Íslandsmet í rökfimi
Kaninkan er aftur komin upp. Fagna því allir góðir menn! (Nei, ég mun ekki afleggja þennan frasa, þótt hann fari í taugarnar á Gulla Briem.)
# # # # # # # # # # # # #
Í kvöld sá ég Hjálmar Árnason setja Íslandsmet í rökfimi án atrennu.
Hann var í Kastljósinu ásamt Þórunni Sveinbjarnardóttur að ræða um stuðninginn við Íraksstríðið. Hjálmar virðist hafa álíka valkvætt minni og Jón Baldvin og þruglaði um málið fram og til baka.
Hápunktinum náði hann þó þegar hann viðurkenndi að þeir sem trúðu því á sínum tíma að Írak ætti efnavopn hafi vissulega litið aulalega út - EN… ef að efnavopnin hefðu svo eftir allt saman verið til ÞÁ hefði dæmið snúist við.
Þessa röksemdafærslu má orða á einfaldari hátt: “Nú hef ég reynst hafa rangt fyrir mér - en ef ég hefði nú haft rétt fyrir mér - þá hefði ég haft á réttu að standa!”
Ég spái því að Hjálmars-rökfimin muni fá mikla útbreiðslu á næstunni. Skólabörn sem svara vitlaust á prófum, munu útskýra fyrir kennurum sínum að þetta svar hafi nú vissulega verið rangt - en ef það hefði nú ekki verið rangt, þá hefði það bara verið rétt, svo það sé margt í mörgu…
Stuðningsmenn liða sem tapa leikjum munu líka geta leitað í smiðju Hjálmars: Jújú, við töpuðum 3:0 - en hugsum okkur nú ef við hefðum ekki tapað heldur unnið 3:0 - þá hefðum við bara verið í sigurliðinu!
Möguleikarnir eru óþrjótandi! Ég get ekki beðið eftir að sjá Hjálmar Árnason á kosninganótt í vor útskýra fyrir fréttamönnum að vissulega hafi hann fallið út af þingi - en hugsum okkur ef Framsóknarflokkurinn hefði nú EKKI beðið afhroð - þá væri hann bara ennþá þingmaður! Og hver myndi þá hlæja best?

November 28th, 2006 at 02:59
Í taugarnar á mér? Þessi frasi er einmitt bráðskemmtilegur, og vex með hverju skiptinu. Notaðu hann manna heilastur.
(Ætlaði að kommenta á þetta rétt áðan, en þá reyndist kaninkan vera niðri. Ég er ekki betri maður en svo að ég fagnaði því, rétt eitt augnablik. Bara vegna samhengisins, skilurðu.)
November 28th, 2006 at 13:54
Sæll
Ég er náttla ekkert í pólitíkinni eða þannig, en af því að þú varst í “Gettu betur” langar mig að leggja fyrir þig spurningar sem ég bara kem ekki fyrir mig í bili:
Skal það hafa verið Jóhannes Páll páfi sem endurreysti Galilei Galileo þar sem rannsóknarrétturinn hafði dæmt hann á forsendum sem “byggðust á röngum upplýsingum” 300 árum fyrr?
Er nafnið John eða Jóhannes ekki sama og nafnið Jón sem nýr örpáfi uppi á Íslandi ber en er hundrað sinnum sneggri að átta sig á forsendum sem “byggðust á röngum upplýsingum”?
Heldur þú að hundraðföldun sé kanske sérsíslenst fyrirbygði. DO sagði í sjónvarpsviðtali 2003 þegar áhyggjufullur fréttamaður spurði hann hvort hann hefði ekki áhyggjur af væntanlegu mannfalli í Írak. Svar hans var að ekki munu fleiri falla en hefðu farist í “bílslysum” hvort eð er.
Írakar eru eða voru 23 mil. manna þjóð, tölfræðin segir að 2166 manns farist í bílslysum á ári í Írak eða 6500 síðan 2003. Nú eru fallnir á sama stað og sama tíma orðnir hundrað sinnum fleiri eða 650.000.
Fór eitthvað úrskeiðis eða eru íslenskir stjórnmálamenn bara hundraðfaldir?
