Dónaleg dagblöð

Allir eru ævareiðir yfir því að danskt dagblað hafi skrifað óvirðulega um Íslendinga. Það er víst öfundsýki sem ræður þessum skrifum. Held að ég hafi heyrt fjóra spjallþætti í útvarpinu í dag um hvað þetta væri ill framkoma hjá Dönum.

Fyrir nokkrum vikum birti Mogginn fréttaskýringu um glæpastarfsemi á Íslandi. Hún gekk öll út á að Litháen væri glæpastía og þorp þar í landi amfetamínhöfuðstaðir Evrópu. Yfir þessu var flennistór mynd af litháíska fánanum.

Það er greinilegt að Íslendingar eru óskaplega öfundsjúkir út í Litháa.

Comments are closed.