Banatilræði
Í kvöld var mér sýnt banatilræði. Það kom úr óvæntri átt. Ekki átti ég von á að Steinunn vildi mig feigan.
Þegar ég kom heim úr boltanum í kvöld og rölti inn í eldhús að sækja mér vatnsglas, lá freistandi lítill Baby-Bel ostur á eldhúsbekknum. Eins og dyggir lesendur þessarar síðu vita, er ég sólginn í Baby-Bel osta. Jafnvel þegar þröngt er í ári og VISA-kortið notað til hins ýtrasta, á ég það til að smeygja einu neti af Baby-Bel í innkaupakörfuna, þótt þessi vesælu sex oststykki kosti tæpan 300 kall.
Fyrsta hugsun mín var vitaskuld: nú ber vel í veiði - Steinunn hefur farið í búðina, keypt Baby-Bel en einhverra hluta vegna skilið eitt stykkið eftir á borðinu.
Eðlileg viðbrögð hefðu verið að rífa utan af ostinum, sökkva tönnunum í hann og sporðrenna í tveimur bitum. - En einhver efi nagaði mig. Ég skildi ekki hvað Steinunn hefði átt að þvælast út í búð á miðju kvöldi. Og í ísskápnum var ekki að finna aftekið net af Baby-Bel.
Í tortryggni minni hélt ég aftur af osta-fíkninni og spurði Steinunni, sem skriðin var upp í rúm, hvernig stæði á ostinum frammi á borði. “Já hann” - svaraði hún - “ég var að gramsa í ferðatöskunni okkar frá því að við fórum í brúðkaupið til Belgíu í sumar og rakst á þennan gamla ost. Ætlaði einmitt að skoða hvort hann væri orðinn grænn, en gleymdi því svo…”
Nú er ég hvorki læknir, næringarfræðingur né sérfræðingur á sviði efnavopnahernaðar - en það skal enginn segja mér annað en að ostur sem geymdur hefur verið í fjóra mánuði við stofuhita sé baneitrað helvíti. Ætli þetta sé ekki það næsta sem ég hef komist dauðanum?

November 22nd, 2006 at 01:57
Nei, það var þegar þú storkaðir örlögunum og gerðist dómari í Gettu betur öðru sinni … gamlir ostar eru eins og gömul vín - og gamlir cevrolettar - þeir deyja (og drepa) ekki, þeir verða bara snarpari …
November 22nd, 2006 at 09:27
…spennó… prófaðu og láttu okkur svo vita (ætli ég teljist nú vera samsek?)
November 22nd, 2006 at 10:25
ostur verður bara betri við geymsli í stofuhita, það eru til margir gamlir ostar sem kosta storfé.
November 22nd, 2006 at 15:56
Frambjóðandi í prófkjöri VG á höfuðborgarsvæðinu var í dag handtekinn eftir að hafa sýnt eiginmanni sínum banatilræði. Er hún nú í gæsluvarðhaldi.
November 22nd, 2006 at 17:47
Mér sýnist að fleiri en spúsa þín vilji þig feigan, nafni sæll. Frekar óhugnanlegt. Minnir á fregnir af fólk sem hópast hugfangið saman við háhýsi til að horfa á sjálfsmorðingja á hyldýpisbrún og kyrja í æstum kór: “Stökktu! Stökktu!” Ljótur leikur atarna! Snertu ekki ostinn fyrr en þú hefur fengið vísindalegar upplýsingar um að það sé óhætt og allra helst skaltu senda hann upp á Keldur eða vottever í rannsókn…
November 22nd, 2006 at 19:37
Þú hefðir komis nær dauðanum ef ég hefði farið yfir á rauðu á Snorrabrautinni í gærkvöldi þegar þú stormaðir þar yfir. Þá hefði ég líklega farið yfir þig.