Sýnilegt/leynilegt
Ætli það hafi ekki verið snemma á þessu ári sem frasinn sýnilegar varnir var búinn til? Nokkrum dögum eftir að ég heyrði þessi orð fyrst í einhverjum umræðuþætti voru þau á vörum allra herstöðvasinna.
“Auðvitað verður Ísland að hafa sýnilegar varnir - annað væri fáránlegt!” Þetta fékk maður ítrekað að heyra í umræðum um hermálið. Þeir sem viðurkenndu ekki þessi augljósu sannindi voru álitnir fábjánar eða einfeldningar og ekki tækir í rökræður.
Í gær var þessum frasa fimlega skipt út fyrir nýjan og betri. Nú er miklu betra að hafa leynilegar varnir en sýnilegar. “Auðvitað eru menn ekkert að auglýsa hvernig hátta eigi vörnunum, varnir eru jú leyndarmál - annað væri fáránlegt!” Þeir sem ekki skilja þessi nýju og einföldu sannindi eru augljóslega fábjánar eða einfeldningar og ekki tækir í rökræður.
Er ekki tungumálið dásamlegt tæki?

September 27th, 2006 at 11:02
hver er munurinn á VARAliðinu sem BB vill nú koma á (svo við verðum ekki skiln eftir varnarlaus með öllu) og VARNARliðinu sem var að fara?
September 27th, 2006 at 12:39
Ætli “leynilegar” varnir felist ekki meðal annars í því að ráða mann til að hlera síma formanns herstöðvaandstæðinga og annarra augljósra óvina okkar íslendinga? Ef það kemur svo í ljós að ekki er hægt að draga þá fyrir dómstóla fyrir landráð má svo alltaf brenna gögnin!
September 27th, 2006 at 19:25
þú varst góðurí sjónvarpinu. Legg til nafnið Samtök hernaðarandstæðinga. Er að hugsa um að ganga í þau, þarfari samtök en nokkru sinni.
September 27th, 2006 at 22:05
Stefán. Verður engin hátíð til að fagna herförinni?
September 28th, 2006 at 00:07
Geir Haarde sagði reyndar aðspurður í Kastljósi á þriðjudagskvöld hvort að hann hafi ekki viljað sýnilegar varnir að það hafi verið það sem hann og ríkisstjórnin lagði upp með en fengu ekki í gegn, því sé leynilega vörnin málamiðlun.
Þannig er ekki rétt að segja að menn hafi skipt um skoðun - stundum fá menn bara ekki allt sem þeir vilja.
September 28th, 2006 at 00:16
Æ, maður er nú orðinn ansi gamall í þessum bransa.
Sú var tíðin að Albert Jónsson útskýrði fyrir þjóðinni af þekkingu sinni og visku að það væri óframkvæmalegt að hafa minna en 18 þotur í flugsveit - og að Ísland yrði að hafa flugsveit.
Síðar varð 12 heilög tala. Allt minna en 12 var út í hött og raunar enginn botn í að halda slíku út. Það hét “raunhæfar varnir”.
Ekki man ég hvort það var stoppað í einhverri tölu á milli 12 og 4 - en hugtakinu “raunhæfur” var semsagt skipt út fyrir “sýnilegur”.
Persónulega líður mér þó mun betur með ósýnilegar og óraunhæfar varnir. Tel mig miklu öruggari þannig.