Epli og eikur
Á fimmtudagskvöldið var okkur Steinunni boðið á forsýningu á Epli og eikum, nýjustu sýningu Hugleiks. Plottið var augljóslega að bjóða völdum bloggurum í þeirri von að þeir skrifuðu um sýninguna. Ég geng í það mál hér með:
Hugleikur er skemmtilegt fyrirbæri. Þetta er reykvískt áhugamannaleikhús sem hefur verið að í einhver tuttugu ár og undantekningarlítið (eða -laust?) sett upp frumsamin verk, helst með söngvum.
Þar sem mamma og pabbi könnuðust við fólk sem tengdist Hugleik fór ég á allnokkrar sýningar sem unglingur. Sumar hverjar fjári góðar. Það sem einkennir verkin hjá Hugleik er húmorinn. Fyrst og fremst er hugsað um að setja upp fyndna og skemmtilega sýningu. Það er gríðarlegur kostur í áhugamannaleikhúsi - best er að láta menntuðu leikarana um dramatísku loftfimleikana.
Epli og eikur eftir Þórunni Guðmundsdóttur er dæmigerð Hugleiks-sýning. Að þessu sinni er ekki snúið út úr menningararfinum eða bókmenntasögunni, heldur er sögusviðið Hljómskálagarðurinn (sniðug sviðsmynd) og plottið eiginlega stæling á hefðbundnum ástarvelluförsum - nema aðalsöguhetjurnar eru krimmar eða fólk sem dreymir um að leiðast út í glæpi. Lestir teljast því dyggð og öfugt.
Leikararnir stóðu sig vel. Baldur Ragnarsson, sem leikur aðalsöguhetjuna Lárus, er sérstaklega skemmtilegur í hlutverki sínu - þar sem hann leikur með andlitinu allan tímann (er það ekki eitthvað svoleiðis sem maður segir í leikdómi?)
Mæli í það minnsta með Epli og eikum fyrir þá sem vilja sjá skemmtilega sýningu. Ég samt ekki enn búinn að átta mig á því hvað þessi eikartré í titlinum eiga að merkja.
# # # # # # # # # # # # #
Fyrir tveimur árum spáði ég því að MK gæti blómstrað í Gettu betur 2007 ef rétt væri að málum staðið. Sannast sagna hélt ég að Kópavogsbúar hefðu misst af lestinni. Þeir heilluðu mig ekki í útvarpinu og þrátt fyrir ágæta spretti í fjórðungsúrslitunum, taldi ég þá klárlega langslakasta liðið í undanúrslitum.
Þess vegna kom frammistaða MK í kvöld mér gleðilega á óvart. Liðið á það svo sannarlega skilið að fara í úrslitaleikinn og þótt MH-ingar hafi líka verið sterkir, fannst mér MK betra liðið. Getur verið að Hamrahlíðarfólk hafi þegar verið komið í úrslitaleikinn í huganum?
Spurningarnar í kvöld voru aðeins of léttar. Þegar komið er þetta langt í keppninni má fjölga strembnu spurningunum aðeins. Reyndar kom Davíð að tómum kofanum hjá börnunum í spurningunni um Sköllóttu söngkonuna, sem kom mér mjög á óvart. Sjálfur spurði ég um Nashyrningana eftir sama leikskáld fyrir tveimur árum - og hefði því haldið að þetti ætti að koma.
Það vildi loða við MH á tímabili að kvarta sáran eftir töp í GB og reyna að skella skuldinni á mistök dómara, einkum ef mjótt var á munum. Vona að sú verði ekki raunin að þessu sinni.
# # # # # # # # # # # # #
Megi Moggabloggið lokast inni í lyftu - yfir helgi…

March 24th, 2007 at 00:39
Draumur minn um úrslitaleik í Gettu betur með þátttöku MK hefur ræst, þó ekki sem keppandi heldur þjálfari. Nú er bara að ganga skrefinu lengra og hirða Hljóðnemann!
March 24th, 2007 at 10:30
Það er ánæglulegt að gamalt stórveldi sé að vakna til lífsins, en ég sé ekki að MK muni verða nokkur fyrirstaða fyrir MR eftir viku, en reyndar hélt ég líka að MH myndi vinna þá með 10-15 stigum svo að það er lítið að marka spádómsgáfu mína í Gettu betur.
