Falskt öryggi
Held að fátt sé betur til þess fallið að veita falska öryggiskennd en brunaviðvörunarkerfi.
Sat í gær fund á Minjasafninu þegar brunaboðinn fór að væla. Engum datt í hug að hlaupa út, heldur biðum við eftir að helv. tækið þagnaði. Vegna framkvæmdanna sem standa yfir á safninu fer brunakerfið í gang 2-3 á dag. Ástæðan er sú að kerfið tekur feil á reyk og ryki - fyrir vikið slökkvum við einfaldlega á kerfinu í hvert sinn sem það ýlfrar.
Á hitt ber að líta að með allar þessar vinnuvélar á svæðinu, er brunahættan margfalt meiri en vanalega. Það væri eftir öðru að maður fuðraði upp í eldhafi einhvern þessara daga, eftir að hafa setið við tölvuna og bölvað brunaboðanum í klukkutíma.
# # # # # # # # # # # # #
Ég minni á sjálfboðaliðaleitina sem lesa má um í næstu færslu hér fyrir neðan.

November 30th, 2006 at 11:35
Slökkviliðsmenn segja reyndar að einu réttu viðbrögðin við svona löguðu séu að hlaupa út í hvert sinn og bíða eftir að leyfi til inngöngu sé gefið aftur. Það að starfsfólkið missi út heilu og hálfu dagana vegna einhvers svona er eina leiðin til að kerfið verði lagað.
November 30th, 2006 at 11:38
Vilji menn láta laga svona lagað er það eina sem hægt er að gera að hlaupa út í hvert sinn og fara ekki inn fyrr en slökkviliðið hefur leitað af sér allan grun. Þegar þú ferð að missa út heilu og hálfu dagana í vinnu út af þessu þá kannski splæsir Gulli í viðgerð á kerfinu. Ef fólk situr alltaf sem fastast út af þessu þá mun þetta aldrei breytast.
November 30th, 2006 at 11:39
Hmmm, þessi kaninka er mögnuð. Hún birti kommentið sem ég eyddi vandlega út áður en ég ýtti á Submit. Magnað!
November 30th, 2006 at 12:50
Brunaviðvörunarkerfið fór reglulega í gang meðan ég hafði skrifstofu í Tæknigarði en ég minnist þess ekki að hafa séð nokkurn mann kippa sér upp við það. Nema reyndar konuna í móttökunni, hún rölti yfirleitt og slökkti á kerfinu jafnskjótt og það fór í gang.
Hins vegar var ég hundskammaður þegar brunavarnarkerfið fór í gang í efnafræðibyggingu Háskólans í Þvottatúni og ég hljóp ekki út heldur sat sem fastast á minni þóftu og hélt áfram að vinna. Það var hvort eð er engin reykjarlykt…
November 30th, 2006 at 13:15
Ég vann eitt sinn í vöruhúsi þar sem einhver eldvarnarbjalla fór í gang mjög reglulega, nokkrum sinnum í viku jafnvel. Við vissum að hún var biluð og hunsuðum hana bara.
November 30th, 2006 at 15:08
Ég vann líka í vöruhúsi.
November 30th, 2006 at 17:13
Ég vann í húsi.
November 30th, 2006 at 17:18
Ég er farinn að fara út þegar það gerist.
November 30th, 2006 at 18:16
Ég meina, þegar brunabjallan fer í gang í Tæknigarði. Stend síðan mótmælastöðu fyrir framan húsið og spila We Shall Overcome á munnhörpuna.
November 30th, 2006 at 19:47
Bara taka upp forlagatrú og hætta þessu reykskynjararugli. Við deyjum hvort eð er öll í ragnarökum áður yfir lýkur.
November 30th, 2006 at 20:17
ég fer líka út. Amk. fram á gang til að tékka á útgönguleiðum. Reyndar fór brunabjallan einu sinni í gang í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar en herbergin eru svo vel hljóðeinangruð að helmingurinn af liðinu heyrði ekki í henni…
Myndi alveg vilja koma og telja en er víst að fara í óperuna annað kvöld
November 30th, 2006 at 22:26
Já Elías, það er greinilega synd að ég skuli hafa skipt um skrifstofu - annars hefði ég getað mætt með dómsdagslúðurinn og spilað undir hjá þér. Það er örugglega unaðslegt að hlusta á We shall overcome spilað á munnhörpu og túbu.
Og eftir ráðum hans heilagleika að dæma er orðið helst til langt síðan hann yfirgaf Raunvísindastofnun…
November 30th, 2006 at 22:42
„Held að fátt sé betur til þess fallið að veita falska öryggiskennd en brunaviðvörunarkerfi.“
En eitt af því er norskur her.
December 1st, 2006 at 15:05
Minning úr Menntaskólanum á Akureyri.
Einu sinni á skólatíð minni settu einhverjir óknyttakrakkar brunaboðann í Gamla skóla í gang (vafalaust hafa hér verið utanbæjarmenn að verki). Húsið það er gamalt timburhús sem myndi fuðra upp á undraskömmum tíma ef kviknaði í.
Einhverjir nemendur gerðu sig víst líklega til að ganga út úr tímum, og það tókst í sumum tilfellum, en einhver brögð voru að því að kennarar vörnuðu þeim útgöngu. Eftir einum slíkum var haft:
“Það er ekki brunaæfing í dag, svo þetta hlýtur að vera gabb”.
December 3rd, 2006 at 18:13
Þegar ég bjó á Hjónagörðum var svona brunakerfi þar. Það var alltaf að fara í gang (ég held að barnahlátur hafi ræst það). Einhvern tímann var ég að lesa fyrir próf og helv… bjallan fór í gang í N-ta sinn þann daginn. Ég strunsaði fram á gang með klaufhamar og barði bjölluna í spað, fólk þusti fram á gang og fylgdist agndofa með látunum. Af þessu skemmdarverki mínu urðu engir eftirmálar. Engin vitni að atburðinum gáfu sig fram.