Kannastu við kauða? - Framlenging, 1.hluti

Jæja, þrír lentu í efsta sæti í þessari skemmtilegu spurningakeppni. Þar sem afdráttarlaus úrslit fengust ekki í þrettán spurningum hef ég ákveðið að grípa til framlengingar. Hún verður með þeim hætti að haldið verður áfram að spyrja um menn, þar til einhver þátttakandi nær þremur stigum - það þýðir að Ingibjörg, Nanna og Gísli þurfa aðeins að svara einni spurningu rétt til að vinna, en aðrir ýmist tveimur eða þremur.

Í fyrsta hluta framlengingar er spurt um mann. Hann starfaði um tíma sem huglæknir og spámaður í Belgíu og kallaði sig þar Emarson. Það er fjarri því eina dulnefnið sem hann notaði um ævina.

Kannist þið við kauða?

# # # # # # # # # # # # #

Ólína fór í 18 mánaða læknisskoðun í morgun. Dómur heilbrigðiskerfisins er á þá leið að barnið sé aðeins yfir meðallagi stórt, rétt yfir meðallagi þungt og nokkuð skýr miðað við aldur.

Hljómar þetta ekki nákvæmlega eins og lýsing á pabba hennar?

4 Responses to “Kannastu við kauða? - Framlenging, 1.hluti”

  1. Nanna Says:

    Karl Dunganon greifi af St. Kilda?

  2. Stefán Says:

    Hah! Og þar fengum við úrslit.

    Til hamingju með sigurinn Nanna! Það voru engin verðlaun í boði en þeim mun meiri heiður.

    Dunganon kallaði sig raunar hertoga af St. Kildu en ekki greifa - við áhugafólkið um St. Kildu höfum reyndar alltaf látið það fara í taugarnar á okkur, en látum það liggja á milli hluta.

  3. Nanna Says:

    Alveg vissi ég að eitthvað gott kæmi út úr þessu flutningaveseni um helgina. Ein af bókunum sem ég var að setja í kassa á laugardaginn var nefnilega Paradísarvíti Þráins Bertelssonar og þess vegna mundi ég eftir Karli og kukli hans.

  4. kolbeinn Says:

    Ja ef faðirinn heldur því fram að hann sé ekki bara rétt yfir meðallagi þungur, heldur einnig aðeins yfir meðallagi stór þá þjáist hann af meira mikilmennskubrjálæði en ég hélt.