Kaupþing banki

Viðskiptabankinn minn skipti víst um nafn í nótt. Hann heitir núna Kaupþing banki og farið verður í tryllingslega auglýsingaherferð til að berja nýja nafnið inn í hausinn á viðskiptavinum og allri alþýðu manna.

Ekki byrjar þetta þó vel hjá bankanum. Í það minnsta hefur alveg gleymst að láta stjórnendur heimasíðu bankans vita af þessum breytingum - þar heitir bankinn ennþá KB. Hefði maður ekki haldið að fyrsta atriðið á gátlistanum ætti að vera: muna að breyta heimasíðunni!

5 Responses to “Kaupþing banki”

  1. Björn Friðgeir Says:

    Bankinn hefur heitað Kaupþing banki hf. síðan í fyrra (2005). Núna er verið að breyta vörumerkinu úr KB banki í Kaupþing. Og þeir eru búnir að kveikja á re-directinun (endurvörpuninni?) af kbbanki.is á kaupthing.is, að vísu síðbúið. Tryllingsleg? tja… nokkrar auglýsingar, það er nú ekki mikið :-D

  2. Stefán Says:

    Heh! Kaupþing, Schmaupþing!

    Ég set inn þessa færslu - og tuttugu mínútum síðar kippir bankinn síðunni sinni í lag. Segið svo að þetta blogg hafi ekki áhrif.

    Megi Moggabloggið lenda í aurskriðu!

  3. anna Says:

    Hvað gerðu þeir þá við Kaupthing bank AG?

    Vesalings Mogginn og vesalings Saddam

  4. Miss G Says:

    Alveg er ég að verða hæstánægð með áhrínsorðaflauminn sem þú botnar jafnan með. Næst er það níðstöng.

  5. Solveig Says:

    Þessi “tryllingslega” herferð hefur borið árangur, (hef reyndar bara séð eina sjónvarpsauglýsingu). Vegna aðdáunar minnar á John Cleese mun ég hér eftir kalla þennan banka/fyrirtæki Kappaflingi.

Leave a Reply