Kannastu við kauða? Úrslit X umferðar
Sverrir var þremur mínútum á undan Finnboga með svarið.
Jón Gerreksson Skálholtsbiskup hafði forgöngu um að kaupa aftur til landsins börn sem hneppt höfðu verið í ánauð í Bretlandi. Hann var hálærður, en það aftraði Íslendingum ekki frá því að drekkja honum.
Hinir írsku sveinar Jóns eru sagðir grafnir í Íragerði, en það er einmitt götuheiti á Stokkseyri.
Staðan eftir tíu umferðir af þrettán:
2 stig: Ingibjörg Haraldsdóttir & Nanna Rögnvaldardóttir.
1 stig: Arndís Dúnja, Þórdís Gísladóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Benedikt Waage, Finnbogi Óskarsson & Sverrir Jakobsson.

October 25th, 2006 at 11:23
Lokið er tíð minnar trúar á
þann tudda sem alþýðan púar á.
Nú finnst mér að héðan
sé fljótfarið með hann
í ferðalag austur að Brúará.
Best að tilfæra þessa limru sem tengist Jóni.