Kannastu við kauða? Úrslit IX umferðar

Ég er svo aldeilis bit! Ekki átti ég von á því að þessi spurning félli á fyrstu vísbendingu, en glæsilega gert hjá Nönnu!

Hendrik Ottósson var maðurinn. Tilvitnunin (sem er gúggl-held) var fengin úr niðurlagsorðum Vegamóta og vopnagnýs. Þetta eru falleg orð og með flottari tilvitnunum.

Næsta vísbending var ekki alveg tilbúin en hefði verið eitthvað á þessa leið:

Það væri ef til vill fulldjúpt í árina tekið að kalla mann þennan njósnara, en hann safnaði þó upplýsingum um nasista og kom þeim á framfæri til fulltrúa erlendra ríkja.

Þriðja vísbending hefði tengst síldarsölu og upphafi viðskiptasamninga við Sovétríkin. - Eða eitthvað um Gvend Jóns og félaga…

Staðan eftir níu umferðir af þrettán: 

2 stig: Ingibjörg Haraldsdóttir & Nanna Rögnvaldardóttir. 

1 stig: Arndís Dúnja, Þórdís Gísladóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Benedikt Waage & Finnbogi Óskarsson.

3 Responses to “Kannastu við kauða? Úrslit IX umferðar”

  1. Davíð Þór Says:

    … fulldjúpt í árinni tekið …

  2. Nanna Says:

    Ég mundi reyndar ekki eftir þessum texta þótt ég hafi einhverntíma lesið bókina. En þetta var greinilega skrifað af pennafærum íslenskum sósíalista um miðja síðustu öld og Hendrik var sá eini af því tagi sem ég mundi eftir sem ég vissi að var bæklaður á fótum frá fæðingu.

  3. jerrie Says:

    http://ksaee.org/