Búningurinn

Í dag er öskudagur og þess vegna mætti Ólína í grímubúningi í skólann. Hún er hvorki prinsessa né sjóræningi, heldur Holland. Hún er sem sagt lítil, græn og þakin af skjöldóttum mjólkurkúm. Við sendum hana sem sagt í náttfötum.

Ég skammast mín ekki vitund fyrir að hafa ekki farið í einhverja leikfangabúðina og keypt öskudagsgalla fyrir skrilljónir. Barnið skilur ekki ennþá út á hvað svona grímubúningatilstand gengur og er raunar ekkert alltof hrifin. Á næsta ári verður meiri viðbúnaður.

# # # # # # # # # # # # #

Paul Gascoigne er epískur snillingur. Einhvern veginn koma þessar fréttir ekki á óvart.

# # # # # # # # # # # # #

Drew Talbot, strákur sem við keyptum frá Sheffield Wednesday í janúar, bjargaði gærkvöldinu með því að skora sigurmarkið gegn sínum gömlu félögum. Luton er þá fjórum stigum frá fallsæti og við getum andað rólega amk. í nokkra daga.

Mark Talbots er hægt að sjá í afleitum gæðum á YouTube. Það kanni allir góðir menn.

Ég legg til að fall Moggabloggsins verði líka sett inn á YouTube!

3 Responses to “Búningurinn”

  1. Jóhanna Says:

    Mér finnst þetta nú bara fullgildur búningur. Svo veit ég að það tíðkast á e-m leikskólum að hafa annaðhvert ár náttföt og hitt árið búning sem mér finnst líka sniðugt.

  2. kolbeinn Says:

    Hver er þessi Paul Gascoigne? Sannir aðdáendur kalla hann sínu nýja nafni G8 eins og lesa má um hér:

    http://news.bbc.co.uk/1/hi/uk/3761696.stm

  3. Heiða M. Says:

    Mér lýst vel á að náttfötin frá okkur múttu geti gegnt hlutverki sem Holland líka! ;)

Leave a Reply