Áfram Kristsmenn krossmenn!
Valsblaðið kom inn um bréfalúguna áðan. Það er nú ekki oft sem maður er minntur á að Norðurmýrin á víst að heita Valshverfi samkvæmt skiptingu borgaryfirvalda. Sögulega séð er hún náttúrlega Framhverfi, enda var gamli Framvöllurinn fyrir neðan Stýrimannaskólann.
Ávarpið í blaðinu vakti athygli mína. Þar skrifar sóknarpresturinn í Hallgrímskirkju einhverja jólahugvekju með Biblíutilvitnunum og langsóttum tengingum við fálkann í merki Vals.
Þessi helgislepja Valsmanna er ekki ný af nálinni. Félagið er meira að segja með kapellu á miðju íþróttasvæðinu! Tengingin er jú sú að Séra Friðrik stofnaði liðið sem knattspyrnudeild KFUM - en fjandinn hafi það, FRAM var stofnað af kaupmannasonum í miðbænum 1908. Ekki fáum við samt formann Verslunarráðs til að skrifa ávörp í blöðin okkar.
Óháð því hvort rétt sé að tengja trúmál og íþróttir saman með þessum hætti, finnst mér líka augljóst að Valsmenn eru sérstaklega óheppnir í vali sínu á trúarbrögðum. Boðskapur Kristninnar gengur út á að elska óvini sína og rétta fram hinn vangann. Þetta kallast þrælasiðferði á góðri íslensku og er ekki vænlegt til árangurs á knattspyrnuvellinum.
Væri ekki nær að Ásatrúarfélagið tæki eitthvert knattspyrnuliðið upp á sína arma. Ásatrúarmenn hafa takmarkaða trú á mætti fyrirgefningarinnar, en eru vinir vina sinna. Það er ólíkt betri grundvöllur í keppnisíþróttum.
# # # # # # # # # # # # #
Um daginn fékk ég bókina um sögu Melaskólans í pósti. Ég lét nefnilega til leiðast og skrifaði pistil í bókina með minningum frá skólaárunum. Eitthvað virðist nú hafa skolast til í uppsetningunni, amk kemur mér spánskt fyrir sjónir að Þórarinn “Aggi” Þórarinsson er sagður hafa útskrifast ári á eftir mér. Hann er örugglega tuttugu árum eldri.
En alltaf gaman að skoða gamlar myndir.
# # # # # # # # # # # # #
Megi Moggabloggið hreppa tölvuvírus!

December 21st, 2006 at 10:33
STRÁMAÐUR!
December 21st, 2006 at 11:33
Er ekki Jesús í Val?
December 21st, 2006 at 11:36
Nei, þú ert að rugla saman við Lolla. Hann var í val.
En ætli hann hafi ekki verið fæddur um svipað leyti og Jesús?
December 21st, 2006 at 11:54
TAKTETTATILBAKA!
December 21st, 2006 at 12:00
Þú getur bara sjálfur verið hlandhaus, Páll Hilmarsson.
December 21st, 2006 at 12:14
Þú ert að rugla saman Þórarni Óskari Þórarinssyni, sem var (og er?) alltaf kallaður Aggi, og syni hans sem heitir Þórarinn Aggi Þórarinsson, fæddur árið 1976.
December 21st, 2006 at 12:16
Ok. Þá er komin skýring á þessu.
Ég las ekki greinina hans almennilega, sá bara skrifað eitthvað um “hús spákonunnar” og var þá viss um að þetta væri Aggi eldri.
December 21st, 2006 at 12:53
SMJÖRKLÍPA
December 21st, 2006 at 13:48
HVAR HEF ÉG SAGT ÞAÐ? RÖKVILLA!!!