Segulstöðvarblús

Afmælissöngur Sjónvarpsins í stóru, beinu útsendingunni reyndist vera Segulstöðvarblús. Það er viðeigandi um þessar mundir.

Klaufalegt þó að Þórhallur hafi kynnt lagið sem “hið frábæra lag Bubba Morthens”.

Hið rétta er vitaskuld að Sigurður Rúnar Jónsson á lagið og Þórarinn Eldjárn textann. Og ég er nánast viss um að Bubbi var ekki sá fyrsti til að flytja það. Held að útgáfa Jóhönnu Linnet sé t.a.m. eldri.

4 Responses to “Segulstöðvarblús”

  1. Hallur Says:

    Þarna hleypur besserwisserinn á sig. Sigurður Rúnar Jónsson hefur einnig samið lag við þetta ljóð Þórarins. Lag Bubba kom út á hljómplötunni Plágan árið 1982. Útgáfan með lagi „Didda fiðlu“ er af hljómplötu herstöðvarandstæðinga, „Eitt verð ég að segja þér“, sem mig minnir að hafi komið út 1983 eða 1984 þó ég ætli ekki að fullyrða um það. En hér er sem sagt um tvö lög að ræða.

  2. Orri Says:

    Ekki beinlínis klaufalegt. Bubbi á það “lag” eða öllu heldur þá útsetningu sem Andrea og co fluttu. Diddi fiðla samdi aftur á móti annað lag við þetta kvæði Þórarins. Og sennilegast er það eldra.

    En “lagið” hans Bubba er auðvitað bara standard blús og þannig lagað ekki eftir neinn.

    Ætti eiginlega bara skrifast sem trad. arr.

  3. Hallur Says:

    Jah Orri, þetta er líklega mjög í átt við það sem ég sagði nema mitt svar var ítarlegra ;)

  4. Stefán Says:

    Ég ét þetta þá bara allt saman ofan í mig.