Bandaríski herinn í Írak

Rakst á stórmerkilega skoðanakönnun meðal bandarískra hermanna í Írak.

Það er sláandi að sjá að 85% þeirra telja að stríðið í Írak sé að miklu leyti til að hefna fyrir þátt Íraka í hryðjuverkunum 11. september og álíka fjöldi að Íraksstjórn hafi sérstaklega stutt við bakið á Al-kaída.

# # # # # # # # # # # # #

Greiðsluseðillinn frá LÍN kom á heimabankann í kvöld. Hann var hærri en ég átti von á. Það er útlit fyrir að maður klári þessi námslán á mettíma.

Grjónagrautur í öll mál í september!

# # # # # # # # # # # # #

Jafntefli HK og Fjölnis færir FRAM einu skrefi nær meistaratitlinum í fyrstu deildinni. Jafntefli gegn Þrótti á morgun (í kvöld) dugar. Með þrjá Þróttara í leikbanni sættum við okkur þó ekki við neitt annað en sigur.

Comments are closed.