Sagan öll
Um daginn gerðist ég áskrifandi að nýja tÃmaritinu hans Illuga Jökulssonar, Sagan öll. Þetta er à raun sagnfræðiútgáfan af Lifandi vÃsindum.
Ég er harla ánægður með þetta fyrsta blað. Þetta mun höfða til mjög breiðs hóps. Sjálfur tel ég mig vel heima à sagnfræðinni, en fann margt fróðlegt. Ef ég hefði verið tólf ára, hefði mér fundist blaðið æði!
Nú er bara að kaupa möppur og binda þetta inn, til að tryggja að ÓlÃna geti drukkið blöðin à sig eftir áratug eða svo. Ekki viljum við að hún álpist à mannfræði eins og mamma hennar, þegar hún getur orðið vÃsinda- og tæknisagnfræðingur…
à Sögunni allri er sagt frá þvà að Ingólfur Arnarsson kunni að hafa sest að à ReykjavÃk til rostungsveiða. Megi mannýgur rostungur ráðast á Moggabloggið!
# # # # # # # # # # # # #
Okkur Luton-mönnum var skellt niður á jörðina eftir sigurleik þriðjudagsins. Við töpuðum úti gegn Crystal Palace, meðan Hull vann óvænt. Við erum á nýjan leik einu stigi frá falli. à móti kemur að Southend og Leeds sitja sem fastast á botninum. Ef þau dragast aftur úr, verður þetta kannski fjögurra liða barátta um að losna við eitt fallsæti.
Eftir landsfundarsetu fyrripart dags sótti ég ÓlÃnu til ömmu sinnar og afa. Tók stelpuna með mér à Egilshöll, þar sem Framarar mættu Skagamönnum à deildarbikarnum. Reyndar svaf barnið á öxlinni á mér nær allan leikinn eða rétt dormaði. Er samt ekki fjarri þvà að hún hafi glaðst yfir sigri okkar manna.
Fyrra markið sá ég raunar ekki, það var sjálfsmark. Jónas Grani skoraði það sÃðara. Hann var eins rangstæður og mest mátti vera. Guðjón Þórðarson var ævareiður út à lÃnuvarðarræfilinn. Megi mannýgur Skagaþjálfari bÃta Moggabloggið!

February 25th, 2007 at 03:21
Nú lÃst mér á þig. Tvær formælingar à garð moggabloggsins à sömu færslunni!
Meira af þessu, takk!
February 25th, 2007 at 04:12
Ekkert komment á Gettu betur?
June 13th, 2012 at 16:10
Is it alright to put part of this on my personal blog if perhaps I publish a reference to this web site?