Spy vs. Spy

Þær voru skemmtilegar teiknimyndasögurnar um njósnarana tvo í MAD-blöðunum í gamla daga (og birtast raunar enn). Þar áttust við tveir njósnarar – sá svarti og sá hvíti. Skiptust þeir á að vinna hinum mein með klækjabrögðum, nema í örfáum sögum sem hétu Spy vs. Spy vs. Spy – þar sem þriðji njósnarinn, gráklætt klækjakvendi skaut báðum ref fyrir rass.

 

Mér er til efs að raunverulegir njósnarar líti út eins og fígúrurnar í Spy vs. Spy. Er ekki grundvallaratriði í störfum njósnara að geta starfað með leynd og án þess að grunur falli á þá? Spyr sá sem ekki veit.

 

Nú er því haldið fram að íslenskir ráðamenn hafi haft af því áhyggjur að Svavar Gestsson, fyrrum námsmaður í Austur-Berlín, ritstjóri Þjóðviljans og þingmaður Alþýðubandalagsins hafi njósnað fyrir STAST – leyniþjónustu Austur-Þýskalands. Virðast menn hafa álitið framangreind tengsl sérstök rök fyrir því að Svavar hefði verið ákjósanlegur njósnari. – Í mínum huga hefði Svavar Gestsson einmitt verið versti kostur STASI til njósna á Íslandi.

 

Ég er þó ekki að segja að ráðning Svavars hjá yfirvöldum í Austur-Berlín hefði verið vitlausasta ráðning njósnara sem hugsast gæti. Hér fylgja nokkrar tillögur að ráðningarmálum sem væru jafnvel vanhugsaðri:

 

1. Baldur Þórhallsson, ráðinn af Evrópusambandinu til að komast inn í raðir ESB-andstæðinga í Heimssýn og senda skýrslur um þá til Brüssel.

 

2. Helgi Hóseason, ráðinn af trúleysingjasamtökunum Vantrú til að fylgjast með biskupi og öðrum hæstráðendum Þjóðkirkjunnar.

 

3. Andrés Magnússon, ráðinn af Mossad til að hafa eftirlit með Félaginu Ísland-Palestína. Mögulega gæti Andrés fengið vinnuaðstöðu á sjónvarpsstöðinni Ómega og haft hana sem yfirvarp.

 

4. Björn Bjarnason, ráðinn af CIA til að fylgjast með íslenskum friðarsinnum.

 

5. Árni Finnsson, fenginn af Greenpeace til að ráða sig sem flensara í hvalstöðina til að afla mikilvægra gagna.

 

6. Smári Geirsson, ráðinn af Iðnaðarráðuneytinu til að kynna sér starfsemi virkjanaandstæðinga.

 

7. Örn Clausen, ráðinn af landssambandi karlrembusvína til að spæja um Feministafélagið.

 

8. Kristinn H. Gunnarsson, fenginn af stjórnarandstöðunni til að ganga í raðir Framsóknarflokksins og starfa þar sem fimmta herdeild… uhh… nei annars – slæmt dæmi.

 

9. Snorri Óskarsson í Betel, skipaður af HAKK (Hagsmunaráði kynvísra karlmanna) til að grafast fyrir um helstu leyndarmál Samtakanna 78.

 

10. Sindri Eldon, fenginn af Reykjavík Grapevine til að snuðra um aðdáendaklúbb Bubba Morthens og afhjúpa djúsí innanfélagsslúður.

2 Responses to “Spy vs. Spy”

  1. Svansson.net Says:

    Mætti þá ekki fá félaga Stefán Pálsson til að njósna um íslenska herstöðvaandstæðina. ;)

  2. meta Says:

    http://ef32dweg.info