Kannastu við kauða? - Úrslit IIX umferðar

Ekki vafðist þetta fyrir Birni Jónssyni.

Charles Darwin er frægasti sonur borgarinnar Shrewsbury.

Þaðan kom einnig sveitin T´Pau, sem gerði lagið China in your hand.

Ein spurning eftir og spennan í hámarki.

7 Responses to “Kannastu við kauða? - Úrslit IIX umferðar”

  1. Ragnar Says:

    Anna Dúnja sagði Charles Lindbergh en afi hans var fyrstur til að nota postulín í tennur og síðar í ofna. Hann var frá bænum Darien í Connecticut eins og tónlistarmaðurinn Moby en eitt af hans frægari lögum heitir einmitt Porcelain.

    Verður ekki að gefa henni rétt líka?

  2. Stefán Says:

    Það hefði kannski mátt færa fyrir því rök ef svar hennar hefði borist áður en Björn kom með svarið um Darwin. En þar sem hann var sannarlega fyrstur til að koma með rétt svar fær hann stigið.

  3. Nanna Says:

    Lindbergh bjó vissulega í Darien frá 1946 en hann var fæddur í Detroit.

  4. BIRD Says:

    Takk fyrir Steve Howard og stigið.
    Lindbergh fæddist í Detroit en flutti 44 ára til Darien, Conn.
    Howard er í miklum metum meðal vor Hrúta nú þegar. Lunkinn, sterkur, marksækinn og duglegur.
    Og afi Darwins var Wedgwood, svo því sé komið að.

  5. JBJ Says:

    IIX?

  6. Már Says:

    Einmitt það sem JBJ segir: IIX ??!!

    Ertu kannski bara að fokka í hausnum á okkur einhverfu nördunum?

  7. Mamma Says:

    Þú ert kannski bara með “talnablindu” (sbr. lesblindu) eins og Þóra systir þín segist hafa. Þá víxlar maður einmitt oft tölustöfum!