Archive for September, 2006

NFS

Tuesday, September 19th, 2006

Sum hús í miðbænum hafa hýst fjölda pöbba og skemmtistaða sem allir hafa farið lóðbeint á hausinn. Alltaf skal þó finnast nýr aðili til að opna nýja stað í þessum húsum - þótt allir aðrir sjái í hvað stefni.

Fjölmiðlabransinn íslenski er svipaður. Ekki hefur maður neina tölu á öllum magasín-blöðunum sem áttu að koma út einu sinni í viku (fimmtudaga eða föstudaga) og höfða til ungs fólks með umfjöllun um skemmtanalífið, tísku og tónlist. Í hvert sinn sem eitt svona blað fer á hausinn spretta tvö ný upp í staðinn.

NFS var svona ævintýri sem hlaut bara að fara á einn veg. Nákvæmlega hvað átti að vera svona snjallt við það konsept í sjónvarpi að sýna Heimi Má Pétursson lesa í beinni útsendingu af bloggsíðum þingmanna?

Ég notaði NFS sem útvarpsstöð. Held að lengst hafi ég enst yfir stöðinni í sjónvarpi í svona kortér, en í bílnum rambaði ég stundum inn á NFS. Hún virkaði alltaf miklu betur þannig.

Minn gamli félagi Róbert Marshall er greinilega ansi örvæntingarfullur. Ekki skil ég hvernig hann hafði hugsað sér að opna bréfið til Jóns Ásgeirs ætti að geta bjargað honum. Hins vegar gefur það gárungum færi á ýmsum bröndurum. Mæli með þessari færslu Sigmars Guðmundssonar.

# # # # # # # # # # # # #

Steinunn átti afmæli í gær. Þótt ekki hefði verið ætlunin að vera með neitt tilstand að þessu tilefni komumst við að þeirri niðurstöðu að slá af fiskibollurnar sem búið var að taka úr frystinum og keyptum í staðinn hamborgara frá Vitabar. Það passaði vel, því Freyr og Freyja komu í heimsókn og tóku þátt í hamborgaraveislunni.

Við keppumst við að leiða þær Freyju og Ólínu saman, í þeirri von að það herði barnið aðeins fyrir leikskólann. Hún er þó ennþá hálfskelkuð við Freyju og leyfir henni að rífa af sér alla mögulega hluti möglunarlaust. Það verður að fara að ala upp í krakkanum frekjuna.

Ævisögur mikilmenna

Friday, September 15th, 2006

Notaði gærkvöldið í að kynna mér ævisögur tveggja mikilmenna.

Á Sýn mátti sjá þátt um líf og feril Maradonna, í umsjón Gary Linekers. Maradonna er flottasti fótboltamaður síðustu 20 ára og raunar líklega sá besti í sögunni. Einu sinni reyndi Bylgjan í aprílgabbi að telja fólki trú um að Maradonna væri genginn í raðir FRAM (til að sleppa við dóm vegna lyfjaneyslu á Ítalíu) og að hann myndi leika 4-5 leiki fyrir Safamýrarliðið. Held að enginn hafi látið platast - en ég væri alveg til í að sjá Maradonna í bláa búningnum hérna á skerinu.

Hin ævisagan er á bókarformi. Það er alþýðleg ævisaga Keplers. Hún tekur undir þá söguskoðun að trúarhugmyndir hafi öðru fremur stýrt hugmyndum Keplers um stjörnufræði. Þannig hafi hann gerst fylgismaður sólmiðjukenningarinnar á trúarlegum forsendum, en síðar reiknað sig að niðurstöðum sem studdu hana. Það er margt fróðlegt í þessari bók.

Geri ráð fyrir að Sverrir komi heim frá Póllandi með fullt af upplýsingum um Kópernikus, þannig að búast má við aukinni áherslu á þessa tvo hugsuði í vísindasögunámskeiðinu í vor.

# # # # # # # # # # # # #

Í morgun sá Ólína mynd af mér í dagblaði. Hún góndi víst á hana, benti og fór svo að kjökra. Sumir hlutir eru bara of flóknir fyrir ungan heila.

Múrinn sem skrípó!

