Skriðtækling
Í morgun fórum við feðginin í getraunakaffið hjá FRAM, en getraunastarfið hefur verið með afbrigðum öflugt þar síðustu vikurnar.
Ólína var að ráfa um gólfið með kleinu upp í sér, þegar hún hljóp beint fyrir lappirnar á miðjumanninum knáa, Viðari Guðjónssyni. Þau féllu bæði í gólfið og með því kaffibollinn sem Viðar hélt á. Þar sem kaffið var volgt kom það ekki að sök þótt barnið fengi þarna óvæntan hárþvott. Byltan var ekki verri en svo að allt var gleymt eftir eina kökusneið.
Viðari krossbrá og hafði miklar áhyggjur af því að hafa slasað barnið.
Aðrir viðstaddir höfðu meiri áhyggjur af því hvernig baráttan muni ganga í úrvalsdeildinni næsta sumar úr því að tveggja ára stelpur geta tæklað leikmennina okkar.
Næst mætti barnið tækla Moggabloggið!

December 31st, 2006 at 20:57
Gleðilegt ár óska ég þér og þínum
January 2nd, 2007 at 15:16
Leikmönnum Fram til varnar, langar mig að benda á það að eftir byltuna sem Ólína fékk hefðu flestir leikmenn legið í valnum töluvert lengur en sú stutta.
Slík harka einkennir góða varnarmenn og var hún svo hörð af sér að ætla mætti að hún væri helmingi eldri en hún er í raun og veru. Þar er því mikið efni á ferð.
Þegar þetta liggur fyrir sjá menn að engin ástæða er til þess að hafa áhyggjur af næsta sumri.
Framkv. Viðar G.
January 2nd, 2007 at 18:03
Hahahahahaha maður þarf greinilega að láta sjá sig í getraunakaffinu…
og með legg- og reimuðu ökklahlífarnar á sér.