Komið og sjáið!

Um daginn var ég beðinn um að taka að mér smáverkefni.

Félag kvikmyndafræðinema stendur fyrir sýningum í Stúdentakjallaranum á þriðjudagskvöldum og í kvöld á ég að kynna óformlega myndirnar sem sýndar verða.

Þetta verkefni virtist sakleysislegt - en það er búið að eyðileggja fyrir mér daginn.

Lokamynd kvöldsins er nefnilega Komið og sjáið, hvítrússnesk mynd frá 1985. Ég sá þessa mynd fyrir mörgum, mörgum árum síðan og það er eitthvert versta sjokk sem ég hef orðið fyrir. Engin önnur kvikmynd hefur haft önnur eins áhrif á mig og margar senurnar límdust í huga mér og sátu þar í mörg ár.

Núna eru þær búnar að vera að rifjast upp hver á fætur annarri - og depurðin eykst í beinu samhengi. Mig langar mest að fara skæla og halda svo beint heim að leika við litlu stelpuna mína - og gleyma svo öllu um þessa kvikmynd.

Það eru víst allir velkomnir í Stúdentakjallarann í kvöld. Dagskráin hefst kl. 20 á stuttum myndum áður en ósköpin dynja á. Ef þið viljið sjá ógleymanlega bíómynd þá mætiði í kvöld… en það er búið að vara ykkur við afleiðingunum.

3 Responses to “Komið og sjáið!”

  1. Hjalti Nönnuson Says:

    Ég biðst forláts á að hafa eyðilagt fyrir þér daginn, en það er skoðun okkar að þetta sé mynd sem þarf að sjást og á sérstaklega sterkt erindi í dag.

  2. Jóhannes Þ. Says:

    Þó ég sé áhugamaður um kvikmyndir og framsetningu sögu í kvikmyndum get ég bara ómögulega séð hvers vegna í ósköpunum þessi tiltekna mynd á “sérstaklega sterkt erindi” til fólks í dag. Myndin er algerlega kasúísk í stríðsfrásögn sinni og gefur lítið annað út á stríð sem fyrirbæri heldur en flestar aðrar stríðsmyndir sem framleiddar hafa verið frá því um 1980, þ.e. að stríð sé ógeðslegt og að stríð spilli mannssálinni. Ég myndi gjarnan fá nánari útskýringu á þessu. Er eitthvað sem ég er að missa af hérna? Og í guðana bænum ekki segja mér að Hvít-rússnesk kvikmynd um skæruhernað í síðari heimsstyrjöld eigi erindi við fólk í dag í einhvers konar samhengi við Íraksstríðið. Það væri bara einum of feit og mikil klisja.

  3. Svanur Says:

    Ég keypti eintak af þessari mynd síðasta vor. Ég man að við Valur Ingimundarson sýndum þessa kvikmynd í kúrsi sem hann var að kenna um sogulegt minni. Frábær kvikmynd en síðasti klukkutíminn eða svo er ekki til að koma manni í góða skapið.

    Ekki veit ég þó hvort myndin hafi eitthvað sérstakt erindi við fólk í dag, nema það hve áhrifamikil seinni heimsstyrjöldin var í minningu Rússa sé mikilvægt fyrir alla að gera sér grein fyrir.