Archive for July, 2006

Moggaforsíðan

Saturday, July 29th, 2006

Flottar aðgerðir í gær fyrir framan bandaríska sendiráðið. Mogginn segir frá þeim á forsíðu ásamt stórri mynd.

Já, ég endurtek: Mogginn segir frá aðgerð Samtaka herstöðvaandstæðinga á forsíðu og undir jákvæðum formerkjum.

Kannski einhver sagnfræðingurinn muni í framtíðinni nota þessi tímamót til að marka lok kalda stríðsins?

# # # # # # # # # # # # #

Kvöldverðarboð á Mánagötu í gærkvöld. Keyptum bleikjuflök í Fylgifiskum. Lostæti.

Ólína gisti hjá ömmu sinni og afa. Í fyrsta sinn í marga mánuði gátum við Steinunn sofið heila nótt án þess að fá spark í nýrun eða hausinn. Við söknuðum þess nú pínulítið.

# # # # # # # # # # # # #

FRAM vann góðan sigur á Akureyringum í gær og stefnir ótrautt á að vinna deildina. Missi af næsta leik, úti gegn Stjörnunni, þar sem stefnan er tekin á Neistaflug fyrir austan um verslunarmannahelgina.

# # # # # # # # # # # # #

Skoski boltinn er byrjaður. Hearts mætir Dunfermline á útivelli. Fyrstu leikirnir í Evrópuboltanum eru alltaf hálf-melankólískir, því með þeim byrjar haustið.

B&S

Friday, July 28th, 2006

Svarta flaskan

Thursday, July 27th, 2006

Vinsæl íþrótt

Sunday, July 23rd, 2006

Geggjun

Sunday, July 23rd, 2006

Ísland & stríðið í Líbanon

Friday, July 21st, 2006

Skrifelsi

Friday, July 21st, 2006

Frétt ársins?

Wednesday, July 19th, 2006

Lystugt!

Wednesday, July 19th, 2006

Hún lifir!

Monday, July 17th, 2006