Wednesday, September 13th, 2006

Þann fyrsta þessa mánaðar kom 13. bókin í Valhalla-teiknimyndasagnaflokknum út í Danmörku. Hún fjallar um dauða Baldurs og forsíðuna má sjá hér. Ég get ekki beðið eftir að lesa þessa bók. Treysti því að þessi bloggsíða sé lúslesin af starfsmönnum erlendu deildanna í bókabúðunum, sem stökkvi nú til og panti eintök. Ekki væri verra að fá svo tilkynningu þess efnis í athugasemdakerfið.

Sé á heimasíðu Peters Madsens að vinna við 14. bókina, sem jafnframt verður sú næstsíðasta, sé hafin. (Ætli lokabókin fjalli ekki um Ragnarök?)

Næsta bók hins vegar fjalla um tilurð Sleipnis, ef mér sýnist rétt. Hún mun heita “Múrinn”. Hér má sjá uppkast af einni persónu bókarinnar.

Ætti Ásatrúarfélagið ekki að ganga í að þýða þessar bækur á íslensku - eða í það minnsta flytja inn höfundinn?

Löggan og myndböndin

Wednesday, September 13th, 2006

Lögreglan virðist hafa tekið þá ákvörðun að það sé í hennar verkahring að senda fjölmiðlum myndir og myndbandsupptökur af málum sem eru á fyrstu stigum rannsóknar - að því er virðist sem hluti af einhverju ímyndarátaki löggunnar. Þórir bendir á vafasama siðferðið í þessu í stuttri færslu.

Finnst fólki þetta bara allt í lagi? Gilda einhverjar reglur um það hjá lögreglunni hvenær Kastljósið fær senda kópíu af upptökum úr öryggismyndavélum í ránum, líkamsárásarmálum o.s.frv.? Hér eru menn komnir út á verulega hálan ís.

# # # # # # # # # # # # #

Jafntefli gegn Colchester. Ekki var það nú gott, einkum þar sem við klúðruðum víti í leiknum. Sýnist þrír leikir verða sýndir með okkur á Sky til áramóta. Skyldi Sýn ekki ætla að drullast til að sýna a.m.k. einn þeirra?

Luton

Tuesday, September 12th, 2006

Nokkrar umferðir eru búnar af ensku deildinni og enn hef ég ekker bloggað um Luton að heitið geti. Eftir góðan sigur á Crystal Palace um síðustu helgi erum við í 5-6 sæti eða þar um bil. Í kvöld er svo leikur gegn Colchester sem verður að vinnast.

Ein ástæða bloggþurrðarinnar er sú að spjallborðið sem ég fylgdist reglulega með dó - eða öllu heldur, teknar voru upp kröfur um innskráningu og við það datt botninn úr spjallinu. Fyrir vikið er ég alveg úr öllu sambandi við slúðrið úr félaginu - hverjir séu að koma, fara eða hvort eitthvað gangi í vallarmálum. Þetta er ómögulegt ástand.

Norðanpósturinn

Monday, September 11th, 2006

Góð helgi að baki.

Við Steinunn lögðum af stað úr bænum eldsnemma á laugardagsmorgni. Gríslingurinn var skilinn eftir hjá afa og ömmu. Leiðin lá til Akureyrar í alhliða menningar- og knattspyrnuferð.

FRAM og Þór mættust kl. 14. Við FRAMararnir í stúkunni fylltum ekki tuginn, en létum vel í okkur heyra. Liðið tapaði - en ósigurinn reyndist súrsætur, því tap HK-manna sunnan heiða þýddi að meistaratitillinn væri í höfn. Þegar við bættist að Luton lagði Crystal Palace 2:1, gat ég ekki annað en verið sáttur.

Um kvöldið var svo komið að hinum aðaltilgangi ferðarinnar - heimsókn á veitingahúsið Halastjörnuna í Öxnadal. Halastjarnan er einhver óvenjulegasti veitingastaður á Íslandi, en jafnframt einn sá besti. Hann er til húsa í gömlum sveitabæ. Staðurinn hefur ekki nema fimm borð og opnunartíminn - fyrir utan hásumarið - er að mestu samkomulagsatriði við rekstraraðilana.

Maturinn var frábær. Hangikjöts/rjómaostsforrétturinn var afbragð. Lambakjötsaðalrétturinn og eftirrétturinn voru sömuleiðis fínir. Á Halastjörnunni sest maður ekki niður og velur af stórum matseðli - maður étur einfaldlega það sem er í boði. Þannig er tryggt að maturinn sé eins ferskur og kostur er.

