70%

Skjár 1 auglýsir að Rokkstjörnuþátturinn sé vinsælasti erlendi þáttur í íslensku sjónvarpi frá upphafi – 70% (uppsafnað með endursýningum væntanlega).

Þetta er augljóslega rangt. Meðan RÚV var eitt á markaðnum hafa margir þættir náð þessum árangri. Mig rámar í að hafa séð gamla frétt frá 1982-3 þar sem Löður var í 75% og Tommi og Jenni skammt þar á eftir.

Hvað ætli Dallas hafi hæst farið upp í? Ekki minna en 80% myndi ég giska á…

5 Responses to “70%”

  1. anna Says:

    Hvað ætli Dýrlingurinn hafi náð miklu áhorfi, þá miðað við þann fjölda sem hafði aðgang að sjónvarpi? 90%? 95%?

  2. simmi Says:

    Þessi auglýsing er móðgun við alla þá sem eru eldri en 25 ára. Svo er þessi 70 prósent tala þeirra skrýtin finnst mér, því svo mikið áhorf er ekki á þennan þátt. Hlýtur frekar að vera 70 prósent af einhverju aldurbili.

  3. Á Says:

    25% sem horfðu ekki á Löður? Hvað var að því fólki?

  4. Ibba Sig. Says:

    Jamm, þetta er skrítin tala og gaman væri að sjá hvaða leikur með tölur er á bak við hana.

    En varðandi tímann þegar RÚV var aðal hér á landi þá fór ratings oft mjög hátt upp og share var alltaf 100%. Kannski er Skjár einn að tala um share??

  5. Össi Says:

    Það er tekið fram að þetta er 70% fólks undir 50 ára. Ég held að þetta bara alveg rétt. Gleymum ekki þættirnir eru í raun þrír (raunveruleikaþáttur, söngþáttur og útsláttarþáttur). Svo er þetta allt margendurtekið.