Það er alltaf gaman að fá spennu og óvænt úrslit og það gerir keppninni aðeins gott og myndi kannski vekja áhuga lengju-manna aftur ef það gerðist oftar að “litlir skólar” ynnu þá “stóru”
March 24th, 2007 at 10:36
Þrátt fyrir miklar utanaðkomandi hvatningar (þ.á.m. nafnlaust sms frá siminn.is kl. 7 í morgun þar sem mér er bent á dómaramistök) þá get ég lofað því að við munum engum kenna um nema sjálfum okkur.
March 24th, 2007 at 11:35
en hvað var málið með uppskrúfaða leiðindapésann sem var í forsvari fyrir nemendafélag MH? Ég er handviss um að allir hlutlausir áhorfendur snerust á sveif með MK eftir að hafa hlustað á hrokann og dónaskapinn í drengnum!
March 24th, 2007 at 14:34
Pésinn kontrastaði sérstaklega illa við þessa ungu útgáfu af “The Dude” úr Big Lebowski sem stóð við hliðina á honum. Ég var bara að bíða eftir að MKingurinn segði “That’s just like, your oppinion. Man.”
March 24th, 2007 at 14:37
Eitt annað: ég veit ekki til þess að það sé til nein borg sem berið heitið “Bombay”, ekki frekar en það eru til lönd sem heita “Síam”, “Prússland” eða “Efri Volta”. Getur einhver útskýrt þetta mál fyrir mér?
March 24th, 2007 at 17:56
Ég gæti útskýrt þetta fyrir þér en sýnist það óþarfi.
March 24th, 2007 at 20:59
Þetta stakk bara frekar mikið í augað. Hafandi búið í Asíu veit ég að Indverskir þjóðernissinnar voru frekar uppteknir af þessu máli um langa tíð. Eina undantekningin sem ég veit um á nafnbreytingunni var í Portúgölsku. Ekki værum við sátt við að vera kölluð “Thule” í erlendum spurningaþætti? Og ekki var það heiti arfleið óhugnanlegrar nýlendustefnu.
March 26th, 2007 at 16:52
Sjaldan fellur akarnið langt frá eikinni.
March 27th, 2007 at 23:56
Það er einkennilegt með þig Stefán að jafn skynsamur maður og þú skulir ekki hafa sannleikann að leiðarljósi. Spurningarkeppni er í eðli sínu keppni í staðreyndum, óumdeilanlegum staðreyndum. Sé svo ekki er augljóst að aðstandendur keppninnar eru ekki að standa sig. Hafa skal það sem sannara reynist. Þeir sem eru reyndar mest uppteknir af þessu “auka” stigi eru MK-ingar. En annars hef ég ekki trú á öðru en Davíð biðji mh-inga afsökunar á þessu, rétt eins og þegar knattspyrnudómarar gera afdrífarík mistök þá hafa þeir þó yfirleitt þann snefil að sjálfvirðingu að viðurkenna mistök sín og biðjast afsökunar.
P.S. Þegar þú varst dómari í keppninni, kaust þú eitt sinn að gera 15 mínútna hlé á upptöku til að kanna hvort stigin væru rétt talin, varla getur þú haft á móti því í þessu ljósi að slík atriði séu könnuð eftir. Rétt er að taka fram að forsvarsmenn MH gerðu athugasemdir við stjórnendur keppninnar meðan á keppninni stóð sl. föstudagskvöld um að rangt væri haft við í stigatalningunni.
Árið 2000 fékk MR leiðrétt svar við spurningu í úrslitaþætti sem þeir gerðu athugasemd við. Á þá bara að leiðrétta mistök þegar það er MR í hag?
Og að lokum, þegar þeim atriðum sem um er spurt í 3-þrautinni hefur verið svarað, þá er svar komið og keppendur hafa takmarkaðan tíma til þess að leiðrétta það sem áður var komið, eða allavega dugir ekki að horfa á spyril og/eða dómara og fara þá að riðja upp samhengislausum brotum. þ.e.a.s að rétt svar skal koma í röð og/eða villa í svarinu skal leiðrétt með því að vísa í að það hafi verið rangt!
