Sjálfboðaliði?

Ég hef nokkrum sinnum reynt að nota þessa bloggsíðu til að betla aðstoð frá fólki útí bæ. Þannig tókst mér að fá lagaðan bilaðan vatnskassa á gamla klósettinu og greitt úr vandræðum með blöndunginn á gamla Volvo-num mínum. Í bæði skiptin var raunar Kristbjörn þáverandi nágranni minn á ferðinni.

Núna ætla ég að gera eina tilraun í viðbót. Mig vantar sjálfboðaliða - eða öllu heldur Steinunni vantar sjálfboðaliða.

Á laugardaginn kemur er VG-prófkjörið og hver frambjóðandi á að leggja til fulltrúa í talningu. Viðkomandi þarf að vera ábyrg/ur og kunna að telja.

Talningarfólk verður víst kallað til leiks um klukkan fjögur og má eiga von á telja til klukkan ellefu eða þar um bil. Eitthvað verður matarkyns í boði.

Ef einhver öðlingurinn hefur fengið nóg af laugardagsdagskrá sjónvarpsins - langar til að taka þátt í prófkjörstalningu - eða vantar félagsskap áður en mætt er í kosningavökuna - þá mætti viðkomandi senda mér póst á skuggabaldur@hotmail.com eða bara slá á þráðinn.

Er þetta fullmikil bjartsýni?

2 Responses to “Sjálfboðaliði?”

  1. Paur Says:

    Sting upp á Stefáni Pálssyni í þetta verk.

  2. anna Says:

    Búin að lofa mér í afmælispartí á laugardagskvöldið en ég er laus alan sunnudaginn