Minn maður tapaði

Úff, ekki var sniðugt að vaka til klukkan þrjú í nótt til þess eins að fá sundurlausar fréttir á netinu af þessum bandarísku kosningum. Skil ekki hvers vegna Sjónvarpið var ekki með kosningavöku – nógu mikið fjalla þeir um þessar kosningar í fréttatímunum.

Þau úrslit sem ég beið eftir með mestri eftirvæntingu var í fylkisþingskosningunum í Norður-Karólínu, nánar tiltekið í kjördæmi 116 í Buncombe.

Doug vinur minn frá því í Edinborg var frambjóðandi Demókrata gegn einhverjum slöttólfi úr Repúblikanaflokknum. Samkvæmt heimasíðu þingsins tapaði Doug, en nákvæm úrslit finn ég ekki. Þetta er ergilegt, enda Doug ungur og metnaðarfullur pólitíkus sem hefði átt fullt erindi á þing.

4 Responses to “Minn maður tapaði”

  1. NN Says:

    Þetta hefur þó greinilega verið naumt:

    http://www.citizen-times.com/apps/pbcs.dll/article?AID=200661107083

  2. Systa Says:

    Það eru ríki í Bandríkjunum ekki fylki, þannig að það voru ríkiskosningar en ekki fylkiskosningar, ríkjunum er svo skipt í sýslur.

  3. Þ. Says:

    Og orti þó Einar Benediktsson um “fylkjaforsetans morð”.

  4. Helga Vala Says:

    það er greinilegt að Rúv þarf ekki lengur að vanda sig og standa í samkeppni eftir að NFS lokaði.