Heimastjórnar Dabbi

Í gær las ég Ljóra sálar minnar, greinasafn e. Þórberg Þórðarson. Þar var margt forvitnilegt að finna, sem vænta mátti.

Í umfjöllun skáldsins um pólitíkina og kosningarnar 1911 að mig minnir, getur Þórbergur um Heimastjórnar Dabba sem virðist hafa látið hvað dólgslegast í sveit Heimastjórnarflokksins, sem Þórbergur hafði litlar mætur á.

Þetta klingdi bjöllum hjá mér - því í bréfasafni Steinþórs langafa má finna handrit að tveimur leikþáttum, sem mér virðist að hafi verið sett upp á vegum Ungmennafélags Reykjavíkur þegar hann var þar í forystusveit. Um árið barði ég mig í gegnum styttra (og auðlesnara) handritið, sem var sakleysislegur gleðileikur þar sem spilltu yfirstéttarforeldrarnir reyna að fá siðprúðu dótturina til að slá sér upp með “fínum” drengjum, sem reynast vera labbakútar sem reykja og drekka - en dóttirin knáa vill frekar prúðan pilt, en ættsmærri, sem er í ungmennafélaginu. Allt endar svo vel að lokum. (Þessi endursögn er eftir minni - las þetta fyrir mörgum árum.)

Hitt leikritið er lengra og pólitískara - og líklega illskiljanlegt þeim sem ekki þekkja til stjórnmálasögu tímabilsins. Þar er í veigamiklu hlutverki Heimastjórnar Dabbi sem ég hélt að væri bara heiti á steríótýpu frekar en raunverulegum manni.

En eftir lesturinn á Þórbergi verður ekki betur séð en að Davíð þessi (Dabbi hlýtur að vera viðurnefni á e-m Davíð) hafi verið til. Og þá spyr ég hina fjölfróðu lesendur mína: Hver var Heimastjórnar Dabbi - sem hefur verið virkur í Rvíkur-pólitíkinni amk á árunum 1911-1918.

4 Responses to “Heimastjórnar Dabbi”

  1. Tóta p. Says:

    Bíddu, er þá allt í lagi með Moggabloggið?

  2. hildigunnur Says:

    haa, hvar er bölbænin?

  3. Óli Gneisti Says:

    Í skóginum stóð kofi einn…
    from Stebbi Páls by Stefán

    Ég bjó í kennarablokkinni svokölluðu á Hjarðarhaganum þar til ég var rétt rúmlega níu ára gamall. Á hæðinni fyrir neðan mig bjó eldri kona, Hrefna Tynes. Hún var afar trúuð og gaf mér og hinum krökkunum í blokkinni stundum Biblíumyndir.

    Snemma frétti ég að Hrefna hefði verið virk í KFUK og að hún hefði samið fjölda barnabóka. Ég las eitthvað af sögunum hennar, sem voru þrautleiðinlegur kristilegur áróður þar sem sagt var frá einhverjum dýrum og ævintýri þeirra að lokum tengd við frásagnir í Biblíunni. Bókmenntafræðingar sem í dag kvarta yfir að Latibær sé banal, ættu að rifja upp gömlu Jesú-innrætingar barnabækurnar sem fyrri kynslóðir máttu þola.

    Það var ekki fyrr en miklu seinna að ég komst að því að Hrefna Tynes hefði samið textann við lagið: Í skóginum stóð kofi einn. Ef ég hefði vitað af þessu árið 1981, þá hefði ég komið fram við gömlu konuna eins og poppstjörnu.

    # # # # # # # # # # # # #

    Í kvöld gekk ég ekki niður Laugaveginn. Friðargangan, sem nú fór fram í 27. sinn, hefur verið fastur liður í lífi mínu frá því að ég man eftir mér. Ætli ég hafi misst af henni oftar en svona 2-3 sinnum?

    Skýringin á þessu skrópi mínu er sú að ég var við þriðja mann að koma fyrir hljóðkerfinu á Lækjartorgi. Samtök hernaðarandstæðinga eiga núna frábært hljóðkerfi fyrir fundi sem þessa og því þurfa friðarhreyfingarnar ekki að greiða fúlgur í hljóðkerfisleigu. Fórnarkostnaðurinn var hins vegar þessi.