Sonja, sem var í senn kokkur og yfirþjónn meðan á máltíðinni stóð, gaf sér góðan tíma til að spjalla - enda vorum við einu gestirnir. Hún sýndi okkur sömuleiðis húsið, sem er frábærlega skemmtilegt. Síðast en ekki síst var verðið mjög sanngjarnt.

Hér með skal því lýst yfir að Halastjarnan verður plögguð við öll tækifæri hér á blogginu. Það er staður sem íslenskir matgæðingar mega ekki láta fram hjá sér fara!

# # # # # # # # # # # # #

Gistum á Hótel Hörpu (sem er framlenging af Hótel KEA). Fyrir svefninn litum við aðeins inn á hótelbarinn. Þar var ágætis úrval af viskýi, en hálfkyndugt þó að átta af 15-16 flöskum væru Macallan af öllum mögulegum og ómögulegum aldursskeiðum.

Á bakaleiðinni stoppuðum við að Bjargi hjá Ólínu eldri og Valda. Komum daginn eftir réttir í sveitinni. Að ári mætum við kannski með Ólínu í réttirnar. Líklega mun hún þó ekki botna mikið í þeim fyrr en hún verður 4-5 ára. Ef hún líkist pabba sínum, á barnið reyndar ekki eftir að gefa mikið fyrir sveitalíf og samneyti við ferfætlinga.

# # # # # # # # # # # # #

Buðum Skúla Sig. og Sverri í kvöldmat. Þar var mikið rætt um námskeiðið, sem okkur finnst fara mjög vel af stað. Sverrir fór snemma, enda á leið til Póllands eldsnemma í fyrramálið. Skúli stekkur svo úr landi á fimmtudagsmorguninn, sem þýðir að ég hef nemendurna einn fyrir mig á fimmtudaginn.

Pöbbkvissið á Grand rokk

Friday, September 8th, 2006

Sá er hér ritar verður spurningahöfundur á pöbbkvissinu á Grand rokk kl. 17:30 í dag. Keppnin hefst stundvíslega og verður vonandi skemmtileg.

# # # # # # # # # # # #

Tæknisögukennslan í gær var bráðskemmtileg. Við Sverrir náðum að lýsa stuðningi við bændurna sem mótmæltu símanum 1905 og Hannes Hafstein í sama tímanum - á afar mismunandi forsendum þó.

Í næstu viku mun ég messa einn yfir nemendunum um sögu Gasstöðvarinnar.

Sviflestir

Wednesday, September 6th, 2006

Í morgun var ég að blaða í gömlum Lesbókum Morgunblaðsins fyrir Kolviðarhólsverkefnið mitt í vinnunni. Þar rakst ég á grein frá 1962 um sviflestir og möguleika þess að setja upp slíkt kerfi í Reykjavík.

Sviflestir eru sem sagt lestir sem hanga niður úr einteinungum í loftinu.

Höfundurinn var meira að segja búinn að útbúa kort af Reykjavík með mögulegu leiðakerfi inn að Elliðaám teiknuðu inn á það.

Þetta er það svalasta sem ég hef séð lengi. Væri það ekki magnað ef við hefðum komið okkur upp sviflest á sjöunda áratugnum?

Á sínum tíma lýsti ég því yfir að ef ég myndi drullast í doktorsnám - sem ég mun ekki gera - þá ætti ritgerðin að heita: “Járnbrautin í sögu Íslands”. Hugmyndir Indriða Reinholts á öðrum áratugnum um gerð sporvagnakerfis í Reykjavík hefðu fengið góða umfjöllun og sviflestirnar augljóslega líka.

Patty og Fræbbblarnir

Wednesday, September 6th, 2006

Í kvöld fóru foreldrar mínir á Patty Smith í Háskólabíó. Miðana fengu þau fyrir milligöngu Palla frá Hilmari og Helgu, sem lögðust í flensu.

Ég veit eiginlega ekkert um Patty Smith. Veit bara að hún á nokkur lög sem maður kannast við. Líklega hef ég alltaf haft innbyggða fordóma gagnvart konunni eftir að hafa hlustað á lagið “Hippar” með Fræbbblunum. Þar segir eitthvað á þessa leið: “Hlustið á Patty Smith, Hagen og beljulið - og haldið að það - eig´eitthvað skylt við pönkið!”