Úr því að ég er byrjaður kemur ein í lokin:
Sjálfsmorðssprengjumenn hjá Íslam fara beint til himnaríkis og fá 70 hreinar meyjar að launum ef þeim tekst að drepa óvininn.
Þá er það spurniningin: Hver telur þú laun íslamska mannsins sem gerði sjálfsmorðssprengjuárás á íslensku hjúkrunarliðanna í Kjúklingastræti um árið? Heldur þú að hann hafi mætt niðurskurði vegna þess að skotmarkið var hjúkrunarliðar en ekki hermenn, eða kanske fengið tómar kellingar???
November 28th, 2006 at 19:34
ég hugsaði einmitt með mér, nei, sko, Hjálmar er greinilega röksemdafærslumaður (eins og málafærslumaður) Framsóknarflokksins. Er alveg búin að gleyma hvað málefnið var, en ég sver að hann sagði nákvæmlega það sama um einhvern annan hlut í sumar. Aumingja maðurinn. En hann gæti örugglega haldið því fram að það hafi verið eitthvað allt annað, óskylt efni.
November 28th, 2006 at 19:56
Vísbendingarnar eru margar og órækar: Hjálmar þarf að skipta um starf.
November 28th, 2006 at 22:48
Framsóknarliðið þarf allt að skipta um starf.
November 28th, 2006 at 23:14
Aldrei þessu vant var ég ánægð með Hjálmar og óánægð með Þórunni. Af hverju þurfti hún að sjá allt neikvætt þegar framsóknarmaðurinn játaði að hafa haft rangt fyrir sér? Það hefði komið betur út ef hún hefði fengið Hjálmar til að styðja sig í að fá Halldór til að biðja þjóðina afsökunar á stuðningi sínum við stríðsglæpina
November 29th, 2006 at 00:27
Þeir eru sleipir í rökfræðinni framsóknarmennirnir, þegar Jón formaður var spurður af hverju ætti bara að lækka skattinn á bækur en ekki tónlist skildi hann ekkert í því af hverju tónlistarmenn væru að væla, þeir væru ekkert verr staddir en áður… ef ég á tvo krakka sem ég er almennt frekar leiðinlegur við og ákveð einn daginn að vera góður við annan þá þýðir ekkert fyrir hinn að verða súr, hann er í sömu stöðu og áður. Þetta er frábær lógíg í pólitík og mætti vera notuð við fleiri tækifæri á fleiri hópa.
November 29th, 2006 at 00:45
Það hefur fátt verið eins sorglegt fyrir okkur (ég leyfi mér að segja “okkur” af því að ég veit að um almannaróm er að ræða - er þetta ekki stórkostleg ósvífni:)) að sjá þann góða skólamann og vin Hjálmar Árnason vera í endalausum skítahreinsunum fyrir Framsóknarflokkinn. Hjálmar hefur það þó fram yfir hinn fyrrum skólameistarann (sem var þó víst heldur slakur sem slíkur) Jón Sigurðsson - að Hjálmar Árnason er ekki hrokagikkur. Hjálmar Árnason er bara einn af þessum mönnum sem fékk það í magann að það væri landi og þjóð til heilla að hann væri á Alþingi - það var reyndar misskilningur, en það hafa fleiri verið haldnir honum.
November 29th, 2006 at 11:18
Svipað og Sigurður Kári og Björn Ingi sögðu í Silfri Egils; “miðað við þær forsendur á þeim tíma var rétt að ráðast inní Írak”. Þetta má heimfæra svona ; “Við gerðum klárlega mistök… en ef það hefðu fundist efnavopn í Írak og ef það hefðu fundist Al-Qaída búðir þar … þá væru það ekki mistök en Bush sagði annað og því var rétt hjá okkur að styðja innrásina!” Það er til fólk sem kýs þessa snáða! Svo eru þessir vitleysingar í ábyrgðarstöðum á vegum hins opinbera (þrátt fyrir að Björn Ingi hafi aðeins rúm 5% á bak við sig og Siggi Kári keyrði fullur, tvisvar!!!) Hver tekur svona menn alvarlega.
November 29th, 2006 at 18:45
Fólk nottla deyr ekki vegna fótboltaúrslita, en Ok, skemmtileg samlíking.