Ef þú ætlar…

…að kjósa þennan glæsilega frambjóðanda þann 2. desember…

…þá þarftu bara að ganga í flokkinn fyrir 25. nóvember.

Og það er líka hægt að kjósa bréflega frá útlöndum!

# # # # # # # # # # # # #

Fór í Blóðbankann í gær og lét tappa af. Er kominn upp í 36 gjafir, sem er dálaglegt miðað við hvað mér gengur alltaf illa að muna eftir þessu.

Fékk staðfest að blóðþrýstingurinn væri í besta lagi, en í vor var hann óþarflega hár.

Einn helsti kosturinn við að gefa blóð reglulega er að fá upplýsingar um þessa hluti. Og svo er bakkelsið svo ágætt.

One Response to “Ef þú ætlar…”

  1. múmba Says:

    Næsta skref er svo að ráða Jón Kristinn Snæhólm til liðs við fjölskylduna og hefja smölun.