Á launum frá fréttastofunni

Nú karpa fréttamenn um það hvað sé til siðs varðandi greiðslur til heimildamanna. 

Sjálfur hef ég ótaloft lent í viðtölum og spjallþáttum. Fjölmiðlamenn líta á þetta sem sjálfsagða þegnskylduvinnu viðmælenda sinna. Oftar en ekki er hringt með stuttum fyrirvara, sem þýðir að maður þarf að leggja önnur verk til hliðar, taka sér frí úr vinnu, eyða bensíni eða borga fyrir leigubíla. 

Fimm mínútna viðtal í síðdegisþætti getur kallað á klukktíma snúninga og fokkað upp hálfum vinnudegi. Einkum ef maður vill vanda sig og mæta undirbúinn í þáttinn. 

Það væri svo sem reynandi að senda inn reikning fyrir svona viðvik. Ætli það væri ekki besta leiðin til að tryggja að manni yrði aldrei boðið aftur í viðtal? 

Eina skiptið sem ég man eftir að vikið hafið verið frá þessari sjálfboðaliðahugsun, var í tengslum við bresku þingkosningarnar síðast. Þá vorum við Sigríður Dögg Auðunsdóttir fengin í sjónvarpssal ásamt Ólafi Sigurðssyni þar sem við fylgdumst með kosningasjónvarpi BBC og tjáðum okkur um gang mála í öðru hvoru. 

Eftir útsendinguna tók Ólafur niður reikningsnúmerin okkar og nokkrum dögum síðar barst greiðsla upp á svona 5-10 þúsund kall. Ólafur sagðist leggja mikla áherslu á að greitt væri fyrir svona vinnu – annað væri amatörismi. 

Mér er nú til efs að fréttamenn fari almennt eftir þessu prinsipi Ólafs Sigurðssonar, en ef svo er gæti maður ímyndað sér að vinsælustu álitsgjafar, s.s. Baldur Þórhallsson, séu að fá þokkalegan pening upp úr krafsinu.

# # # # # # # # # # # # #

Já, meðan ég man:

Megi Moggabloggið veslast upp af kóleru! 

9 Responses to “Á launum frá fréttastofunni”

  1. Finnbogi Says:

    Þessi sjálfboðaliðahugsun á líka við um tónlistarmenn - þeir hafa svo gaman að vinnunni sinni að fólki finnst óþarfi að borga þeim laun. Kastljósið er til dæmis hætt að greiða tónlistarmönnum fyrir flutning í þættinum, þrátt fyrir að í gildi sé sérstakur kjarasamningur milli FÍH og RÚV. Og nú neitar Sjónvarpið að greiða okkur, sem sungum í jólamessunni (sem verður send út á aðfangadagskvöld), nema málamyndagreiðslu - fyrir tæpra fjögurra klukkustunda útkall. Ætli sé líka ætlast til að tæknimennirnir í þeirri upptöku gefi vinnuna sína?

  2. Eyja Says:

    Mikið þykir mér vænt um að lesa eitthvað jákvætt um Ólaf stjúptengdaföður minn.

  3. Þórdís Says:

    Getur það verið að ég hafi séð Ólaf á svalasta smábíl sem ekur um þessa borg?

  4. Eyja Says:

    Já, Þórdís. Það passar.

  5. Finnbogi Says:

    Það er rétt, ég sá hann ábyggilega á Smart niðri í bæ um daginn.
    Sehr kühl.

  6. Hjalti Árnason og Jens Figved Says:

    Úff mér finnst upphaf þessarar færslu benda til þess að þú lesir Moggabloggið!

  7. kolbeinn Says:

    Svo má náttúrulega segja að þeir sem leggja á sig snúninga og snatt í hálfan vinnudag til þess eins að vera í útvarpi eða sjónvarpi eigi ekki skilið að fá neitt borgað. Það er einfaldlega hægt að segja neit takk ef manni finnst þetta of erfitt allt saman. En þá fær maður náttúrulega ekki að koma fram í sjónvarpi…

  8. Silja Says:

    ég velti þessu fyrir mér þegar ég var fyrst beðin um að vera “álitsgjafi” og spurði kunnuga um þetta. Þá var mér sagt að það hreinlega tíðkaðist ekki - en hins vegar skilst mér að stöðvarnar borgi leigubíl á staðinn ef farið er fram á það. Ég hins vegar lít á það sem hluta af vinnunni minni í dag, svo ég var alveg hætt að pæla í þessu og hef aldrei lent í því að fá svo mikið sem fimmþúsundkall fyrir. Hins vegar er lang þægilegast að vera í blöðunum, þá er þetta bara eitt símtal og ekkert mál. Svo koma stundum útvarp og sjónvarp á staðinn og taka viðtöl, þá er þetta náttúrulega ekki mikið mál heldur.

  9. Guðni Th. Jóhannesson Says:

    Til er fullgildur samningur Ríkisútvarpsins og Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna. Þar er m.a. kveðið á um “þátttöku í útvarpsþáttum” sem hér segir:

    ——————————————————————————–ÞÁTTTAKA Í ÚTVARPSÞÁTTUM:
    Gildir aðeins þegar þátttakandi kemur fram sem rithöfundur, fræðimaður eða sérfræðingur en ekki þegar hann er kynntur sem fulltrúi stofnunar, félags eða fyrirtækis.

    Fyrir umbeðna þáttöku að 10 mín. 9.059,-
    Fyrir hverjar byrjaðar 10 mín. eftir það. 3.875,-
    Fyrir þátttöku í umræðuþáttum með öðrum greiðist lágmarksgjald 7.345,-
    ———————————————————————————–
    Mér hefur einu sinni tekist að fá greitt fyrir þátttöku í útvarpsþætti á RÚV með því að vísa í þennan samning. En auðvitað ætti að virða þennan samning fyrst hann var gerður. Sem sagt, samninginn í gildi.

Leave a Reply