Lengi von á klofningi…
Í upphafi árs var því slegið upp að von væri á framboði aldraðra og öryrkja í þingkosningunum - og raunar tveimur fremur en einu.
Nýjasta bloggfærsla Arnþórs Helgasonar bendir til að nú hafi annað framboðið klofnað. Líklega stefna þá þrír hópar að því að bjóða fram í maí.
Enn er nokkuð til vors, svo ef af líkum lætur ættu þessir hópar að ná að klofna nokkrum sinnum í viðbót. Upp úr mánaðarmótum verða líklega 6-7 hópar að vinna að framboði. Eitthvað segir mér þó að enginn þeirra muni ná að bjóða fram í raun og veru.
Það er mótsagnakennt lögmál í félagsstörfum, að því fámennari sem félagsskapur er - því líklegri er hann til að klofna í tvennt. Nú myndi maður ætla að þessu væri öfugt farið, að fjölmenn félög gætu alið af sér fjölmennan minnihluta sem aftur væri nógu burðugur til að kljúfa sig í burtu og lifa sjálstæðri tilveru. Í raun er þessu þveröfugt farið. Fámennustu félögin eru í langmestri klofningshættu.
Megi Moggabloggið fá Baldur Ágústsson í sínar raðir!

February 25th, 2007 at 02:25
Er þetta ekki aðallega dæmigert fyrir gamlar vinstrihreyfingar, sbr. KSML, KSMLb, EIKML, Fylkinguna. Mig grunar að flest eða öll þessi ellilífeyrisframboð muni detta dauð um leið og Ómar Ragnarsson (66 ára) og félagar hans bjóða fram næstu dagana!