Loftnetsviðgerðir

Loftnetið fyrir sjónvarpið er í steik. Vandinn verður ekki leystur með því að klifra upp á þak, heldur þarf að skipta út einhverjum tenglum á þeim enda snúrunnar sem er hér innandyra. Það verður víst ekki gert án þess að hafa þartilgerð tæki og kunnáttu. Held meira að segja að þetta sé ekki djobb fyrir venjulegan rafvirkja, heldur sérstakan loftnetskarl/konu.

Lýsi hér með eftir uppástungum. Lumar einhver á símanúmerinu hjá klókum iðnaðarmanni? Ekki að undirtektirnar við spurningu minni um Heimastjórnar-Dabba fylli mig bjartsýni.

# # # # # # # # # # # # #

Um daginn hélt ég því ranglega fram að Luton væri að spila við WBA á föstudagskvöld á Sky. Hið rétta er að þetta er útileikur gegn toppliðinu Birmingham. Ekkert við þennan leik gefur tilefni til mikilla væntinga, en auðvitað mætir maður í Ölver kl. 19:30.
# # # # # # # # # # # # #

Íþróttamaður ársins - handboltamaður, eina ferðina enn. Hvað á manni að finnast um það?

Í það minnsta voru menn nógu skynsamir til að velja ekki kylfinginn. Daginn sem golfari verður valinn íþróttamaður ársins mun ég taka upp baráttu fyrir því að spurningakeppnisþátttakendur fái aðild að ÍSÍ.

# # # # # # # # # # # # #

Hvernig væri að rista Moggablogginu blóðörn?

12 Responses to “Loftnetsviðgerðir”

  1. Elías Says:

    Maður notar loftnetstengil sem fæst í Húsasmiðjunni, BYKO eða Byggt og Búið (meðal annarra) og kostar svona á bilinu 60-400 krónur, skrúfjárn og svo rakvélarblað eða sérstaka töng til að ná einangrun af vír. Og svo hyggjuvitið.

  2. pallih Says:

    Mér skal líta á þetta með þér við tækifæri.

  3. anna Says:

    Flestir rafvirkjar geta bjargað þessu fyrir þig, en einnig símvirkjar og yfirleitt flestir sem hafa eitthvert vit á loftnetssnúrum. Vandamálið er bara að góður rafvirki er upptekinn þar til á mánudag árið 2009.
    Sjálf er ég á næturvakt þessa dagana og kemst illa frá.

  4. Ant-Enna Says:

    Þetta er einfalt allt saman. Snúnast er að skeyta saman svona köplum því þeir eru skermaðir. En það er auðleyst með smá útsjónarsemi, og álpappír. Álpappírinn er sumsé til að koma skermingunni saman. Og síðasta tötsið næst með slurk af einangrunarlímbandi. Verður betra en nýtt.

  5. Benedikt XVI Says:

    Mér fannst botninum nú náð þegar hestamaður fékk titilinn.

  6. JYJ Says:

    Þetta finnst mér nú koma úr hörðustu átt frá manni sem þykist ætlað að kenna Íslendingum að spila krikkett!

  7. Nonni Says:

    Það á bara ekki að velja íþróttafólk úr hópíþróttum sem íþróttamenn ársins.

  8. Benedikt XVI Says:

    Ég minni á að krikket er móðir allra íþrótta.

  9. kolbeinn Says:

    Þetta eru náttúrulega fáránleg verðlaun yfir höfuð. Fyrir nú utan þá einstaklingsdýrkun sem í þessu fellst (og þú mundir mótmæla hefðir þú ekki sýnt sömu dýrkun hér á síðunni) er bara fáránlegt að val rúmlega 20 íþróttafréttamanna á þeim sem þeim finnst bera af í íþróttum sé fréttnæmt. Og hvað er merkilegt við það að fólk standi sig vel í vinnunni? Þeir þrír sem lentu í efstu sætum þessa kjörs eru allir atvinnumenn og hafa verið lengi. Það er ekki fréttnæmara að þeir standi sig vel í vinnunni en að Kristján Benjamínsson múrari hafi lagt flísarnar sérstaklega vel í ár. Daginn sem þetta verða hópverðlaun veitt ungu íþróttafólki sem berst áfram í sínu skal ég hafa áhuga á þessu, ekki fyrr.

  10. anna Says:

    Kristján Benjamínsson múrari hefur þó eitt framyfir vesalings Guðjón sem var kosinn íþróttamaður ársins. Hann þarf ekki að drösla þessum byggingastrúktúr með sér heim og svo að horfa á hann í heilt ár í hvert sinn sem hann kemur heim til sín.

  11. hildigunnur Says:

    er ekki búið að leggja breiðband í Norðurmýrina?

    Gaurarnir hjá Pí loftnetsþjónustunni hjálpuðu mér annars með mitt vesen, snöggir og sniðugir.

  12. JYJ Says:

    Þessi umræða er komin út í vitleysu. Við útkljáum þetta um leið og Keilisvöllurinn opnar. Leikinn verður átján holu höggleikur án forgjafar, sigurvegarinn hefur rétt fyrir sér um ágæti íþrótta.
    Megi besti kylfingurinn vinna.
    Ég mæti með settið, Stebbi með kylfuna og þessar fáránlegu legghlífar sem fylgja, Stjáni mætir að sjálfsögðu með múrskeiðina og Kolbeinn getur verið kaddý.

Leave a Reply