Möller í kvöldfréttum í gær þar sem á máli hans mátti skilja að Samfylkingin væri á móti öllum álverum nema á Húsavík.

Leave a Reply