Kannastu við kauða? XI umferð

Staðan eftir tíu umferðir af þrettán: 

2 stig: Ingibjörg Haraldsdóttir & Nanna Rögnvaldardóttir. 

1 stig: Arndís Dúnja, Þórdís Gísladóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Benedikt Waage, Finnbogi Óskarsson & Sverrir Jakobsson.

Maðurinn sem um er spurt átti tólf systkini, sem þó komust ekki öll á legg.

Ekki er vitað um fæðingardag hans og jafnvel er deilt um fæðingarstaðinn. A.m.k. tvö ríki gera “tilkall” til þessa manns.

Hann var sagður tala sjö tungumál, en lærði aldrei að skrifa. Engu að síður samdi hann nokkrar bækur með hjálp skrifara.

Hver er maðurinn?

3 Responses to “Kannastu við kauða? XI umferð”

  1. Gisli Says:

    Tenzing Norgay

  2. Stefán Says:

    Það er hárrétt. Var þetta svona létt - eða ertu sérstakur áhugamaður um Sherpa Gísli?

  3. Gisli Says:

    Ég las mikið um Hillary og Tenzing á sínum tíma, enda áhugamaður um fjallgöngur og almenna hreyfingu og kveikti strax á þessu.