Archive for October, 2006

Komið og sjáið!

Tuesday, October 24th, 2006

Um daginn var ég beðinn um að taka að mér smáverkefni.

Félag kvikmyndafræðinema stendur fyrir sýningum í Stúdentakjallaranum á þriðjudagskvöldum og í kvöld á ég að kynna óformlega myndirnar sem sýndar verða.

Þetta verkefni virtist sakleysislegt - en það er búið að eyðileggja fyrir mér daginn.

Lokamynd kvöldsins er nefnilega Komið og sjáið, hvítrússnesk mynd frá 1985. Ég sá þessa mynd fyrir mörgum, mörgum árum síðan og það er eitthvert versta sjokk sem ég hef orðið fyrir. Engin önnur kvikmynd hefur haft önnur eins áhrif á mig og margar senurnar límdust í huga mér og sátu þar í mörg ár.

Núna eru þær búnar að vera að rifjast upp hver á fætur annarri - og depurðin eykst í beinu samhengi. Mig langar mest að fara skæla og halda svo beint heim að leika við litlu stelpuna mína - og gleyma svo öllu um þessa kvikmynd.

Það eru víst allir velkomnir í Stúdentakjallarann í kvöld. Dagskráin hefst kl. 20 á stuttum myndum áður en ósköpin dynja á. Ef þið viljið sjá ógleymanlega bíómynd þá mætiði í kvöld… en það er búið að vara ykkur við afleiðingunum.

Kannastu við kauða? Úrslit X umferðar

Tuesday, October 24th, 2006

Sverrir var þremur mínútum á undan Finnboga með svarið.

Jón Gerreksson Skálholtsbiskup hafði forgöngu um að kaupa aftur til landsins börn sem hneppt höfðu verið í ánauð í Bretlandi. Hann var hálærður, en það aftraði Íslendingum ekki frá því að drekkja honum.

Hinir írsku sveinar Jóns eru sagðir grafnir í Íragerði, en það er einmitt götuheiti á Stokkseyri.

Staðan eftir tíu umferðir af þrettán: 

2 stig: Ingibjörg Haraldsdóttir & Nanna Rögnvaldardóttir. 

1 stig: Arndís Dúnja, Þórdís Gísladóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Benedikt Waage, Finnbogi Óskarsson & Sverrir Jakobsson.

Kannastu við kauða? X umferð, 2. vísbending

Tuesday, October 24th, 2006

Örnefni nokkurt á Suðurlandi tengist sögu þessa manns. Örnefni þetta er jafnframt götuheiti á Stokkseyri. Hver er maðurinn?

Kannastu við kauða? X umferð

Tuesday, October 24th, 2006

Maðurinn sem um er spurt hlaut menntun sína í Prag, en einnig í París og Köln samkvæmt sumum heimildum. Hann var því í hópi menntuðustu manna sinnar tíðar.

Maður þessi var frumkvöðull í baráttu gegn mansali og kom fórnarlömbum þess til hjálpar.

 # # # # # # # # # # # # #

Datt inn í viðtal við Guðfinnu Bjarnadóttur á Útvarpi Sögu á leiðinni í vinnuna. Þar spurði dagskrárgerðarmaðurinn út í afstöðu frambjóðandans til Evrópusambandsins.

Svarið byrjaði eitthvað á þessa leið: “Nú er ég alveg sannfærð um að í framtíðinni - hvort sem það er eftir nokkra áratugi eða nokkrar aldir, þá munum við fá eina alheimsstjórn.” Svo hélt hún aðeins áfram að lýsa þessari framtíðarsýn um veröld þar sem jörðin væri eitt þjóðríki - en bætti svo við að mannkynið væri kannski ekki búið að ná þessum þroska ennþá og í millitíðinni mætum við okkar stöðu… blablabla… meiri hagsmunir fyrir minni… blablabla… og svo framvegis.

Ég komst helst að þeirri niðurstöðu að frambjóðandinn vilji ganga í Evrópusambandið daginn sem heimsbyggðin verður farin að hugsa eins og John Lennon.

Kannastu við kauða? Úrslit IX umferðar

Monday, October 23rd, 2006

Ég er svo aldeilis bit! Ekki átti ég von á því að þessi spurning félli á fyrstu vísbendingu, en glæsilega gert hjá Nönnu!

Hendrik Ottósson var maðurinn. Tilvitnunin (sem er gúggl-held) var fengin úr niðurlagsorðum Vegamóta og vopnagnýs. Þetta eru falleg orð og með flottari tilvitnunum.

Næsta vísbending var ekki alveg tilbúin en hefði verið eitthvað á þessa leið:

Það væri ef til vill fulldjúpt í árina tekið að kalla mann þennan njósnara, en hann safnaði þó upplýsingum um nasista og kom þeim á framfæri til fulltrúa erlendra ríkja.