March 28th, 2007 at 01:25
Sæll Björn
i) Ég hef þá skoðun í þessu máli að þegar keppni er lokið, verði úrslitin að standa eins og dómari hefur úrskurðað, nema að annað keppnisliðið verði uppvíst að svindli eða broti á reglum keppninnar. Mistök dómara eða spyrils geta ekki orðið til þess að úrslitum sé breytt eftir á. Rangir dómar verða því að standa. Annað myndi enda í tómri vitleysu.
ii) Í sumum tilvikum er hægt að bregðast við athugasemdum á keppnisstað og áður en viðureign lýkur. Þá er sjálfsagt að gera það.
iii) Kosturinn við að taka keppnir upp fyrirfram er sá að þá er einmitt hægt að grípa til þess ráðs sem ég notaði - að gera hlé til að tékka á vafaatriðinu. Þetta fannst mér einn helsti kosturinn við fyrirframteknar keppnir. Bein útsending býður ekki upp á þennan möguleika, en fyrir áhorfendur og þátttakendur eru beinar útsendingar skemmtilegri. Hér er því tekin meðvituð ákvörðun um að takmarka möguleika dómara til að bregðast við vafaatriðum til að auka skemmtanagildið. Það er einfaldlega ákvörðun sem menn hafa tekið og ekkert við því að segja.
iv) Hraðaspurningar eru skemmtilegur og vinsæll keppnisliður - en þeim fylgja vafaatriði. Hér á árum áður voru vafaatriði dæmd liðunum í óhag, en í seinni tíð hefur pressan aukist á að láta liðin njóta vafans. Þetta er gert til að auka hraðann og fjölga stigunum.
Úrskurður dómara og stigavarðar byggist á því sem þau heyra eða telja sig heyra meðan á keppninni stendur. Hljóðið sem þau hafa í eyrunum er vel að merkja talsvert öðruvísi en það sem sjónvarpsáhorfandinn heyrir heima í stofu. Það var mikið sjokk fyrir mig á sínum tíma að heyra hversu miklu munaði á þessu tvennu.
Sá sem vill fækka mögulegum villum og vafaatriðum í Gettu betur ætti að berjast fyrir afnámi hraðaspurninga. Meðan þær eru við lýði - þá munu koma upp vafaatriði, þau eru hluti af leiknum. Ef við viljum fækka villunum enn meira, þá látum við liðin svara krossaspurningum á blaði og tilkynnum svo úrslitin. En það gerum við ekki, því það væri vont sjónvarp.
v) Ekki man ég hvaða spurningu þú ert að vísa í frá úrslitunum 2000, en það er fullt af dæmum um að úrskurði hafi verið breytt - ÁÐUR en keppnin var úti. Það hefur ekkert með MR eða ekki MR að gera. Þetta eru reyndar hálfbarnalegar dylgjur.
vi) Varðandi þríþrautina erum við svo aftur komin inn á klassískt vandamál. Þú segir að svarið eigi að teljast komið þegar búið er að nefna það sem um er spurt - það er hárrétt. En í þessu tilviki var ekki búið að spyrja að neinu. Spurningin hafði ekki verið borin fram - og rétt svar gat því augljóslega ekki komið í neinni röð.
Dómarar hata það þegar lið fara svona snemma á bjölluna og byrja að romsa út úr sér - en áhorfendur elska það og sjónvarpið vill því endilega halda þessum möguleika inni. Hefðin í þessum tilfellum er sú að dómari gerir fyrir keppni lista yfir þau atriði sem verða að koma fram og ef hann metur að liðið hafi slugsast til að nefna þau, gefur hann rétt. Hér er þáttur spyrilsins reyndar mjög stór. Hann verður að meta hvenær nóg er komið - og getur hjálpað liðum mjög mikið (eða í sumum tilvikum spillt fyrir þeim) með því að gefa lengri tíma.
Til að losna við þetta “vandamál” væri náttúrlega hægt að gera eins og tíðkaðist fyrstu ár keppninnar - að byrja allar spurningar á: nú er spurt um blóm eða nafn á manni… En eina ferðina enn er skemmtanagildið tekið fram yfir.
Afgreiðsla Davíðs á þríþraut MK-inga var því að öllu leyti í samræmi við venjur og hefðir í GB síðustu 10-15 árin.