Archive for January, 2007

Hvað með Kúbu?

Wednesday, January 31st, 2007

Það þykir kannski ekki lengur fínt að blogga um HM í handbolta eftir tapið í gær, en ég fór að hugsa - hvað er orðið um Kúbu í handboltanum? Þeir voru langbesta Ameríkuþjóðin og enn í dag eru öflugir leikmenn af kúbönsku bergi brotnir í sterkum Evrópuliðum.

Samkvæmt Wikipediu kepptu átta þjóðir í forkeppni HM fyrir Norður- og Suður-Ameríku. Kúba var ekki í þeim hópi.

Með fyllstu virðingu fyrir Grænlendingum, hlyti handboltaþjóðin Kúba að komast á HM ef hún hefði bara fyrir að senda lið til keppni. Kann einhver skýringu á þessari fjarveru?

# # # # # # # # # # # # #

Fundurinn í MH gekk vel. Áhugasamur hópur og líflegar umræður í lokin. Það er alltaf gaman að fylgjast með menntskælingum ræða pólitík, sem gerir það enn dapurlegra að málfundahefðin sé nánast horfin í framhaldsskólunum. Í stað þess að halda málfundi þar sem nemendur karpa um hitt og þetta, eru bara fengnir utanaðkomandi ræðumenn eða skipulagðar ræðukeppnir sem lúta allt öðrum lögmálum.

# # # # # # # # # # # # #

Það verður lítið unnið í dag. Barnið er veikt heima og krefst athygli og umönnunar. Safnið verður því óvarið á meðan.

# # # # # # # # # # # # #

Les á netinu að íslenskur læknir þykist hafa fundið lækningu við fuglaflensu og kvefi. Nær væri að finna bóluefni gegn Moggablogginu.

Skólanefndarfundur

Wednesday, January 31st, 2007

Helvítis læmingjar

Monday, January 29th, 2007

Gúgglaðu það bara

Sunday, January 28th, 2007

Játningar táningsfemínista

Saturday, January 27th, 2007

SÍF-geymslan

Friday, January 26th, 2007

Stéttarfélagið

Thursday, January 25th, 2007

Öldungaframboð

Wednesday, January 24th, 2007

Hlífin

Wednesday, January 24th, 2007

22. janúar

Monday, January 22nd, 2007