Þriðja vísbending hefði tengst síldarsölu og upphafi viðskiptasamninga við Sovétríkin. - Eða eitthvað um Gvend Jóns og félaga…

Staðan eftir níu umferðir af þrettán: 

2 stig: Ingibjörg Haraldsdóttir & Nanna Rögnvaldardóttir. 

1 stig: Arndís Dúnja, Þórdís Gísladóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Benedikt Waage & Finnbogi Óskarsson.

Kannastu við kauða? IX umferð

Monday, October 23rd, 2006

Staðan eftir átta umferðir af þrettán: 

2 stig: Ingibjörg Haraldsdóttir. 

1 stig: Nanna Rögnvaldardóttir, Arndís Dúnja, Þórdís Gísladóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Benedikt Waage & Finnbogi Óskarsson.

Níunda spurning:

Maðurinn sem um er spurt skrifaði:

Gæfa mín hefir verið meiri en flestra annarra. Hefir hún fylgt mér frá upphafi og til þessa dags.

Fótabæklun sú, er ég hlaut í fæðingu hefir orðið mér gæfa. Henni á ég það að þakka, að ég hefi skilið betur aðra menn og sérkenni þeirra en ella, en sá maður, sem skilur aðra, hefir losnað úr andlegum einbýlishætti. Hann tekur þátt í mannlegri samhyggð og er hamingjusamur.

# # # # # # # # # # # # #

Í síðustu viku hágrét barnið þegar það var skilið eftir á leikskólanum og svikabrigslin í augnaráðinu voru yfirþyrmandi. Í morgun ætlaði ég að spjalla við Boggu yfirfóstruna á gulu deildinni (jájá, ég veit að það heitir leikskólakennari), þegar Ólína sneri sér við og veifaði mér bless - sem kurteislega ábendingu um að nærveru minnar væri ekki óskað lengur…

Ætli það sé ekki bara tímaspursmál hvenær hún flytur að heiman?

Spy vs. Spy

Friday, October 20th, 2006

Þær voru skemmtilegar teiknimyndasögurnar um njósnarana tvo í MAD-blöðunum í gamla daga (og birtast raunar enn). Þar áttust við tveir njósnarar – sá svarti og sá hvíti. Skiptust þeir á að vinna hinum mein með klækjabrögðum, nema í örfáum sögum sem hétu Spy vs. Spy vs. Spy – þar sem þriðji njósnarinn, gráklætt klækjakvendi skaut báðum ref fyrir rass.

 

Mér er til efs að raunverulegir njósnarar líti út eins og fígúrurnar í Spy vs. Spy. Er ekki grundvallaratriði í störfum njósnara að geta starfað með leynd og án þess að grunur falli á þá? Spyr sá sem ekki veit.

 

Nú er því haldið fram að íslenskir ráðamenn hafi haft af því áhyggjur að Svavar Gestsson, fyrrum námsmaður í Austur-Berlín, ritstjóri Þjóðviljans og þingmaður Alþýðubandalagsins hafi njósnað fyrir STAST – leyniþjónustu Austur-Þýskalands. Virðast menn hafa álitið framangreind tengsl sérstök rök fyrir því að Svavar hefði verið ákjósanlegur njósnari. – Í mínum huga hefði Svavar Gestsson einmitt verið versti kostur STASI til njósna á Íslandi.

 

Ég er þó ekki að segja að ráðning Svavars hjá yfirvöldum í Austur-Berlín hefði verið vitlausasta ráðning njósnara sem hugsast gæti. Hér fylgja nokkrar tillögur að ráðningarmálum sem væru jafnvel vanhugsaðri:

 

1. Baldur Þórhallsson, ráðinn af Evrópusambandinu til að komast inn í raðir ESB-andstæðinga í Heimssýn og senda skýrslur um þá til Brüssel.

 

2. Helgi Hóseason, ráðinn af trúleysingjasamtökunum Vantrú til að fylgjast með biskupi og öðrum hæstráðendum Þjóðkirkjunnar.

 

3. Andrés Magnússon, ráðinn af Mossad til að hafa eftirlit með Félaginu Ísland-Palestína. Mögulega gæti Andrés fengið vinnuaðstöðu á sjónvarpsstöðinni Ómega og haft hana sem yfirvarp.

 

4. Björn Bjarnason, ráðinn af CIA til að fylgjast með íslenskum friðarsinnum.

 

5. Árni Finnsson, fenginn af Greenpeace til að ráða sig sem flensara í hvalstöðina til að afla mikilvægra gagna.

 

6. Smári Geirsson, ráðinn af Iðnaðarráðuneytinu til að kynna sér starfsemi virkjanaandstæðinga.

 

7. Örn Clausen, ráðinn af landssambandi karlrembusvína til að spæja um Feministafélagið.

