Kannastu við kauða? X umferð
Maðurinn sem um er spurt hlaut menntun sína í Prag, en einnig í París og Köln samkvæmt sumum heimildum. Hann var því í hópi menntuðustu manna sinnar tíðar.
Maður þessi var frumkvöðull í baráttu gegn mansali og kom fórnarlömbum þess til hjálpar.
# # # # # # # # # # # # #
Datt inn í viðtal við Guðfinnu Bjarnadóttur á Útvarpi Sögu á leiðinni í vinnuna. Þar spurði dagskrárgerðarmaðurinn út í afstöðu frambjóðandans til Evrópusambandsins.
Svarið byrjaði eitthvað á þessa leið: “Nú er ég alveg sannfærð um að í framtíðinni - hvort sem það er eftir nokkra áratugi eða nokkrar aldir, þá munum við fá eina alheimsstjórn.” Svo hélt hún aðeins áfram að lýsa þessari framtíðarsýn um veröld þar sem jörðin væri eitt þjóðríki - en bætti svo við að mannkynið væri kannski ekki búið að ná þessum þroska ennþá og í millitíðinni mætum við okkar stöðu… blablabla… meiri hagsmunir fyrir minni… blablabla… og svo framvegis.
Ég komst helst að þeirri niðurstöðu að frambjóðandinn vilji ganga í Evrópusambandið daginn sem heimsbyggðin verður farin að hugsa eins og John Lennon.

October 24th, 2006 at 10:39
Stefán, Stefán, Stefán! Hvar eru konur sögunnar? Eru engar, bara alls engar nógu merkilegar til að hægt sé að hafa þær með í getraun sem þessari? Ekki skjóta þér á bakvið “kauða” aftur.
P.S. er farin að halda að sagnfræðiskor HÍ sé engan vegin að standa sig hvað varðar “jafna” umfjöllun um kynin. Alla vega er ekki að sjá svo á verkefnavali kollega þinna þegar að kemur að ævisöuritun.
October 24th, 2006 at 10:43
Það hefur komið skýrt fram að í þessari keppni verður spurt um 13 karlmenn - og mig í miðjunni, sem er augljós Biblíuskírskotun. Eins og kemur fram hér: http://kaninka.net/stefan/2006/10/16/kannastu-vi%c3%b0-kau%c3%b0a-ivhluti-fl/#comments hefur verið velt upp góðum tillögum að nöfnum á keppni þar sem spurt yrði um konur einvörðungu.
Stefni að því að halda hana fyrir jól.
October 24th, 2006 at 11:13
…….. og hvað er að því að halda hugsjónum John Lennon á lofti???
October 24th, 2006 at 11:22
Allnokkur rannsóknarvinna hefur leitt af sér þá ágiskun að spurt sé um Hírónýmus frá Prag (Jerome of Prague).
October 24th, 2006 at 12:16
Nikola Tesla?
October 24th, 2006 at 12:19
Fjandakornið, giska á Sæmund fróða