MK:FG
à gær horfði ég loksins á spurningakeppnina frá föstudagskvöldinu. Ég var bara ánægður með spurningarnar og svarhlutfallið var fÃnt.
DavÃð og Steinunn Vala lentu à miklum vandræðum með stigagjöfina eftir hraðaspurningarnar, sem tók furðulangan tÃma að leysa úr. LÃklega eru þau ekki með nægilega gott merkingakerfi – à það minnsta man ég ekki eftir svona ruglingi à minni tÃð.
Það vakti sérstaka athygli mÃna hversu mikið var um söguspurningar (ég tel gamla testamentið með sem söguspurningar). Ég er viss um að hlutfallið er mun hærra en hjá mér, samt var alltaf verið að saka mig um að semja endalausar sagnfræðispurningar.
Hans og Grétu-spurningin var sérstaklega skemmtileg, en myndirnar stoppuðu of stutt á skjánum. Verra þykir mér ef “finndu málvilluna”-spurningarnar ætla að ganga aftur à ár. Þær hafa aldrei verið skemmtilegar og oftar en ekki hálfgert klúður à framkvæmd.
Hlakka til að sjá næsta þátt.
# # # # # # # # # # # # #
Annað kvöld verður stjörnuskoðun á Minjasafninu frá kl. 21-23. Allir velkomnir.
Megi Moggabloggið verða fyrir loftsteini!

February 27th, 2007 at 16:31
Var ekki bara vandræði með hljóðið? Heyrðu DavÃð og Steinunn nokkuð almennilega à keppendum? Það hlýtur að vera eitthvað svoleiðis. Hljóðið hefur verið til vandræða fyrir áheyrendur à þeim keppnum sem ég hef fylgst með læf.
February 27th, 2007 at 16:44
Hljóðið er eilÃfðarvandamál. Fyrstu sjónvarpskeppnina mÃna heyrði ég ekki boffs à öðru liðinu og maður var alltaf á taugum varðandi þessi hljóð-mál.
Vandræðin à sÃðustu keppni virtust hins vegar vera þess eðlis að dómari og stigavörður ættu erfitt með að sjá hvar munurinn à stigagjöfinni þeirra lægi. Þetta á hins vegar ekki að vera vandamál, ef báðir aðilar skrifa stigin jafnóðum við hver rétt svar (1-2-3-4-5…) Ef lokatalan er sú sama hjá báðum þarf engar áhyggjur að hafa – að öðrum kosti er hægðarleikur að sjá á augabragði nákvæmlega hvar tölurnar fara að vÃxlast.