Hoover á tröppunum?

Sagan segir að þegar Johnson forseti var spurður að því hvers vegna hann losaði sig ekki við Edgar J. Hoover, hafi hann svarað eitthvað á þá leið að betra væri að hafa Hoover inni í tjaldinu að pissa út - en fyrir utan það og pissa inn.

Mér varð hugsað til þessara orða í morgun þegar famelían rak nefið út í snjóinn og uppgötvaði að fyrir framan útidyrahurðina á Mánagötunni voru stórir hlandblettir í snjónum. Það bendir til að í morgunsárið hafi einhver þrjóturinn staðið og migið utan í húsið - kannski í pólitískum tilgangi, listrænum eða vegna þess að viðkomandi var mál að pissa.

Samkvæmt hugmyndafræði Johnsons forseta hefðum við betur boðið dónanum í bæinn og horft skellihlæjandi á hann spræna út um stofugluggann. Sé ekki alveg hvað hefði verið unnið með því.

# # # # # # # # # # # # #

Frambjóðandinn Steinunn verður í viðtali í þætti Andrésar Jónssonar kl. 13 á morgun, mánudag. Á það skal hlustað.

6 Responses to “Hoover á tröppunum?”

  1. Stefán Hrafn Hagalín Says:

    Í fyrsta lagi veltir maður fyrir sér hvort ekki sé mögulegt að þarna hafi verið á ferðinni ferfætlingur þar sem stærri eintökin af þeim skilja gjarnan eftir sig hressilega stóra hlandpolla hist og her… Í annan stað hefði Johnson boðið sennilega viðkomandi inn og sent hann á klósettið — en var það ekki annars Johnson sem þótti af sumum svo vitgrannur að hann gæti ekki slysalaust gengið og samtímis jórtrað á tyggjó?

  2. SHIFT-3 Says:

    Það var nú Ford sem sagður var svona vitgrannur.

    Ford var gömul ruðningskempa og héldu andstæðingar hans því fram að hann hefði spilað of mikið án hjálms.

  3. Varríus Says:

    Pissukommentið hef ég reyndar líka heyrt haft eftir Laurence Olivier, þegar menn undruðust þá ákvörðun hans að gera helsta skelfinn í gagnrýnendastétt, Kenneth Tynan, að næstráðanda sínum við stjórn breska Þjóðleikhússins.

  4. Stefán Says:

    Já, þetta er ein af þessum tilvitnunum sem hefur verið eignuð ansi mörgum.

    Sjaldnast eru tilvitnanir sem þessar upprunalega komnar frá frægu köllunum sem þær eru eignaðar heldur einhverju nóboddíinu sem enginn þekkir í dag.

  5. Stefán Hrafn Hagalín Says:

    Ég stend leiðréttur… :-) Annars væri gaman að rifja upp fleiri svona ráðningar þar sem menn fóru eftir þessu mottói að fjandvinasambúð sé hyggileg. Eitt ágætis dæmi um það er ráðning Össurar á Bigga Hermanns eftir að sá síðarnefndi hafði kallað yfirsvilann mestan vindhana íslenskra stjórnmála — eða sirka það! Svínvirkaði það ekki? Mig minnir það.

  6. Sverrir Says:

    Einu sinni mun kunningi Oscars Wilde hafa sagt eitthvað svo snjallt að skáldinu varð að orði: Ég vildi að ég hefði sagt þetta.

    Fékk hann þá svarið: Þú átt eftir að hafa sagt þetta.