    Þorsteinn Joð tók stutt viðtal við Steinunni um gönguna í fréttum Stöðvar 2. Sá ekki viðtalið og hef ekki haft fyrir að leita að því á Vísi. Steinunn er farin að verða sjóuð í sjónvarpsviðtölunum, sem hafa verið allnokkur upp á síðkastið – og verða enn fleiri eftir áramót þegar kosningabaráttan fer í gang.

    # # # # # # # # # # # # #

    Í Mogganum í dag var sagt frá því að getraunahópur FRAM hefði styrkt fjölskyldu krabbameinsveikrar stúlku um 200 þús. krónur. Um er að ræða hóp sem Halldór B. Jónsson hóaði saman snemma í desember og lét leggja upphæð í púkk til að spreyta sig á flóknum getraunakerfum (og þannig styrkja félagið í leiðinni.)

    Markmiðið með svona hópum er í raun ekki að græða miklar upphæðir, heldur fyrst og fremst að fjármagna áframhaldandi getraunakaup nokkrar vikur eða mánuði fram í tímann – og þar með styrkja félagið. Fyrir viku álpuðumst við til að fá 13 rétta og það er fyrir hluta af þeim ágóða sem hópurinn styrkti fjölskylduna.

    Þetta er skemmtilegt.

    # # # # # # # # # # # # #

    Bergljót Njóla, ritari Samtaka hernaðarandstæðinga, hannaði á dögunum jólakveðju sem sett var á dreifirit fyrir friðargönguna í kvöld. Myndina má sjá hér. Kannski SHA ætti að gera jólakort að ári? Og þó, það eru alveg nógu margir í þeim bransa. Miklu nær að útbúa annars konar kort. Sumarkveðjur eða afmæliskort.

    # # # # # # # # # # # # #

    Þungu fargi er af okkur Luton-mönnum létt eftir 3:1 sigur á Coventry í dag. Við erum fyrir vikið 8 stigum frá fallsæti og höfum fengið 7 stig af 12 mögulegum úr fjórum síðustu leikjum. Næsti leikur er gegn lærisveinum meistara Mick Harford í Colchester (um daginn rakst ég á Íslending sem heldur með þeim!) En þar á eftir verðum við í beinni gegn WBA á Sky.

    Vormisserið gæti orðið erfitt. Newell er eiginlega búinn að segja að Carlos Edwards, landsliðsmaður Trinidad & Tobago – og mögulega besti maður liðsins – verði seldur í janúar. Megnið af söluhagnaðinum fer í að greiða niður skuldir. Ljóst er að leikmannahópurinn hjá okkur mun veikjast eftir janúarsölurnar, meðan önnur fallbaráttulið á borð við Hull gætu styrkt sig.

    En markmið tímabilsins voru svo sem ekki flókin: að halda sér í deildinni og styrkja félagið þannig hægt og bítandi. Það væri svo bara bónus að slá út QPR í 3ju umferð bikarsins og ná smá bikarævintýri.

    # # # # # # # # # # # # #

    Í gær lenti ég í innflutningspartýi í næsta húsi hjá Ella anarkista. Þar var m.a. rætt um blogg – og ég skammaður fyrir svívirðingar mínar í garð Moggabloggsins.

    Ekki misskilja – enginn í partýinu var á móti því að ég sendi Moggablogginu bölbænir. Stemningin var frekar sú að þær væru of máttlittlar. Þannig var fundið að því að ég óskaði Moggabloggsins þess að fá kóleru – þar sem miltisbrandur væri nær lagi.

    Ég lofaði að bæta úr þessu og vera “nútímalegri” í vali mínu á sjúkdómum. Svo í anda þessa…:

    Megi Moggabloggið fá þrálátt vélindabakflæði!

  4. Davíð Þór Says:

    Reyndar eru Dagbjartar stundum kallaðir Dabbar líka.

Leave a Reply