Margs vísari

Eftir að hafa horft á Silfur Egils í hádeginu er ég margs vísari.

Ég heyrði t.d. Ósk Vilhjálmsdóttur margítreka að munurinn á VG og Íslandsframboðinu sé sá að Íslandsframboðið sé klárlega lengra til hægri. Síðar í þættinum lýsti hún því yfir að hugtökin hægri og vinstri séu merkingarlaus hugtök í nútímapólitík.

Ég sá líka Jón Magnússon útskýra að Frjálslyndi flokkurinn hefði tapað miklu fylgi vegna klofningsins og tilkomu Íslandsframboðsins. Síðar í þættinum sagði hann að Íslandsframboðið væri í raun fylgislaust smkv. skoðanakönnunum.

Mótsagnakennt?

Jafnframt komst ég að því að Heimdallarformaðurinn er einhver sá alslappasti sem sá félagsskapur hefur sent í sjónvarpsviðtal og hafa þeir þó margir verið daprir.

Það er nú svo.

# # # # # # # # # # # # #

Í dag gengum við feðgarnir í að taka til í hjólbarðageymslunni á Mánagötunni og keyrðum bílhlass af gömlum dekkjum á Sorpu. Þau verða væntanlega send í endurvinnslu, kurluð niður og jafnvel brædd í gangstéttarhellur. Megi Moggabloggið hljóta sömu örlög.

3 Responses to “Margs vísari”

  1. paur Says:

    Einvígi frjálslynduflokkanna tveggja á eftir að skemmta mörgum skrattanum næstu mánuði.

  2. Magnús Says:

    Og öllum góðum mönnum.

  3. Ibba Sig. Says:

    Já, það er agalegt að horfa á formann ungra Sjalla í svona aðstæðum. Hún ræður engan veginn við þær og er tekin í bakaríið í hvert skipti. Kona kemst heldur ekkert mjög langt á innantómum frösunum einum saman.

Leave a Reply