Kannastu við kauða? IX umferð

Staðan eftir átta umferðir af þrettán: 

2 stig: Ingibjörg Haraldsdóttir. 

1 stig: Nanna Rögnvaldardóttir, Arndís Dúnja, Þórdís Gísladóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Benedikt Waage & Finnbogi Óskarsson.

Níunda spurning:

Maðurinn sem um er spurt skrifaði:

Gæfa mín hefir verið meiri en flestra annarra. Hefir hún fylgt mér frá upphafi og til þessa dags.

Fótabæklun sú, er ég hlaut í fæðingu hefir orðið mér gæfa. Henni á ég það að þakka, að ég hefi skilið betur aðra menn og sérkenni þeirra en ella, en sá maður, sem skilur aðra, hefir losnað úr andlegum einbýlishætti. Hann tekur þátt í mannlegri samhyggð og er hamingjusamur.

# # # # # # # # # # # # #

Í síðustu viku hágrét barnið þegar það var skilið eftir á leikskólanum og svikabrigslin í augnaráðinu voru yfirþyrmandi. Í morgun ætlaði ég að spjalla við Boggu yfirfóstruna á gulu deildinni (jájá, ég veit að það heitir leikskólakennari), þegar Ólína sneri sér við og veifaði mér bless - sem kurteislega ábendingu um að nærveru minnar væri ekki óskað lengur…

Ætli það sé ekki bara tímaspursmál hvenær hún flytur að heiman?

8 Responses to “Kannastu við kauða? IX umferð”

  1. Svansson.net Says:

    Stefán frá Hvítadal?

  2. Örn Úlfar Says:

    Byron?

  3. Arndís Dúnja Says:

    Goebbels? :)

  4. Benedikt XVI Says:

    FDR?

  5. JY Says:

    Birkiland? Eða Guðmundur Haraldsson kannski, einhver af því taginu a.m.k.

  6. Nanna Says:

    Hendrik Ottósson?

  7. Ingibjörg Stefáns Says:

    Roosewelt?

  8. Baldur Says:

    Stefán Jónsson fréttamaður