 

8. Kristinn H. Gunnarsson, fenginn af stjórnarandstöðunni til að ganga í raðir Framsóknarflokksins og starfa þar sem fimmta herdeild… uhh… nei annars – slæmt dæmi.

 

9. Snorri Óskarsson í Betel, skipaður af HAKK (Hagsmunaráði kynvísra karlmanna) til að grafast fyrir um helstu leyndarmál Samtakanna 78.

 

10. Sindri Eldon, fenginn af Reykjavík Grapevine til að snuðra um aðdáendaklúbb Bubba Morthens og afhjúpa djúsí innanfélagsslúður.

Kannastu við kauða? Úrslit VIII umferðar

Friday, October 20th, 2006

Efnafræðingurinn Finnbogi átti ekki í vandræðum með að bera kennsl á skáksnillinginn Karpov, sem berst fyrir því að joði sé bætt í salt.

Staðan er því: 

2 stig: Ingibjörg Haraldsdóttir. 

1 stig: Nanna Rögnvaldardóttir, Arndís Dúnja, Þórdís Gísladóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Benedikt Waage & Finnbogi Óskarsson.

Fimm umferðir eftir. Sjáum til hvenær næsta spurning kemur.

Kannastu við kauða? VIII hluti, fyrsta vísbending

Friday, October 20th, 2006

Staðan eftir sjö umferðir af þrettán er þessi:

2 stig: Ingibjörg Haraldsdóttir. 

1 stig: Nanna Rögnvaldardóttir, Arndís Dúnja, Þórdís Gísladóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson & Benedikt Waage.

Aðrir minna.

* * *

Maðurinn sem um er spurt hefur á síðustu árum verið í fararbroddi þeirra sem berjast fyrir því að joði sé bætt út í salt í þeim hlutum heimsins þar sem joðskortur er vandamál.

Jafnframt hefur hefur hann hlotið viðurkenningar fyrir starf sitt að verndun og endurbyggingu kirkna og klaustra í heimalandi sínu.

Maðurinn hefur leikið sjálfan sig í kvikmynd.

Kannist þið við kauða?

Jesúkomplexinn ræktaður

Friday, October 20th, 2006

Var það siðlaust af mér að spyrja um sjálfan mig í síðustu spurningu? Tja, hér er Jesúkomplexinn að verki. Það er algjörlega útpælt að spurt sé um þrettán karlmenn í þessari spurningakeppni - og að ég yrði nafnið í miðjunni.

Það má líta svo á að ég sé að stilla upp fyrir kvöldmáltíð - lesendur verða sjálfir að giska á hver er Júdas.

En að síðustu spurningu:

Á aldrinum 14-15 orti sá er þetta ritar eitthvað af ljóðum og sankaði að sér súrrealískum ljóðakverum. Drenginn með röntgenaugun las ég oftar en góðu hófi gegnir. Þetta bráði snarlega af mér síðasta veturinn í gaggó.

Myndlistarsýningin sem um var getið tengdist listahátíð æskunnar - eða einhverju svipuðu batteríi. Kallað var eftir verkum um samspil manns og hafs. Við fjórða mann útbjó ég stóran járnbala, fyllti hann af sandi, sjó og drasli. Síðan settum við dúkku í flæðarmálið, sem hélt um garðslöngu. Slangan var aftur tengd í litla sprautukönnu með bensíni - og gátu gestir og gangandi sprautað vænum bensínslurk út í þetta litla vistkerfi. Það reyndi mjög á þeffæri viðstaddra, enda var þessi sýningarsalur oftast nær tómur.

Í lok sýningar fengu allir viðurkenningarskjöl, þar á meðal Úlfur Eldjárn félagi minn sem hafði samið tónverk á saxófón. Í ljós kom hins vegar að peningaverðlaunin komu bara í hlut hópverkefna - þ.e. heilu barnakórarnir eða grunnskólaárgangarnir sem höfðu sent inn sameiginleg verkefni fengu pening… og svo við fjórmenningarnir, því við vorum jú hópur. Þegar Úlfur stóð með viðurkenningrskjalið í höndunum og sá okkur hina skipta gróðanum varð hann nokkuð pirraður - en eftir að ég benti á að nóg hefði verið fyrir hann að skrá tvo vini sína sem meðhöfunda verksins til að komast í álnir, varð hann foxillur í viku.

Auglýsingin góða frá Kaupfélögunum hefur þegar verið birt hér í athugasemdakerfinu. Síðar komum við Maggi finnski að því að semja handrit að sjónvarpsþætti um sögu SÍS.

Viðtalið með stuðningsyfirlýsingunni við Viggu Finnboga birtis í tímaritinu Fólk, þar sem börn á Grænuborg voru tekin tali.

Næsta spurning kemur bráðum.