Annars er Nina Hagen fín og á bara eitt og annað skylt við pönkið. Ætla samt ekki að hnýta neitt meira í Fræbbblana hérna, veit nefnilega að Helgi Briem er fastur lesandi.

# # # # # # # # # # # # #

Er að lepja Lagavullin í þessum rituðum orðum. Það er góður drykkur.

# # # # # # # # # # # # #

Í dag barst Minjasafninu gripur. Það er hluti úr neyðarbúnaði frá Reykjavíkurflugvelli sem skipti yfir á rafgeyma í rafmagnsleysi. Þetta er stórt og mikið stykki, svo ég samþykkti strax að taka hann. Verst er að þetta er fjandanum stærra og þyngra. Óttast að ég muni hálsbrjóta mig við að koma þessu niður í geymslu með litla krananum. Það væri þó a.m.k. í þágu góðs málstaðar.

# # # # # # # # # # # # #

Vegna vinnunnar er ég sömuleiðis að berja mig í gegnum Sögu Kolviðarhóls e. Skúla Helgason frá 1959. Það er ekki fjörlegasta lesningin. Fyrir vikið mun dragast enn lengur að ég komist áfram með bókina á náttborðinu - Sirens of Titan eftir Vonnegut. Hún er fín, en ekki eins skemmtileg og Hocus Pocus sem ég kláraði í sumar. Það verður ekki langt í að ég lesi hana aftur.

Fyrst ætla ég samt að lesa Guðberg, Leitina að landinu fagra. Mitt uppáhald eftir Gubbann.

# # # # # # # # # # # #

Kennslan í námskeiðinu okkar fer ágætlega af stað. Við Sverrir sátum og hlustuðum á Skúla Sig. komast á talsvert flug í fyrirlestri dagsins sem fjallaði m.a. um Einstein, skopparakringlur, Kanasjónvarpið, Bláa lónið, gashernað í fyrri heimsstyrjöldinni, neðanjarðarlestakerfi Berlínar í kalda stríðinu, Vefarann mikla frá Kasmír, Róbert Trausta Árnason, orkunotkun Google-fyrirtækisins, grein Trotskýs um Lenín frá 1926, gúanó í Chile og ófarir Vilhjálms Þórs í olíuhneykslinu.

Viský

Monday, September 4th, 2006

Ég þekki marga sem drekka mikið viský - og vita helling um gott viský.

Ég þekki líka ýmsa sem drekka mikið viský - en vita ekkert um viský.

Auðvitað eru líka margir sem vita sáralítið um viský, en drekka það svo sem ekki í neinum mæli.

Skrítnasti þjóðflokkurinn er þó fólkið sem veit mikið um viský, en drekkur það nánast aldrei. Steinunn tilheyrir þessum hópi.

Í áfengisskápnum á Mánagötunni eru yfirleitt til 7-8 einmöltungar. Misgóðir eins og gefur að skilja, einkum þar sem við erum sjaldan í útlöndum og úrvalið í ÁTVR hörmung.

Þegar ég drekk einhverja fágæta tegundina, á Steinunn til að biðja um einn og einn sopa. Það heyrir til algjörra undantekninga að hún fá sér heilt glas, hvað þá meira. Engu að síður hefur hún ákveðnar skoðanir á því hvað henni þykir gott.

Á flugvellinum um daginn dró ég Steinunni með mér í vínbúðina, þar sem ég hafði hugsað mér að kaupa tollinn okkar beggja - og þurfti því brottfararspjaldið hennar. Eftir að hafa skoðað allt úrvalið fram og til baka gekk ég út með tvær flöskur - báðar eftir uppástungur Steinunnar. Annars vegar Highland Park 16 ára og hins vegar MacAllan Elegancia.

Þetta kallar maður góðan smekk hjá manneskju sem rétt dreypir á viskýi.

# # # # # # # # # # # # #

Fyrsti tíminn í tæknisögunni gekk vel. Nemendurnir voru smeykir við okkur og settust allir í efstu raðirnar, en ég held að Skúli hafi náð að kveikja í þeim undir lokin. Það er unun að vinna með mönnum eins og Skúla og Sverri. Líklega myndi ég gera það ókeypis - sem er heppilegt, þar sem ég er stundakennari við HÍ og vinn því í raun ókeypis…