Stjórnmálasögublogg
Fyrst smáplögg. Munið ferðina á föstudag og ferðina á sunnudag hjá SHA. Nánar hér.
# # # # # # # # # # # # #
Ohh… var búinn að semja langa bloggfærslu sem hvarf. Best að rigga upp styttri útgáfu í hvelli:
Næstu kosningar gætu einkennst af pólitískum uppvakningum. Þar á ég við fólk sem setið hefur á þingi, fallið þaðan eða hætt - en sækist nú eftir endurkjöri. Þessi nöfn eru komin fram:
* Sigríður Jóhannesdóttir, Samfylking Suðurland
* Karl V. Matthíasson, Samfylking NV
* Kristinn (Pétursson?) frá Bakkafirði, íhaldið NA
* Kristján Pálsson, íhaldið Suðurland
Telja mætti Árna Johnsen til þessa hóps - og svo eru alltaf einhverjir að gæla við framboð Jóns Baldvins, t.d. á Suðurlandi.
Í kjölfarið fór ég að rifja upp hversu margar “afturgöngur” hefðu ratað inn á þing? Þær virðast mér ekki vera margar.
Hér á ég ekki við þingmenn sem féllu af þingi í baráttu við hina flokkana í þingkosningum, en sneru aftur síðar. Dæmi um slíkt væru t.d. Halldór Ásgrímsson (féll af þingi 1978) og Jóhann Ársælsson (féll af þingi 1995). Ég á við fólk sem hætti sjálfviljugt eða féll í innanflokksprófkjöri/uppstillingu - en átti “kommbakk”.
* Gunnar Thoroddsen fór í pólitískt frí en átti endurkomu
* Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fór í borgarmálin en sneri aftur (reyndar fyrst sem varaþingmaður - en aðalmaður eftir að Bryndís Hlöðversdóttir hætti)
* Gunnlaugur Stefánsson sat á þingi fyrir krata 1978-9 og síðar f. sama flokk en annað kjördæmi 1991
Í fljótu bragði mundi ég ekki eftir fleiri nöfnum. Geta fróðir lesendur síðunnar ekki bætt um betur?

September 28th, 2006 at 10:35
Ég man ekki betur en að Gagginn hafi dottið út af þingi. Hann var í það minnsta alþingismaður til 1967 og frá 1971-1999 en varaþingmaður 1968 og 1969.
September 28th, 2006 at 11:19
Án þess að vilja vera með þetta leiðindi er þetta dæmi af því tagi sem sp tók sérstaklega fram að hann væri ekki að biðja um.
Ágúst Einarsson sat allt þingið 1978-1979, var raunar ekki þingmaður en sneri svo aftur 1995.
September 28th, 2006 at 11:24
Úps! Afsakið, hljóp á hundavaði yfir færsluna og sá ekki skilyrði Stefáns.
September 28th, 2006 at 13:11
Ásta Möller? Það er held ég innan skilyrða, þar sem hún féll í prófkjöri.
Sverrir Hermannsson.
Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra.
Sigbjörn Gunnarsson, þó hann hafi reyndar verið sviptur sínu kombakki þarna um árið.
September 28th, 2006 at 13:18
Og allt eru þetta nokkuð nýleg dæmi. Trúlega er þetta algengara en margur hyggur, en nöfn kombakkaranna ekki nógu eftirminnileg.
En samanburður langt aftur í tímann er etv líka ómögulegur vegna lengri pólitískra líftíma og breytinga á kosningafyrirkomulögum.
September 28th, 2006 at 18:13
Ásta Möller fellur eiginlega utan skilgreiningar. Hún var í þingsæti sem tapaðist. Níunda sæti í prófkjöri er nú varla að “falla”?
Féll Magnús ekki sömuleiðis í kosningum þegar þingmönnum Framsóknar fækkaði?
Sigbjörn er einmitt dæmi um misheppnað kommbakk.
Sverrir Hermanns er hins vegar klárt dæmi um þetta.
Ellert B. Schram reyndi þetta líka. Hefur hann tekið sæti fyrir Samfó á kjörtímabilinu?
September 30th, 2006 at 00:24
Það er fullt af dæmum um þetta. Ragnhildur Helgadóttir t.d. hætti sjálfviljug en kom svo aftur.
October 1st, 2006 at 13:48
Jú - það er rétt með Magnús. Það sló saman í mér, mig minnti e-a hluta vegna hann hefði hætt og farið í sveitarstjórnarpólitík í Grundarfirði í millitíðinni.